Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Síða 27

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Síða 27
nokkur bréf íslendinga 27 nýárið hefir hér verið leiðinleg tíð vegna kvefs og ýmissa kvilla meðal manna. Hér er annars eins og annarstaðar í heiminum ekki hugsað um annað en verzlun og líkamlega hluti, sem raunar er von, því menn verða að lifa, ef menn eiga síðan að geta stundað andans verk. Öll blöð eru nú full af láti Jóns Sigurðssonar, sem Dönum var svo illa við í lífinu, því hann var sá eini sem aldrei beygði sig fyrir þeim; þeir álíta hans skoðanir enn rangar og óhafandi, en þeir hafa aldrei þekkt Island né heldur viljað þekkja það; „Ný Félagsrit“ voru búin að koma út í 30 ár, áður en Danir vissu að þau voru til. Jón Sigurðsson var hinn einasti Islendingur, sem kunni að pólitíséra. Þér sögðuð við mig, að ég skyldi segja yður frá, ef mig vantaði nokkuð - en það sem mig vantar og langar til að eiga, er Microscop, sem stækkar hér um bil 3-400 sinnum. Ég sé oft þessi Microscop nefnd í blöðunum, svo sem frá Zeiss í Jena, en ég hef hvergi séð hvað þau kosta; en ég er líka hræddur um, að þau séu of dýr fyrir mig. Það er samt ómissandi fyrir mig að hafa þetta instrument, og minni stækkun (magnifying power) vil ég ekki hafa. Menn vita ekkert um in mikroskopisku dýr hér á Islandi, af því náttúrufræðingar dvelja hér aldrei nema stutta stund og gefa sig þá við öðru. Þér sjáið náttúrlega í útlöndum öll blöð og vitið, hvað allir hlutir kosta, og ef það ekki tæki allt of langan tíma, þá ímynda ég mér, að þér munið gjöra svo vel og segja mér eitthvað um þetta. Ég get ekki ritað yður meira í þetta sinn, því tíminn er orðinn naumur og examen stendur yfir í skólanum, en seinna vonast ég til að geta skrifað yður lengra og skemmtilegra bréf - ég tek mér þá eitthvert thema til að leggja útaf við yður og tefja yður með. Yðar Ben. Gröndal.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.