Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 9
í slíkum tilvikum tekur Vestfjarðaleið að sér
að skipuleggja móttökuna og allar ferðir gest-
anna innan og utan Reykjavíkur.
Vestfjarðaleið er með 23 bíla af öllum
stærðum, allt frá 12 manna bílum upp í bíla
fyrir 69 manns. Rúturnar hafa verið endurnýj-
aðar jafnt og þétt og þegar keyptir eru bílar
erlendis frá er lögð áhersla á að kaupa nýja
bíla en ekki notaða. Þar við bætist að Vest-
fjarðaleið hefur á undanförnum árum byggt
þó nokkra af bílum sínum en fyrirtækið er með
verkstæði og viðhaldsdeild og sér því um allt
viðhald bílaflota síns. Einnig er kostur að
Vestfjarðaleið hefur þann húsakost að hægt
er að taka alla bíla fyrirtækisins „í hús" yfir
veturinn þegar þeir eru ekki í akstri.
MILURÁS í BÍLUNUM
Nýjung í bílum Vestfjarðaleiðar er svoköll-
uð millirás sem hefur það í för með sér að
einn leiðsögumaður getur fylgt nokkrum bílum
og þar með tryggt að allir þátttakendur í
ákveðinni ferð fái sömu leiðsögn. Sem dæmi
Rútur Vestfjarðaleiðar aka ffá álverinu í Straumsvík með starfsmenn á leið heim
að afloknum vinnudegi.
Bilar af öllum stærðum á planinu við aðalstöðvar Vestfiarðaleiðar í Sætúni.
má nefna vinsælar ferðir Jóns Böðvarssonar
með Njálunemendur sína sem farnar hafa
verið á sögustaði Njálu.
Enn ein nýjung Vestfjarðaleiðar er bíll sem
sérstaklega er ætlaður fyrir fólk í hjólastólum.
í bílinn komast 4-6 hjólastólar auk hjálpar-
fólks. Með millitengingunni, sem áður var
nefnd, er tryggt að fólkið í þessum sérbúna bil
fær sömu leiðsögn og þeir sem í öðrum bílum
sitja.
Auk hópferða með erlenda ferðamenn
annast Vestfjarðaleið akstur 300-400 starfs-
manna í Straumsvík á degi hverjum, f og úr
vinnu. Vestfjarðaleið sér einnig um akstur fyr-
ir Ferðafélag íslands allan ársins hring og loks
má nefna að fyrirtækið sinnir ýmsum skólum
á höfuðborgarsvæðinu og flytur nemendur
þeirra í rannsóknar- og lærdómsferðir og sitt-
hvað fleira.
MESTIVAXTARBRODDURINN
Jóhannes Ellertsson, eigandi Vestfjarða-
leiðar, segist um þessar mundir sjá mestan
vaxtarbroddinn í ferðaskrifstofurekstrinum
og skipulagingu ferða fyrir bæði innlenda og
erlenda ferðamenn. Hins vegar mætti hið
opinbera hlúa meira að þessari atvinnu-
grein, rekstri rútubíla, en gert hefur verið.
Nýlega hafi kílógjald, sem sett var á tíma-
bundið fyrir nokkrum árum, verið hækkað.
Fyrirtækin séu heldur ekki inni í virðisauka-
skattskerfinu og njóti þvf ekki möguleika á
inn- og útskatti eins og ýmsir í ferðaþjónustu
geri þó. Telur hann að það myndi meðal ann-
Vestfjarðaleiðarrúta leggur af stað frá
Hótel Cabin í Borgartúni með ferðahóp
á leið í skoðunarferð.
ars auðvelda mjög endurnýjun bílaflotans á
íslandi en veruleg þörf sé á því, eins og allir
viti.
Aðalbækistöðvar Vestfjarðaleiðar eru við
Sætún 4. Þar starfa 12 fastir starfsmenn yfir
vetrartímann en á sumrin eru starfsmenn
Vestfjarðaleiðar um 40 talsins.
Sætúni 4 • Reykjavík
Sími: 562 9950 • Fax: 562 9912
9