Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Qupperneq 55
Úr bréfum til Halldóru Bjarnadóttur
Nanna Olafsdóttir bjó tilprentunar
Geirólfsstöðum (Skriðdalshr., S.-Múl.), 29. maí 1932
Bréf frá Jónínu Benediktsdóttur
Svo var það um handavinnu barnanna, sem þér báðuð okkur að
hlutast til um. Eg færði það í tal við kennarann og bað hann að hafa
áhrif á heimilin, og hafði hann áreiðanlega gert það, því til prófs
komu 25 börn og 46 sýningarmunir.
Pótti sýningin mjög lagleg, og sum börnin höfðu gert mikið, en
sum ekki neitt, svo þetta skiptist ekki hlutfallslega jafnt. Eg hef nú
skýrslu yfir þetta, ef þér kærið yður nokkuð um það svo nákvæmt.
Annars var vinnan mest úr ull, hekl og prjón, ofurlítið útsaumur,
drengirnir höfðu smíðað kassa og búið til kústahausa úr hrosshári.
Ég held mér sé óhætt að segja, að víðast hafi þessu verið vel tekið,
og vakið áhuga hjá börnunum að sýna sem mest, sum 8 ára börnin
höfðu hvað mest, enda rninnst heimtað afþeim afbóklegu námi.
(Lindarbrekku), Borgarfirði (eystra), 12.12.1935
Bréffrá Guðnýju Þorsteinsdóttur
Fröken Halldóra Bjarnadóttir.
Hvert hlýlegt orð mig hrífur nú sem hjartfólginn sólargeisli
skær,
og knýr fram virðingu, von og trú, á vingjarnlegt. hugarþel fjær
og nær.
Þessi staka ilaug mér í hug, þegar ég að kvöldi hins 11.10
meðtók eitt hefti af „Hlín“ sem gjöf frá yður, sem mér þótti mjög
vænt um að eignast, því að ég held mjög mikið upp á „Hlín“, þó að
ég hafi ekki getað eignazt nema 2 hefti önnur, og það finnst mér að