Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 36
igíus Sigfiísson, forstjóri Heklu,
segir að bílamarkaðurinn sé
loks að ná sér eftir margra ára
lægð. „Endurnýjunarþörfin er mikil því
bílafloti landsmanna hefur elst mjög og
er gamaldags, óhagstæður í rekstri og
mengar of mikið. Allar vélar í bílum
þurfa nú að standast mun strangari
kröfur yfirvalda í Evrópu, Bandaríkjun-
um og Japan. Nýjustu bílarnir menga
minna, eru sparneytnari og búnir mun
meiri öryggisbúnaði.
Árið 1998 hefur farið afar vel af stað
hjá Hekiu - og það síðasta var metár hjá
okkur. Við erum með ffábæra vöru
sem viðskiptavinir okkar hafa tekið
vel. Þar má nefna nýja Golfinn. Einnig
hefur gengið mjög vel með Mitsubishi
bílana og Passatinn. Við hlökkum til að
bjóða viðskiptavinum okkar enn fleiri
kosti og nú styttist í sölu á Skoda og
Galloper hjá okkur. Við h'tum mjög
björtum augum á þetta og næsta ár. Eg
vona að salan aukist jafnt og þétt áfram
- því að bíll á íslandi er nauðsyn en ekki
munaður.” 33
ogi Pálsson, forstjóri Toyota,
er jafnframt formaður Bíl-
greinasambandsins. „Okkur
finnst markaðurinn hafa náð neðri
mörkum eðlilegrar endurnýjunar en
bílaflotinn hefúr verið að eldast mikið
undanfarin ár. Síðustu tvö ár hefur sal-
an verið að aukast á ný og teljum við
jákvætt að sveiflur á bílamarkaðnum
virðast vera að minnka. Jafiiari end-
urnýjun fýlgir auknum stöðugleika í
efnahagslífinu. Reksturinn hjá okkur
hefúr gengið vel.
Við höfum haldið yfirburðastöðu
Toyota á markaðnum samfleytt ffá
1990; Toyota er sú einstaka tegund
sem mest selst af. Við höfum aukið
bílaúrval okkar undanfarin misseri
með mörgum nýjum gerðum bíla
sem hafa fengið mjög góðar viðtökur.
Það styrkir okkur í trúnni að Toyota
verði áfram fyrsti valkostur bílakaup-
enda.” B3
úlíus Vífill Ingvarsson er fram-
kvæmdastjóri hjá Ingvari
Helgasyni og Bílheimum.
„Það er bjart fram undan í bílainn-
flutningi. Innflutningur bíla jókst
verulega síðasta ár og líkur á að inn-
flutningur aukist enn eitthvað á þessu
ári. Menn verða þó að líta tíl þess að á
samdráttarárunum milli 1989 og 1995
var bílainnflutningur langt undir því
sem talist getur eðlileg endurnýjun á
bílaflota landsmanna.
Við erum að vonum mjög ánægðir
með okkar stöðu á markaðnum. Fyr-
irtækin okkar tvö, Ingvar Helgason
og Bílheimar, höfðu á síðastliðnu ári -
og það sem af er þessu ári - samtals
um 25% markaðshlutdeild. Það er í
sjálfu sér ekki takmark - en Ijöldi
seldra bíla gefur okkur mikla mögu-
leika tíl hagræðingar í rekstri, tíl að
veita betri þjónustu og tíl að veita
besta verð fyrir viðskiptavininn.” B3
36