Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Qupperneq 26
Nokkur bréf íslendinga til Willards Fiskes
Finnbogi Guðmundsson bjó tilprentunar
Ég birti í Árbók Landsbókasafns 1982 allmörg bréf Willards
Fiskes til Islendinga. Þegar ég var í Iþöku í septembermánuði
1987, fékk ég ljósrit af bréfum nokkurra Islendinga til Fiskes, m.a.
þeim, er hér verða nú birt, þ.e. af tveimur bréfum Benedikts
Gröndals, 8. febrúar 1880 og 8. september 1881 (sbr. bréf Fiskes til
hans í Árbókinni 1982).
Þá eru hér birt nokkur bréf Einars Benediktssonar til Fiskes,
dagsett í Reykjavík 30. nóvember 1879, 22. marz 1880 og 2.
september það sama ár. Einar var þá ungur í skóla og hafði kynnzt
Fiske, þegar hann var hér á ferð 1879. Greinilegt er, að Fiske gerði
sér far um að kynnast ýmsum ungum íslendingum, sendi þeim við
heimkomuna gjafir og skrifaðist síðan á við suma þeirra. Einar var
aðeins 16 ára gamall 1879 (f. 31. okt. 1864). Þá eru einnig tvö bréf
Einars til Fiskes frá árinu 1903, hið fyrra skrifað í Kiel 1.
september og það síðara í Róm 12. nóvember. Þessi bréf eru
skrifuð á ensku, og hef ég þýtt þau bæði á íslenzku.
Reykjavík, 8. febrúar 1880.
Kæri herra prófessor W. Fiske.
Ég rita yður þessar línur til þess að heilsa yður frá konunni
minni og þakka yður fyrir það, sem þér hafið sent okkur, og er það
okkur kær minning um yður og þá gleði, sem við höfðum af að sjá
yður og kynnast yður. En ég hefi ekki ritað yður meir fyrr, af Jdví ég
vissi, að þér munduð fá fjölda bréfa héðan, líklega flest öll
ómerkileg, og nennti ég ekki að vera í þeim hóp. Ég rita nú heldur
ekki merkilegt bréf, því ég ímynda mér, að séra Matthías Jochums-
son muni rita yður allar fréttir og alls konar merkilega hluti. Hér
hefir annars ekkert merkilegt borið við síðan þér fóruð, en nú eftir