Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 28
156
í BISKA.YAFLÓA
IEIMREIÐIN
stjóra, en 14 með stýrimanni. Með Ófeigi urðu 1. vélstjóri
og brytinn, 3. vélstjóri og timburmaður, en með skip-
stjóra fóru 2. vélstjóri og bátsmaður. Að öðru leyti tók
hvor þá háseta, sem haft hafði með sér á vöku.
Reru þeir fyrst tii kafbátsins og skiluðu foringjunum.
Ekki vissu þeir gerla, hvar þeir væri, en giskuðu á að
þeir ætti um 80 sjómílur ófarnar til Ermarsunds, en for-
ingi kafbátsins sagði þá 60 mílur undan Brest og hafði
hann lofað skipstjóra að draga bátana og koma þeim svo
undir land, að þeir hefði hagstæðan byr og gæti siglt til
Frakklands.
Þess má geta, að mesti sægur var af rottum í skipinu
og margir kettir. Tóku þeir þá alla með sér, er til náð-
ist, í bát stýrimanns og gekst einn maður einkanlega
fyrir því; það var timburmaður skipsins. Þessi umhyggja
kom þó að litlu haldi, því að kettirnir króknuðu allir í
bátnum. En það er til marks um rottusæginn í skipinu,
að þá er þeir félagar höfðu verið í hrakningi um hríð,
varð timburmaður þess var, að eitthvað var á iði í ermi
hans og þegar hann gaf því gætur, hljóp heljarstór rotta
fram úr treyjuermi hans. — Hund höfðu þeir einn og
fór hann í bát skipstjóra.
Þess er fyrr getið, að sjór kom á skipið vestur af Spáni
og losaði um annan skipsbátinn. Þann bát fékk stýrimað-
ur og hans menn, en þegar hann kom á sjó, kom í ljós,
að hann var allur liðaður og hriplekur. Sló óhug á skip-
verja og vildu sumir ganga í bát skipstjóra, en þess var
enginn kostur vegna þrengsla. Varð hnédjúpur sjór í bát-
num á svipstundu og var þá tekið að ausa af kappi.
Þegar skipshöfn var komin í bátana, fengu kafbáts-
menn stýrimanni kaðal og höfðu bát hans í eftirdragi, en
bát skipstjóra var hnýtt þar aftan í. Kafbáturinn var litill
og engin merki sáu þeir á honum. Hann sigldi fyrst um-
hverfis skipið. Sprungu þá báðar sprengjurnar, en það
virtist litlum skemdum valda. Tóku þeir þá að skjóta á
það, samtals ellefu skotum, og hittu flest. Skipið fór þá
að hallast á bakborða og síga niður að framan.
Um klukkan hálf-sex var lagt af stað í áttina til Brest