Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 39

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 39
HAI.LDÓRA BJARNADÓTTIR 39 hefja nám. Allir urðu þeir forystumenn þjóðar sinnar. í Kaup- mannahöfn var Halldóra hjá Þorvaldi Thoroddsen og frú Þóru Pétursdóttur, og þar bættist í hópinn gamall kunningi, Sigfús Blöndal. Ungu mennirnir frá Vestu kynntu Halldóru dýrð Kaup- mannahafnar. Var svo haldið til Noregs eftir nokkurra daga dvöl. Ólafla Jóhannsdóttir hafði útvegað Halldóru vist á Heimili fyrir ungar stúlkur. Þar var henni ráðlagt að sækja námskeið ti 1 undir- búnings Kennaraskólanum. Fjöldi fólks úr öllum áttum, karlar og konur, sóttu þennan skóla. Þar hafði aldrei verið Islendingur. Halldóru var vel tekið og hún fljót að átta sig á hlutunum og að samlagast skólafélögunum. Henni gekk vel námið, og hún gat innritast í Kennaraskólann næsta vetur. Eins og hún orðar það: „Móðir mín seldi jarðarparta sína, góðir vinir lánuðu peninga og faðir minn í Ameríku hljóp undir bagga. Oft var þröngt í búi. Aldrei svalt maður þó, en langan tíma tók það að losna úr skuldunum“ (Ævisagan, 77). Þá hófst námið í Kennaraskólanum, og lauk Halldóra skólanum með góðu prófi 1899. Hún var félagslvnd, og norsku skólasystkin- in buðu henni með í ferðir um norsku skógana vetur og sumur. Hún naut lífsins, hvarflaði meir að segja að henni að gerast stórbóndakona í Noregi. „En hvaða vit var í því, kunnandi ekkert sem þurfti.“ Annað kom og til, hún var „skuldum vafin“ og heim hlaut hún að fara. Á þessum tíma voru örfáir með fullgilt kennarapróf, og þegar hún sótti um stöðu við Barnaskóla Reykjavíkur, voru þar aðeins tveir með prófi, skólastjórinn Morten Hansen og Sigurður Jónsson, sem síðar varð skólastjóri. Þeir einir höfðu fastar stöður. Halldóra var ráðin upp á tímakaup þetta fyrsta ár og hóf kennslu af bjartsýni og ákveðin í að innleiða smátt og smátt ýmislegt í kennsluaðferðum, umgengni við börnin og því um líkt, sem hún áleit best hæfa hér og hún hafði kynnst í náminu í Noregi. Þetta tókst vel, börnin voru námfús, kennslan gekk vel og Halldóra ákaflega ánægð. Samstarfið við kennarana var gott. Þennan sama vetur kenndi hún einnig kristinfræði og landafræði í Kvennaskól- anum hjá Thoru Melsteð. Einnig þar beitti hún nýjum aðferðum við kennsluna, fór með stúlkurnar í landafræðitímunum og skoð- aði umhverfi bæjarins og lét þær teikna það o.fl. o.fl. Þetta var vinsælt. Kaupið var sama og í Barnaskólanum, 35 aurar á tímann. Þessi dýrð stóð ekki lengi. Halldóra var óánægð með kaupið, vildi fá fast

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.