Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 15

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 15
GRÍMUR THOMSEN 15 Það þurfti sannarlega ekki undirritun deildarstjóra til að dæma slíka hugmynd fráleita.“ Þá víkur Repp að því, sem stúdentarnir segja, að gjöfin hafi aðeins verið til vitnis um þakklæti fyrir athygli, sem íslenzkum bókmenntum var sýnd í Uppsölum. Segir hann, að skemmtilegra hefði verið að sjá einhverja sönnun þess, til að mvnda afrit af bréfi doktorsins til Uppsalamanna. Eins og bréf Gríms til Sáve sýna, hefði þar ekki verið feitan gölt að flá fyrir Þorleif Repp. Þar sýnist allt í fyllsta samræmi við yfirlýsingu stúdentanna. En framhald tillögu Repps á Borchs-Collegium átti eftir að koma í ljós á íslandi, ekki sízt á Vestfjörðum, þar sem menn snerust öndverðir gegn ótímabæru frjálslyndi Jóns Sigurðssonar, og hann komst víst aldrei í krappari dans í viðskiptum við landa sína. Um það vísast til greina Kjartans Olafssonar (Saga 1986 og 1987). Grímur höfðaði mál gegn Þorleifi Repp fyrir skrif hans, en ljóst er, að ekki voru vandamenn hans og vinir heima á Islandi hrifnir af málarekstri lians gegn Þorleifi Repp, enda var frjálshyggja lítt í heiðri höfð á þeim bæjum. Að líkindum er að þessu vikið í bréfi Ingibjargar móður hans (25. okt. 1867) án þess nöfn séu nefnd. Grímur kom heim til íslands á því ári, og í bréfum, sem hann skrifaði Bjarna amtmanni á Stapa, víkur hann að þessu máli 1858, 6. nóv. segir hann svo í bréfi til amtmanns: „Mér er líkast til hér um bil eins illa við fiskipólitík Frakka eins og yður, en eg sé ekki hverninn það væri kljúfandi, að aftra þeim frá, ef þeim er alvara. Mér fmnst þá ekkert annað ráð enn brúka þau lög, sem til eru, svo hyggilega sem verður. —“ Lítill bréfkafli frá Grími til kennara hans og fornvinar séra Árna Helgasonar í Görðum er augljóst svar við einhverjum orðum stiftsprófasts um málefni Repps. Bréf Gríms er ritað 1. maí 1857. „------Eg varð að láta stefna Repp, en hann hefir beðið um undandrátt, svo það mál er ekki útkljáð enn, og í millitíð hefur hann lagst í þunga legu, og er hart haldinn af brjóstveiki, vesælíngur. Ekki skal eg gánga hart að honum, en niðrí honum varð eg að þagga, því allt verður að hafa enda bæði gott og illt.“ Málalok eru ókunn, en Repp var kominn að fótum fram, þegar Grímur ritaði séra Árna. Hann andaðist 4. desember sama ár. Mál þeirra Gríms hefur því að öllum líkindum lent í varanlegum undandrætti.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.