Eimreiðin - 01.05.1920, Qupperneq 54
182
BRJÓSTMYND AF JÓNI EIRÍKSSYNI IEIMREIÐIN
í ákveðnum tilgangi, bendir alt til þess, að Bertel Thor-
valdsen hafi gert líkneskið eftir Jóni sjálfum, hvort sem
hann þá hefir gert það eftir beiðni hans sjálfs eða ein-
hvers annars.
Þegar Jón dó, 29. mars 1787, var Bertel Thorvaldsen
á listaháskólanum. Hann hafði þá lært þar eitt ár að
móta líkneski og hlotið 2. janúar s. á. hinn minni verð-
launapening úr silfri, 3 mánuðum áður en Jón féll frá,
og hálfum mánuði síðar (15. apríl) var hann fermdur. —
Gottskálkur faðir hans ætlaði að láta hann hætta námi að
svo komnu og þurfti aðstoðar þessa efnilega sonar síns
með. Bertel hefir verið talinn fæddur 19. nóv. 1770, en
þó talið óvíst, og mun tilhæfulaust að efast um, að hann
sé sá »Bertel Thorvalsii,1) sem í skírnarbók fæðingar-
stofnunarinnar i Kaupmannahöfn er talinn fæddur þar
13. nóv. 1768. Hann hefir þá verið á 19. árinu, er Jón
andaðist. Sennilega hefir Jón þekt vel þá feðga og líklegt
að hann hafi einmitt átt tal við hinn uppvaxandi mynda-
smið um gipsið og hina íslensku »krítjarðartegund«, er
hann vildi fá Dani til að nota fyrir gips.
Það er vert að minnast á hér, í sambandi við þetta,
frásögu eina, sem ævisöguritari Bertels Thorvaldsens, J.
M. Thiele,2) hefir eftir gullsmið einum í Kaupmannahöfn,
Ferrini að nafni. Hann kvaðst hafa mætt Bertel Thor-
valdsen á götu í Höfn einn góðan veðurdag 1787; var
hann þá með spegla-umgerðir og annan útskorinn og
gyltan skrautvarning, sem hann var að fara með til
kaupmanna, er versluðu með þess konar vörur, og bjóða
þeim. Ferrini var góður vinur Bertels og föður hans og
spurði hann, er hann sá hann með þessa byrði, hvort
hann hefði búið þetta til sjálfur eða hvort faðir hans
hefði gert þessa fögru dýrindis-hluti. Bertel svaraði hon-
um fáu um það, en sagðist skyldi sýna honum eitthvað
1) Sbr. grein Gerh. Hornemanns skjalavarðar i dagbl. »Politiken« 35. árg.t
nr. 278. — Pað er engan veginn óliklegt, að sveinninn hafi verið skírður »Thor-
val(d)s«, en hins vegar er ekki heldur ómögulegt, að »Tliorvals« sé i bókinni
skammstöl'un fyrir »Thorvaldsen«, sem Gottskálkur mun þá hafa verið kallaður.
2) Thorvaldsens Biographi I, 20.