Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 56
56
ÚR BRÉFUM
hver hugsandi kvenmaður ætti að gjöra. Þessar línur eiga því að
færa yður beztu þakkir frá mér fyrir gjöfina og þá velvild frá yðar
hendi að taka þennan ritgerðarstúf minn í rit yðar.
Og til þess að sýna þakklætisvott, þá hefi ég nú skrifað sögustúf,
sem ég sendi „Hlín“, og bið yður að athuga, hvort þér viljið taka
hana. Þó þetta sé í söguformi, þá er það nú í raun og veru
raunveruleiki að mestu leyti, og ég hélt, að sumir hefðu kannski
gott af því að athuga mismuninn á mannsævinni.
Ási við Kópasker, 22. apríl 1936
Bréffrá Valgerði Sveinsdóttur
Kæra vinkona!
Hjartans þökk fyrir þitt síðasta og næstsíðasta bréf og svo
Vefnaðarbókina, sem mér þvkir mjög skemmtilegt að stúdera. Já,
mér þykir gott, að þú gerir okkur reikning fyrir símtölum, það er
eins og það á að vera, okkar félag dregur ekki um það, en þú hefur
í ótal horn að líta. Svo á ég að bera þér kæra kveðju frá félaginu
okkar, og þökk fyrir dugnaðinn við að útvega okkur stúlkuna, sem
við höldum að sé dugleg og fær í þetta; hún skrifar okkur nú, en er
ekki vel ánægð yfir að fá engar upplýsingar um staðhætti og hvað
helst hún á að kaupa af fræi og þess háttar, en nú er tíminn svo
naumur og ekki gott að koma neinu skrifi til hennar. Vonum við,
að hún hitti á það rétta. Við erum nýbúnar að halda fund á Brekku í
nýja húsinu, þar sem er þægilegt og nýmóðins, en enginn stromp-
ur eins og mitt hús. Þar var mikið skrafað og mikið drukkið af kaffi
að venju. Okkur langar á sambandsfundinn helst allar, en sá
hængur er á því, að sumar konurnar eru ekki búnar að fá mislinga,
og hér eru nú varnir, sem líklega eru þýðingarlausar, en þó
vorkunn, því fjöldi af gömlu fólki hér hefur ekki fengið þá. Ég var
kosin fulltrúi á fundinn, hvort sem ástæður levfa, að ég fari, en
mislinga hef ég fengið. Mig langar ósköp til að fara og geri það að
forfallalausu.
Nú er ég nýbúin að taka niður vefstólinn og er hann í láni,
fenginn fyrir dívanteppi á tvö heimili hér í grennd.
Við höfum ofið mikið í vetur og er ég hæst ánægð að líta yfir
vetrarvinnuna, það er rúma 100 m af efnum, svo veggteppi og
púða með gliti, mjög fallegt, gólfteppi tvö, annað með föstum
krossvefnaði út í skeiðina mína stóru, það er ansi fallegt teppi, en