Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 57

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 57
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR 57 seinlegt er það. Þrinnað togband gróft upp í hafaldagarn, hitt teppið með krókbragði. Ég var 5 vikur sjálf við þennan vefnað. Héðan annars allt gott, heilsufar ágætt sem stendur. Tíðin bara óþolandi köld ennþá. Bóndinn biður að heilsa þér. Svo kveð ég þig með bestu óskum um gott og gleðilegt sumar. 8. jan. 1937 Frá Sigurlaugu Erlendsdóttur prestfrú á Torfastöðum, Kæra frændkona Það er þá ekki unnt að neitt ávinnist, ef það er ekki með þinni aðferð. Því opt hefjeg dáðst að því jafnvægi, sem þú átt. Að berjast fyrir háum hugsjónum, og geta rólega, hlýlega, og algjörlega gremjulaust unnið að þeim ár eptir ár, þrátt fyrir allt tómlætið, seinlætið og áhugaleysið - það er ekki heiglum hent. Pað er listin, að lifa til gagns fyrir heiminn, fyrir komandi kynslóðir... Torfastöðum, 10. nóv. 1936 Kæra frændkona Jeg samgleðst þér sannarlega með það hvað allt hefur gengið vel fyrir norðan. Það hefur ekki verið lítið, sem þú hefur greitt í vinnulaun. Þetta er stór hjálp, og þó mest um vert vinnan sjálf og gleðin af henni. — En sannarlega þyrftu nú sveitakonurnar ein- hverja svona hjálp líka. Því þótt þær hafi optast nóg með að vinna á heimili sín, þá eru nú víða orðnar prjónavélar, og þær gætu unnið ofurlítið fram yfir margar hverjar. En sannleikurinn er sá, að þær hafa aldrei einn evrir handa á milli, og ganga því margs á mis, sem nauðsynlegt er. Þær eru aldrei frjálsar að neinu, því þær þurfa að biðja bónda sinn um allt. Það er margt smávegis, sem hægt væri að framkvæma til umbóta á heimilinu, ef konan hefði nokkurn tíma aura ráð sem kallað er. Við skulum taka til dæmis hina ágætu hugvekju núna í Hlín um „hlaðið“. Ég er viss um áð allar konur vildu laga hlaðið sitt. Bóndinn hefur engan tíma til þess að sinna svoleiðis „pjatti“. Efkonan heíði aura, gæti hún keypt hjálp til þess. Einn er sá hlutur sem ómissandi er á hverjum bæ, það er þvottahjallur. Bóndinn hefur engan tíma afgangs til þeirra hluta,

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.