Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 86
86
LANDSBÓKASAFNIÐ 1988
starfi um áramótin 1987/1988, en vann áfram í tímavinnu fram til
15. október 1988, er hann varð sjötugur.
Gísli Ragnarsson var settur deildarstjóri frá áramótum í deild
erlendra rita.
Axel Kristinsson B.A. var settur bókavörður í Landsbókasafni
frá 1. nóvember.
Logi Jónsson bókbindari vann mánaðartíma á bókbandsstofu
safnsins, en síðar, eða frá 1. maí, var Ragnar Þór Einarsson ráðinn
sem bókbindari í 'A starf.
Jóna Einarsdóttir aðstoðarbókbindari lét seint á árinu vegna
heilsubrests af/2 starfi sínu í bókbandsstofunni.
Guðmundur Þórhallsson bókbindari var ráðinn á bókbandstofu
safnsins frá 1. október að telja og gegndi þar /2 starfi.
Vér þökkum þeim, er kvöddu á árinu, vel unnin störf.
AÐSÓKN Nú fer á eftir skýrsla um notkun bóka
og handrita, um lesendafjölda og tölu
lántakenda.
Fiokkur 1988
000 14 334
100 159
200 291
300 1 682
400 196
500 646
600 571
700 234
800 1 955
900 2 786
Bindi léð á lestrarsali, samtals 22 854
Handrit léð á lestrarsali 1 734
Lesendur í lestrarsölum 12 247
Utlán bóka og handrita 672
Lántakendur 164