Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 64

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 64
64 ÚR BRÉFUM Garði, 23. júlí 1940 Bréf frá Matthildi Halldórsdóttur Kæra fröken Halldóra! Þakka þér kærlega tilskrifið. Þá er nú fyrst að svara þessu um stúlkuna. Ég get ekki tekið hana núna, vil hugsa til hennar seinna. Heilsa mín er svo veil, að ég má ekki bæta við mig. Það sem mér þætti svo slæmt er það, ef ég legðist og hefði stúlku svona langt að, þá væri dýrt fyrir hana að fara heim við svo búið. Mig langar til að kenna einhverri stúlku að lita í vetur, sem hér er stutt frá, og þannig sett, að ég geti gripið til hennar, ef mér liggur á. Hef ég ekki sagt þér, að ég á von á Margréti frá Leifsstöðum núna um mánaðamótin. Vil vita, hvernig henni líkar, áður en ég tek fleiri. Þá er nú að minnast litarfyrirsagnarinnar. Ég læt ykkur frú Sigrúnu alveg ráða, hvernig þið birtið þær, bara ekki aðskilja þær eða breyta þeim. Ég vildi bara láta þig fá þær, svo að ég væri þó búin að gera það, ég skil ekki í að áhugasamar manneskjur geti ekki þreifað sig áfram eftir þeirn, en rnikið betra álít ég að hafa litaðar prufur til að fara eftir, það er svo erfitt að lýsa litarblænum með nafninu. Nú sendi ég þér tvær stuttar fyrirsagnir (uppskriftir), svo að þær eru þá alls 14. Héðan eru engar markverðar fréttir. Við erum rétt búin að missa bestu kúna okkar (unga). Tengdamóðir mín biður kærlega að heilsa þér, hún er mikið skar orðin. Svo kveð ég þig sem best með þakklæti fvrir allt gott, og óska þér alls góðs. Þín einlæg vinkona Matthildur Halldórsdóttir Það eru svo margir, sem geta haft rjúpnalauf, þess vegna fannst mér svo gott að hafa þann lit með.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.