Frjáls verslun - 01.04.1998, Síða 28
fyrirtækisins. Fijáls verslun hefur engar tölur
ylir veltu Suzuki bíla á síðustu árum. Hins veg-
ar var fyrirtækið eitt fárra umboða sem skilaði
hagnaði á erfiðleikaárunum ‘90 til ‘92 og síðan
hefur vegur þess aukist. A árinu 1996 skilaði
fyrirtækið 55 milljóna króna hagnaði fyrir
skatta. Markaðshlutdeild Suzuki bíla var tæp
5% síðustu tvö árin. Ein vinsælasta gerðin af
Suzuki er Vitara jeppinn. Nú býður fyrirtækið
upp á Grand Vitare. Um árabil naut raunar
Suzuki Fox jeppinn töluverðra vinsælda hér-
lendis.
Suzuki bílar eru dæmi um lítið fyrirtæki
sem tókst að halda vel á spilunum frá ‘90 til
‘94, einhveijum erfiðustu tímum sem bílgrein-
in hefur lent í. Hagnaður fyrirtækisins minnir
á að hægt er að ná árangri í reksti án þess að
vera stór á markaði eða með mikla veltu. Það
fer einfaldlega ekki alltaf saman mikil velta og
góður hagnaður.
Nýskráning vörubíla
16 tonn og yfir - áriö 1997
Tegund Fjöldi %
Man 29 31,2
Scanía 25 26,9
Mercedes Benz 18 19,4
Volvo 16 17,2
Iveco 3 3,2
Renault 2 2,1
Samtals 93 100,0
Renault 2,1%
Iveco 3,2%
H0NDAUMB0ÐIÐ;
HARKAN SEX Á JEPPAMARKAÐNUM
Gunnar Berhard ehf., Hondaumboðið
telst til rótgróinna bílaumboða hérlendis
Honda er eitt af kunnari merkjum í bílheimin-
um og hafa Honda bílar notið virðingar hérlendis um árabil. Líkt
og Suzuki bílar er Hondaumboðið dæmi um lítið fyrirtæki sem
engu að síður er að gera ágæta hluti. Um þessar mundir nýtur
Honda jeppinn, CRV, mikilla vinsælda hérlendis. Byrjað var að
selja hann um mitt síðasta ár en engu að síður seldust af honum
146 bílar. Og sala hans hefur farið ágætlega af stað á þessu ári.
Samkvæmt ársreikningi, sem fenginn er hjá Ríkisskattstjóra, var
velta fyrirtækisins rúmar 280 milljónir á árinu ‘96 og hagnaður um
2 milljónir. Guðmundur Geir Gunnarsson hefur verið fram-
kvæmdastjóri Hondaumboðsins síðastliðin tuttugu ár. Hann er
sonur stofnanda fyrirtækisins, Gunnars Bernhard. Þeir feðgar
hafa báðir verið á kafi í rekstrinum.
JOFUR; MEÐ ÞEKKT BANDARISK MERKI
-EN MÆTT ANDSTREYMI í REKSTRI
Jöfur í Kópavogi er þekkt bílaumboð og
hefur verið starfrækt um árabil. Það er arftaki
Tékkneska bifreiðaumboðsins sem hóf inn-
flutning á Skoda frá Tékkóslóvakíu. Skodinn
var lengst af helsta merki J öfurs en síðan bætti
fyrirtækið við sig umboðum fyrir bandaríska
fyrirtækið Chrysler og ffanska fyrirtækið
Peugeot Chrysler framleiðir Cherokee jepp-
ana sem hafa notið verulegra vinsælda hér-
lendis um langt árabil. Grand Cherokee er til
dæmis vinsæll forstjórajeppi. Mestur vöxtur
hefur verið í sölu á Peugeot bílum frá Jöfri. Þá
hefur Chrysler ævinlega sína föstu kaupend-
ur. Hekla hefur tekið við Skodaumboðinu af
Jöfri og tengjast þau skipti eignaraðild
Volkswagen að Skodaverksmiðjunum erlend-
is. Framkvæmdstjóri Jöfurs er Guðmundur
Hilmarsson.
