Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Síða 40

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Síða 40
40 NANNA ÓLAFSDÓTTIR kaup eins og þeir tveir kennarar, sem höfBu kennarapróf eins og hún. Sótti því um 500 kr. árslaun, en þá tóku sig til aðrir kennarar við Barnaskóla Reykjavíkur, sem engin próf höfðu og sóttu einnig um fast starf, „þótt þeir gætu auðvitað hvergi komist annars staðar að skólum, af því að þá vantaði þau skilyrði, sem til þess þurfa, og ættu þannig á engu öðru völ.--------Hún hafði kostað sig sjálf, bláfátæk, og gat því ekki goldið skuldir sínar og lifað með móður sinni af tímakennslu við skólann. Henni var því bókstaflega bolað burtu frá skólanum.“ Þetta skrifaði Bríet Bjarnhéðinsdóttir í Kvennablaðið sitt. En Halldóra sagði starfi sínu lausu, þegar bæjarstjórnin neitaði um fast starf. „Hún komst undir eins að skóla í Noregi og hefur þar nú níu hundruð króna árslaun, með hækkun þriðja eða fjórða hvert ár,“ upplýsti Bríet ennfremur. Bríet lét ekki þar við sitja. Haustið eftir talaði hún við Sigurð Jónsson áðurnefndan. „Hann hélt prívatskóla seinni part sumars- ins, áður en barnaskólinn byrjaði, og upplýsti, að þau börn hefðu verið auðþekkt úr, sem fröken Halldóra hefði kennt, því þar hefði undirstaðan verið svo vel lögð, að þau hefðu að þekkingu jafnast á við þau börn, sem hefðu verið miklu lengra komin, þótt þau hefðu verið skemmra komin í sumum námsgreinunum, til dæmis reikn- ingi, sem henni fannst að þau ekki hefðu þroska til að fara langt í“ (Kvennablaðið 14. febrúar 1902). Eftir þessa útreið sótti Halldóra um starf í Noregi, fyrsta árið sem forfallakennari og var veitt það, en næsta ár sótti hún um fasta stöðu í Moss við Oslóarfjörðinn (staður á stærð við Reykjavík) og var veitt starfið. „Umsækjendur voru um tuttugu, svo að það þótti vel af sér vikið af útlendingi að hljóta hnossið" (Ævisagan, 98). Móðir Halldóru, frú Björg, bjó heima og beið úrslitanna. Nú kom hún til Noregs og bjuggu þær mæðgur þarna í Moss öll árin, til 1908, og undu vel hag sínum. Kennslan gekk vel, og öll varð dvölin lærdómsrík. Talsvert var um íslenska námsmenn í Noregi á þessum. tíma, einkum í Asi, á landbúnaðarháskólanum, og einnig voru íslenskir piltar í vinnu hjá bændum. Þetta fólk kom mikið í heimsókn, einkum um hátíðir. Einnig kynntust þær mæðgur ýmsum Islendingum búsettum í Noregi, svo og afkomendum síra Gísla Jónssonar, hálfbróður Jóns Espólíns, og norskum Islands- vinum o.fl. Sumarið 1908 kom í heimsókn til þeirra mæðgna í Moss Jón Þ. Björnsson frændi Halldóru frá Veðramóti, Jón þá nýútskrifaður frá Jonstrup kennaraskóla í Danmörku. Hann sagði frá lausum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.