Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 87

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 87
LANDSBÓKASAFNIÐ 1988 37 SÝNINGAR Hinn 4. september var liðin öld frá andláti Jóns Árnasonar. Var þess minnzt með sýningu á verkum hans í anddyri Safnahússins, jafnframt því sem undirritaður tók saman útvarpsdagskrá um hann og flutti ásamt Grími M. Helgasyni og Ogmundi Helgasyni á sjálfan ártíðardaginn. Þegar meginhluti bókasafns Framfarastofnunarinnar í Flatey var að ósk stjórnar hennar flutt í nóvember 1969 til Reykjavíkur og falin Landsbókasafni til vörzlu, jafnframt því sem þau handrit stofnunarinnar, sem enn voru geymd í Flatey, voru afhent Lands- bókasafni, var um það rætt, að einhvern tíma yrði, ef aðstæður leyíðu, efnt til sýningar á fáeinum gögnum stofnunarinnar úti í Flatey. Af þessu varð svo laugardaginn 6. ágúst, þegar gamla bókasafnsbyggingin í Flatey, er reist var 1864, var vígð að lokinni rækilegri viðgerð á vegum Minjaverndar. Utbúin var í Landsbóka- safni sýning á nokkrum slíkum gögnum í ljósritum, jafnframt því sem ljósprentað eintak Flateyjarbókar, er Munksgaard gaf stofn- uninni á aldarafmæli hennar 1936, var flutt vestur ásamt borði því, er Flateyingar létu á sínum tíma smíða undir það og hresst hafði verið við á vegum Landsbókasafns. Þá fól það einnig ljósmyndara safnsins, Ivari Brynjólfssyni, að gera vandaðar myndir eftir teikningu Sigurðar Guðmundssonar málara af sr. Ólafi Sívertsen og málverkum hans af þeim hjónum, Brynjólfi Benedictsen og Herdísi konu hans. Sr. Ólafur var driffjöður Framfarastofnunarinnar um sína daga, en Brynjólfur átti mestan þátt í smíði bókasafnsbyggingar- innar. Þessar þrjár myndir hanga nú uppi í byggingunni til minningar um sr. Ólaf og þau hjónin. Minjavernd efndi til ferðar út í Flatey fyrrnefndan dag, og flutti undirritaður erindi um stofnunina og bókasafn hennar við vígslu- athöfnina. í förinni var m.a. Haraldur Sigurðsson bókavörður, er á sínum tíma annaðist um flutning safns stofnunarinnar til Reykja- víkur. Landsbókasafn átti fyrir tilmæli menntamálaráðuneytisins aðild að uppsetningu sýningar mynda bæði norskra og íslenzkra lista- manna, er gerðar höfðu verið eftir verkum Snorra Sturlusonar. Sýningin tengdist heimsókn Hákonar Noregskonungs til Reyk- holts 6. september. Þess skal að lokum getið, að í seinustu Arbók láðist í kafla um sýningar árið 1987 að skýra frá sýningu í minningu tveggja alda

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.