Frjáls verslun - 01.04.1998, Qupperneq 48
Geir Hilmar Haarde er þrítugasti fjármálaráðherrann á þessari öld. Hann er
þriðji hagfræðingurinn sem gegnir starfinu. FV myndir: Geir Ólafsson.
NÆRMYND
frá 1991. Sá kallaði, sem nú hefur ver-
ið útvalinn, er Geir H. Haarde og hér
verður brugðið upp nærmynd af hon-
um. Hann er þrítugasti fjármálaráð-
herrann á þessari öld og sá þriðji í
embætti sem hefur hagfræðimennt-
un.
HRÚTURINN GEIR
Geir H. Haarde heitir reyndar fullu
nafni Geir Hilmar þótt hann noti sjald-
an fullt nafn. Geir fæddist í Reykjavík
8. apríl 1951 og er því fæddur í Hrúts-
merkinu. Þeir, sem ígrundað hafa sál-
arlíf manna út frá stöðu himintungla
við fæðingu, myndu því segja að hann
væri röskur, óþolinmóður, vinnusam-
ur og liti á lífið sem eina samfellda
hindrun til að stökkva yfir eða sigrast
á og komast í mark. Þeir myndu líka
segja að Hrúturinn værí jarðbundinn,
raunsær og órómantískur.
Geir á sama afmælisdag og tveir
þekktir frumkvöðlar í íslandssögunni.
Þennan dag árið 1836 fæddist Oddur
Y. Gíslason, prestur sem var frum-
kvöðull í slysavörnum og öryggismál-
um sjómanna, og þennan dag árið
1850 fæddist Jóhannes Nordal sem
var frumkvöðull í byggingu íshúsa á
Islandi kringum aldamótin.
Þennan dag hafa ýmsir merkir at-
burðir gerst á Islandi og réttum ijór-
um árum áður en Geir fæddist, 8. apr-
íl 1947, fóru síðustu hermennirnir frá
Islandi eftir hernám landsins í seinni
heimsstyrjöldinni.
Geir er yngstur af þremur bræðr-
ÞRITUGASTIRAÐHERRANN
Nýrfjámálaráðherra er 47 ára þingmaöur Reykvíkinga, hálfur Nordmaöur,
hagfræöingur, menntaöur iAmeríku.
argir eru kallaðir en fáir út-
valdir. Þessi þvælda tilvitnun
í ritninguna á t.d. við um starf
ráðherra. Stólarnir eru fáir en margir
vilja setjast. Margir berjast langa ævi
fyrir stól, en sitja síðan skamma stund.
Aðrir setjast snemma og sitja lengi.
Nýlega stóð Friðrik Sophusson
upp úr stól ijármálaráðherra og færði
sig um set. Friðrik hafði setið lengur
samfleytt í embætti sínu en nokkur
annar. Arftaki hans í stólnum er 47 ára
þingmaður Reykvíkinga sem setið
hefur á þingi í rúm 10 ár og gegnt
ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir flokk-
inn, s.s. verið formaður þingflokksins
um. Elstur var Bernhard bankastarfs-
maður, f. 1938, en hann lést 1962.
Næstur kom Steindór verkfræðingur,
f. 1940. Þeir, sem trúa þvi að það móti
persónuleika manna hvar í systkina-
röðinni þeir séu, segja að yngsta
systkini í hverjum hópi haldi barns-
legum eiginleikum lengur en hin.
48