Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 31
EIMREIÐIN]
í BISKAYAFLÓA
159
þeir væri komnir langt út á Atlantshaf. En þegar Ófeigi
leiddist mögl þeirra, þá varð hann við þá harðorður, en
taldi þess i milli kjark í þá.
Á þriðja sólarhring dó danskur kyndari, 30 ára gamall.
Hann hafði aldrei kent sig mann til að starfa neitt og
nokkru áður en hann dó, kvartaði hann um kulda fyrir
brjósti; hann kvaddi alla skipsmenn og misti svo með-
vitund og dó stundu síðar. Létu þeir hann liggja í austr-
inum þann dag.
Bátur Ófeigs Guðnasonar.
Þegar Ófeigur hafði setið við stýri í tvo sólarhringa
samfleytt, bað hann einn hásetanna að hvíla sig. Hann hét
Carlson, var sænskur, harðvítugur maður og manna dug-
legastur og hafði staðið i austri livíldarlítið. En hann
neitaði fastlega og sagði, að andskotans timburmaðurinn
gæti gert það. Hann var Bandaríkjamaður, um fimtugt,
og hafði legið aftur í skut hjá stýrimanni, borið sig aum-
lega og ekki að hafst; taldist hann undan að stýra og
sagðist mundu vera handleggsbrotinn. Carlson sagði það
ósatt og gekk til hans, tók í hann og sagðist fleygja hon-
um fyrir borð, ef hann settist ekki undir slýri. Reis hinn
þá upp, tók við stjórn og var hinn brattasti. Sagði hann