Jöfur hefur gengið í gegnum nokkrar
hremmingar á undanförnum níu árum sem
birst hafa í eigendaskiptum og uppstokkun
hjá fyrirtækinu. Einn helsti eigandi Jöfurs
núna er Guðjón Armann Jónsson lögfræð-
ingur sem kom inn í fyrirtækið fyrir
nokkrum árum. Frjálsri verslun er ekki
kunnugt um veltu Jöfurs á árinu 1996 en sam-
kvæmt ársreikningum frá Ríkisskattstjóra
reyndust árin ‘95 og ‘96 erfið hjá fyrirtækinu
og um nokkurt tap að ræða af rekstrinum.
Tapið nam um 50 milljónum árið ‘96. Jöfur
seldi svipaðan fjölda bíla á síðasta ári og árinu
‘96. Mynstrið breyttist þó í þá veru að mun
meira seldist af Peugeot - en aðeins minna af
Skoda og Chrysler. Velta Jöfurs á árunum '91
til ‘95 var á bilinu um 800 til 900 milljónir
króna með þeirri undantekningu að árið ‘92
var veltan um 580 milljónir. Þetta ár hefur far-
ið ágætlega af stað hjá Jöfri, sérstaklega í sölu
á Peugeot.
Man, Scania, Mercedes Benz og
Volvo hafa stærstu markaðshlut-
deild í flokki vörubifreiða - yfir 16
tonn.
Sa/a á sendibílum
og svonefndum VASK-bílum 1997. Tegund Fjöldi %
Volkswagen 246 27,7
Nissan 99 11,2
Ford 81 9,1
Toyota 78 8,8
Opel 69 7,8
Renault 67 7,6
Hyundai 54 6,1
Mercedes Benz 33 3,7
Mazda 26 2,9
Mitsubishi 23 2,6
Aðrir 111 12,5
Alls 887 100,0
I flokki scndibíla - og svonefhdra
VASK-bíla - trónir Volkswagen ó
toppnum.
BILABUÐ BENNA; AÐ HASLA
SÉR VÖLL Á JEPPAMARKAÐNUM
Bílabúð Benna er að hasla sér völl sem
innflytjandi jeppa. Það hóf innflutning á
Musso jeppanum árið 1996 og seldi það ár 80 jeppa. A síðasta ári
flutti fyrirtækið inn 203 jeppa af Musso og Korando. Fyrir vikið er
fyrirtækið orðið með helstu innflytjendum á jeppum til landsins. A
dögunum kynnti svo fyrirtækið, sem er í eigu Benedikts Eyjólfs-
sonar, nýjan bíl í sölu; Daewoo frá Suður-Kóreu. Fróðlegt verður að
sjá hvernig hann selst. Frjáls verslun hefur engar upplýsingar um
veltu og hagnað Bílabúðar Benna en samandreginn ársreikningur
fyrirtækisins vegna ársins ‘96 hefur ekki borist Ríkisskattstjóra.
ÍSTRAKTOR í GARÐABÆ; FIAT 0G FERRARI
Fyrirtækið Istraktor í Garðabæ er eitt minnsta bílaumboðið á
markaðnum. Það hefur umboð fyrir hina þekktu ítölsku bíla Fiat,
sem voru mjög vinsælir hér á landi á árum áður og voru mest
seldu bílarnir hérlendis á því herrans ári
1974. ístraktor tók við Fiat umboðinu
haustið 1996 af fyrirtækinu Itölskum bílum
en að því stóðu sömu menn og eiga Suzuki
bíla. Istraktor er ennfremur með umboð fyr-
ir Alfa Romeo og Lancia - og sportbílinn
Ferrari. Samkvæmt samandregnum árs-
reikningi Istraktors til Ríkisskattstjóra var
um 4 milljóna króna tap af rekstrinum á ár-
inu 1996 - en fyrirtækið fékk Fiat umboðið
þá um haustið. Veruleg söluaukning varð á
síðasta ári þannig að gera má ráð fyrir að af-
koman hafi batnað.
ístraktor var stofiiaður árið 1982 upp úr
véla- og viðgerðarverkstæði Dráttarvéla.
Fyrirtækið hefur í áraraðir verið með umboð
fyrir Iveco, vinnu-, fialla- og sendibíla, auk bíl-
krana, vinnuvéla og skíðalyfta. Páll Gísla-
son er eigandi og framkvæmdastjóri ístrakt-
ors í Garðabænum.
28