Frjáls verslun - 01.04.1998, Page 37
rna Gísladóttir er framkvæmda-
stjóri Bifreiða- og landbúnaðar-
véla, B&L. „Loksins eru horfur
í bílainnflutningi góðar - enda kominn
tími til. Ætia má að heildarinnflutningur
á þessu ári verði um tólf þúsund bílar
sem gerir þó ekkert meira en að upp-
fylla 10% endurnýjunarþörf bílaflotans.
Gera má ráð íyrir að líftími hvers bíls sé
um tíu ár.
Við erum mjög ánægð með söluna
það sem af er þessu ári og erum bjart-
sýn á framhaldið. Á haustmánuðum
munum við kynna nýja tegund frá Land
Rover sem keppir í minnsta jeppa-
ílokknum - en sá heitir Freelander. Við
höfum þegar fengið allmargar fyrir-
spurnir og erum reyndar búin að selja
töluvert af fýrstu sendingunni fyrir-
fram. Mikil tímamót eru hjá okkur á ár-
inu því fimmtíu ár eru frá því að Land
Rover var fyrst framleiddur. Jeppi, sem
ber nafnið Defender, hefur nú leyst
gamla Land Roverinn af hólmi þótt í
raun sé um sama bíl að ræða hvað ytra
útlit snertir.“ Œj
Bgill Jóhannsson er fram-
kvæmdastjóri Brimborgar.
„Síðasta ár var mjög gott ár
og mikil aukning í bílasölu. Fyrstu
þrír mánuðir þessa árs benda til þess
að aukningin geti jafnvel orðið meiri á
þessu ári. Mér finnst áberandi að fólk
er bæði farið að kaupa stærri bíla með
minni vélum í auknum mæli og eins
er áberandi að fólk er farið að hugsa
mikið um öryggisbúnað bifreiðanna.
Má þar nefna verulega aukningu í
sölu á Volvo sem er mest verðlaunaði
bíll fram að þessu hvað öryggi snert-
ir.
Hjá okkur hefur einnig verið rúm-
lega þúsund prósenta söluaukning á
Daihatsu og munar þar mest um Dai-
hatsu Terios sem er nýr smájeppi.
Einnig hefur selst þrjátíu prósentum
meira af Ford bílunum hjá okkur það
sem af er þessa árs miðað við sama
tímaífyrra.” Œi
elgi Ingvarsson er einn fram-
kvæmdarstjóra Ingvars
Helgasonar. „Ingvar Helga-
son er helsti innflytjandi fólksbifreiða
það sem af er þessu ári; með um
19,3% af innfluttningi bíla fyrstu þijá
mánuðina. Þetta stafar í og með af því
að við höfum lækkað verð bíla á sama
tíma og við höfum aukið búnað
þeirra. Einnig höfum við lækkað verð
varahluta og þjónustu verulega bæði
hvað varðar Subaru og Nissan.
Við höfum tekið eftir því að við-
skiptavinir kanna verð, gæði og ör-
yggisbúnað mun betur en áður. Við
kaup á bílum fer fólk einnig rækilega
yfir lánakjör og endurkaupsverð. Það
vandar sig meira við kaupin en áður
og gerir mun meiri kröfur til bílaum-
boðanna.” 11]
37