Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 51
EIMREIÐIN]
BRJÓSTMYND AF JÓNI EIRÍKSSYNI
179
mynd, nefnilega mynd
þeirri, sem Bjarni amtm.
talar um í ævisögunni
á bls. 99 —100, en ekki
gipskringlu frú Posth.
í litlu erindi um Ólaf
Að líkindum heíir Bjarni amtm. skrifað um mynd Bertels
Thorvaldsens á bls. 99—100 í ævisögunni og verðurekki ann-
að séð en að hann lýsi þar brjóstlíkneski og alls ekki »gyps-
kringlu«. Sé mynd Eckersbergs gerð eftir gipskringlu, svo
sem sagt er og útlit er fyrir, þá hefir verið hér um annað og
annars konar listaverk að ræða en brjóstlíkneskið eftir Bertel
Thorvaldsen. Búningurinn á mynd Eckersbergs bendir einnig
á það, og jafnvel öll gerð myndarinnar. Sú gipskringla þekk-
ist þá ekki hér, né heldur brjóstmyndin á armspönginni,
sem getið er um. Mynd Ólafs próf. Ólavsens er til hér (sjá
2. mynd); það er vanga-
mynd, sér aðeins höfuð
og háls, beran, vinstri
hlið; hún er allmjög
frábrugðin mynd Eckers-
bergs, enda gerð að Hk-
indum eftir annari frum-
piófessor Olavsen, sem
eg flutti nýlega í List-
vinafélaginu í Reykja-
vík, talaði eg um og sýndi
mynd hans af Jóni Eiríkssyni og gat um þetta brjóstlík-
neski af Jóni eftir Bertel Thorvaldsen, það er Bjarni amt-
maður átti og eg taldi hafa verið frummynd Ólafs. Eg
gat þess, að eg hefði spurst fyrir um, hvort andlitsmjmd-
in sjálf, sem Bjarni amtm. geymdi, myndi vera til enn,
og fengið það svar, að ókunnugt væri um það nú og
myndi hún að líkindum glötuð. Að loknu erindinu gat
Ríkarður myndasmiður Jónsson þess við mig, að Stein-
grímur Thorsteinsson rektor, sonur Bjarna amtmanns,
hefði fyrir mörgum árum sýnt sér eitt sinn andlitsmynd
úr gipsi, og þótti okkur líklegt, að þarna hefði verið þessi