Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 18

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 18
18 FINNBOGI GUÐMUNDSSON „Segir Arinbjörn svá: „Allreiðr var konungr nú, en heldr þótti mér mýkjast skaplyndi hans nokkut, áðr létti, ok mun nú hamingja skipta, hvat upp kemr; veit ek, at Gunnhildr mun allan hug á leggja at spilla þínu máli. Nú vil ek þat ráð gefa, at þú vakir í nótt ok yrkir lofkvæði um Eirík konung; þætti mér þá vel, ef þat yrði drápa tvítug ok mættir þú kveða á morgin, er vit komum fyrir konung. Svá gerði Bragi frændi minn, þá er hann varð fyrir reiði Bjarnar Svíakonungs, at hann orti drápu tvítuga um hann eina nótt ok þá þar fyrir höfuð sitt; nú mætti vera, at vér bærim gæfu til við konung, svá at þér kæmi þat í frið við konung.“ Egill segir: „Freista skal ek þessa ráðs, er þú vill, en ekki heíi ek við því búizt, at yrkja lof um Eirík konung." Arinbjörn bað hann freista; síðan gekk hann brott til manna sinna; sátu þeir at drykkju til miðrar nætr. Þá gekk Arinbjörn til svefnhúss ok sveit hans, ok áðr hann afklæddisk, gekk hann upp í loptit til Egils ok spurði, hvat þá liði um kvæðit. Egill segir, at ekki var ort, - „hefir hér setit svala ein við glugginn ok klakat í alla nótt, svá at ek hefi aldregi beðit ró fyrir.“ Síðan gekk Arinbjörn á brott ok út um dyrr þær, er ganga mátti upp á húsit, ok settist við glugg þann á loptinu, er fuglinn hafði áðr við setit; hann sá, hvar hamhleypa nökkur fór annan veg af húsinu. Arinbjörn sat þar við glugginn alla nóttina, til þess er lýsti; en síðan er Arinbjörn haíði þar komit, þá orti Egill alla drápuna og hafði fest svá, at hann mátti kveða um morgininn, þá er hann hitti Arinbjörn; þeir heldu vörð á, nær tími myndi vera at hitta konung.“ í neðanmálsgrein í útgáfu Sigurðar Nordals (Islenzk fornrit II, 1933) er skýring á orðinu hamhleypa, og er hún á þessa leið: hamhleypa: Vera, sem brugðizt hefur í annan ham, sem títt var um galdrakonur. Það, sem hér segir af svölunni, sem villti um fyrir Agli með klaki sínu, minnir á þröstinn, sem glapti hinn heilaga Benedikt, þá er hann var á bænum sínum, en var þó reyndar fjandinn sjálfur (Patrologia Latina, LXVI. bindi, bls. 132, - í norrænu þýðingunni (Heilagra manna sögum I, 160) er það fluga). Snorri skyldi þó aldrei hafa fengið fluguna þaðan? Orð Arinbjarnar í Egils sögu: veit ek, at Gunnhildr mun allan hug á leggja at spilla þínu máli — sýna glöggt, að hamhleypan var engin önnur en Gunnhildur sjálf, er brugðið hafði sér í svölu líki. Og á sama hátt hefur verið talið, að Loki hafi raunar verið llugan, er sótti að dvergnum Brokk í smíðasögunni hér að ofan. Nú verður tekið þar til í frásögn Snorra í Eddu hans, er áður var frá horfið: „En er þeir Loki báru fram gripina, þá settust æsirnir á dómstóla, ok skyldi þat atkvæði standast, sem segði Óðinn, Þórr, Freyr. Þá gaf Loki

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.