Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Qupperneq 73
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
73
Grenjum, (Álftaneshr. Mýrasýslu), 3. maí 1950
Bréffrá Ingibjörgu (Magnúsdóttur, f. 1920)
Góða Halldóra.
Þakka innilega þitt vinsamlega bréf, svo og Hlín: hef lesið hana
mér til gamans bæði og gagns. Hún er þjóðlegri að mér íinnst en
flest önnur blöð og tímarit og vel er um þær hagnýtu leiðbeining-
ar, sem í henni eru. Okkur konunum, sem margar lifum of
einangraðar, er ekki vanþörf á góðum ráðum og nýjum hugmynd-
um varðandi okkar daglega sýsl.
Vænt þætti mér um að fá gömlu árgangana, einkum langar mig
til þess að sjá eitthvað um jurtalitun, ef þú ættir það til í gömlum
Hlínarblöðum. Langar alltaf til þess að jurtalita ofurlítið, en vantar
bæði þekkingu til þess og svo framtak og dugnað. Það hefur lengi
verið minn draumur að eignast ofið teppi úr íslensku bandi, helst
jurtalituðu, en nú eru allir hættir að vefa og ekki til vefstólar, þó að
bandið væri fyrir hendi, á bæjum. Mér fmnast þessi teppi svo
verkleg og falleg og þjóðleg. Þau eru víst hvergi á markaði.
Skeggjastöðum (N.-Múl.), 23. maí 1951
Frá Þóreyju Brynjólfsdóttur
Kæra Halldóra!
Eg sendi þér nú loksins borgunina fyrir „Hlínarárganginn“ fyrir
árið 1950 að upphæð kr. 160, 16 (sextán eintök að tölu). Ég á að
færa þér kveðju og þakklæti frá Einari Hallssyni fyrir kr. 100, sem
þú sendir í fyrra fyrir mottuna og aðra, sem enn er ekki komin til
þín, og er það mín sök, ég stólaði á ferð til Akureyrar í haust sem
leið.
Með innilegri kveðju til þín og ósk um gleðilegt sumar!
frá þinni einlægu vinkonu
Þóreyju Brynjólfsdóttur