Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 25
EIMREIÐIN)
í BISKAYAFLÓA
153
Þar næst tóku þeir kolafarm í Blight og fóru með hann
til Álasunds í Noregi. Þegar þangað kom, gekk Ófeigur
úr skiprúmi; líkaði honum ekki skipið alls kostar, en vel
fór á með þeim skipstjóra. Þá var sem mest eftirspurn
eflir sjómönnum, kaup gott og úr mörgu að velja. En
það er af »Hafliða« að segja, að hann fór tvær einar
ferðir eftir þetta, en fórst
þá með allri áhöfn.
Ófeigur fór til Björg-
vinjar og var þar eitt-
hvað 10 daga. Réðst þá
2. stýrimaður á norskt
eimskip frá Björgvin,
sem þá lá í Shields.
Fór hann vestur um
haf á farþegaskipinu
»Vega« til Newcastle. Á
því skipi voru margar
þjóðir: Rússar, Spán-
verjar, ítalir, Frakkar,
Englendingar, Svíar og
Norðmenn og var glatt
á hjalla á vesturförinni.
Þegar vestur kom, fór
Ófeigur til skips; það
hét »Solbakken« og var
4200 smálestir. Skip-
stjóri var aldurhniginn
og mjög farinn að heilsu,
en 1. stýrimaður var 35
ára og vel hraustur. Hann var Norðmaður. Skipverjar
voru frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Banda-
ríkjum og enn fleiri löndum.
Þeir létu í haf í júlímánuði 1916 og var ferðinni heitið
til Halifax í Canada. Þegar þangað kom, var skipstjóri
svo sjúkur, að hann varð að yfirgefa skipið; tók fyrsti
stýrimaður við skipstjórn, en Ófeigur varð einn stýrimað-
ur. Tóku þeir þar trjáviðarfarin til Dieppe og varð ekki