Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Qupperneq 69
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
69
núna með þessu bréfl, sem ég ætlast til að komi í næsta árgangi, en
mig langar til að senda henni einhverja ritgerðarnefnu fyrir vorið,
ef líf og heilsa leyfir. Mikið bý ég lengi og vel að minningunum um
ferðalagið mitt langa og farsæla í sumar, og ekki síst komunni að
Teigi í Vopnafirði, þó að ég hitti ekki Guðfmnu (Erlu) frænku
mína eða mann hennar heima, var mér það óblandin ánægja að
dvelja hjá börnum hennar fjórum, sem eru ein þau skemmtileg-
ustu ungmenni, er ég hef fyrir hitt, glöð og hispurslaus, og svo
myndarleg, iðin og þrifin, að það var yndi að umgangast þau. Nú
er ég enn stödd á heimili vinkonu minnar sálugu (konunnar, sem
dó að 12. barninu) og líður vel eins og ætíð, þegar ég er við þetta
kæra starf mitt, en raunalegt er, hvað heimilin veita oft litla stoð í
fræðslustarfmu, og þó er það vorkunn, þegar öll verk safnast á
sárfáar hendur og þær orðnar lúnar og slitnar, eins og hendur
ömmunnar hérna, sem alltaf hjakkar við eldamenskuna.
Víðivöllum fremri, 9. marz 1944
Bréf frá Margréti Sigfúsdóttur
Ég var 3 nætur í „skólanum“ á Hallormsstað upp úr nýárinu og
hafði gaman af því eins og ævinlega, er ég dvel þar. Þá var nýlega
um garð genginn bruninn á Brekkusjúkrahúsi, sem ekki var hægt
að minnast nema með eftirsjá og meðlíðan til þeirra, er hlut áttu að
máli; kona læknis og dætur fóru suður til Reykjavíkur með fyrstu
ferð, þar sem hún á tvær systur búandi, en læknir hefur aðsetur sitt
á Eiðum. Þess hefur verið farið á leit við stjórnarvöldin með
almennri áskorun hér úr sveit, að byggt verði aftur yfir hann á
Brekku, en allt útlit er fyrir, að því verði ekki sinnt, og margfaldast
þá erfiðleikar okkar, sem innst búum til fjallanna, á því að ná í
læknishjálp, og ekki ólíklegt, að það yrði einhverjum að fjörtjóni
sérstaklega vegna þess, að umdæmið er allt of stórt fyrir einn
lækni. Heilbrigði hefur verið allgóð hér í vetur, engar farsóttir á
sveimi og slys engin.
Nú hætti ég að þessu sinni.
Blessað vorið birtu slær á allt, blæs þó ennþá stundum nokkuð
kalt. Sólin blíða sigrar kuldans þraut, seinna prýðir blómaskrúð-
inn laut.
Með hjartans kveðju um gleðilegt sumar og þökk fyrir allt gott.