Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Síða 75

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Síða 75
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR 75 Reykjavík, 13/11 1954 Frá Ingibjörgu Júlíusdóttur Kæra Halldóra mín, Bestu þakkir fyrir bréfið og Hlín sem kom til mín með góðum skilum, sömuleiðis fékk ég frá þér kort með þakkarávarpi fyrir afmæliskveðjuna. Eg veit ekki hvernig á því stendur að ég man ekki betur en ég sendi þér línur eftir jólin, ég fékk Hlín á aðfangadag. Eg bið þig afsökunar, Halldóra mín, og ætla ekki að láta það koma fyrir aftur. Eg fékk bréfið þitt í gær, er flutt á Sólvallagötu 34, en vinn á sama stað hjá Olíuverslun Islands B.P., byrjaði þar að vinna fyrsta júlí í fyrra sumar að laga mat fyrir skrifstofufólkið og er laus kl. fimm á daginn, á laugardögum þarf ég aðeins að láta það hafa morgunkafFi og alla helgidaga frí. Þetta væri dásamlegur vinnutími, ef ég þyrfti ekki að vinna meira, en því fer fjarri. Þar sem ég bý núna sem er í kjallaraherbergi og svolítil kompa, sem ég kalla eldhúsið mitt, en þar er enginn vaskur og ekkert vatn, en ég hef þar plötu sem ég get eldað á fyrir okkur, þegar ég er heima, en til að komast þarna inn verð ég að taka hreingerningu á fimmherbergja íbúð þrisvar í viku og það verð ég að gera, þegar ég kem heim frá vinnu. Það var ekki sem verst í sumar, á meðan Atli minn var í sveitinni, en það er erfiðara síðan hann kom heim. Það er svo mikið meira að gera hjá mér heima fyrir þegar hann er heima blessaður, það er svo mikil þjónusta sem þessir menn þurfa. Það er svo sjaldgæft að fá eins endingargóðar flíkur eins og peysuna serh þú gafst honum. Hann á hana enn og er í henni alltaf á veturna. Hann sagði líka um daginn þetta væri sú besta peysa sem hann hefði átt. Þú mátt senda mér fimm blöð til að selja, Atli ætlar að hjálpa mér að selja þau. Ég hef ekki tíma til að skrifa meira núna. Kær kveðja frá Atla. Vertu ævinlega sæl og blessuð, líði þér ætíð sem best. Þín Ingibjörg (Júlíusdóttir)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.