Frjáls verslun - 01.04.1998, Blaðsíða 51
£ M
II s ' x i 1
Nýr ráðherra sest á rökstóla með nánustu samstarfsmönnum í ráðuneytinu. Frá vinstri: Steingrímur Ari Arason að-
stoðarmaður ráðherra, Bolli Þór Bollason skrifstofustjóri, Geir H. Haarde, Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri og Hall-
dór Árnason skrifstofustjóri (járlagaskrifstofu.
hæfileika hans verður þeim jafnan
fyrst fyrir að tala um geðprýði hans,
jákvæðni og trygglyndi. Svo virðist
sem þægilegt og rólegt viðmót hans
veki mönnum traust. Geir er sagður
gamansamur og léttlyndur, jafnlynd-
ur í daglegri umgengni og hefur t.d.
eignast vini í þingsölum þvert á
flokksbönd. Hann er sagður nákvæm-
ur og þrautseigur. Hann vinnur oft
lengi að einhverjum málum áður en
þau koma upp á yfirborðið og gefst
aldrei upp þó undirtektir séu ekki
góðar í fyrstu.
Geir er sagður íhaldssamur í betra
lagi. Hann heldur sig við það sem er
tryggt og öruggt og forðast umdeild
mál og eldfim.
Þegar deilur
koma upp í flokki
eða félögum sem
hann er í reynir
hann frekar að
miðla málum og
sigla milli fylkinga
en að skipa sér
eindregið í raðir
annars hópsins.
A sínum yngri árum þótti hann
með harðari frjálshyggjumönnum en
árin hafa eitthvað mýkt hann í þeim
efnum. Sporgöngumenn frjálshyggj-
unnar í Sjálfstæðisflokknum eru að
vonum mjög ánægðir með skipan
lians í embætti og munu vænta nokk-
SKAK OG MAT
Hann sýndi skákinni mikinn áhuga um
tíma og tefldi fyrir Hagaskóla en síöar
í þinginu við garpa eins og Albert heit-
inn Guðmundsson og Guðmund jaka.
Hann hefur stundum hnoðað saman
vísum sem er þekkt dægrastytting
þingmanna.
urs af framgöngu hans við niðurskurð
ríkisútgjalda þó að ólíklegt verði að
teljast að þess sjái stað í fyrstu fjárlög-
um hans sem jafnframt verða þau
seinustu fyrir kosningar.
SÖNGVARINN GEIR
Geir vinnur mjög mikið en er sagð-
ur skipuleggja tíma sinn vel til þess að
geta sinnt fjölskyldunni. Hann reynir
að hamla gegn holdasöfnun með
skokki, sundi og tímum í heilsurækt
en slíkt er víst meiri varnarbarátta en
markviss sókn.
Geir hefur mikinn áhuga á tónlist
og söng, tekur gjarnan lagið með fé-
lögum sínum og fer íremstur í flokki
söngmanna í
samkvæmum.
Hann starfaði
með söngsveit-
inni Fílharmóníu
á sínum yngri
árum og söng þar
bassa.
Meðal áhuga-
mála, sem Geir
hefur þó gefið sér
lítinn tíma til að stunda, má nefna
bæði skák og bridge. Hann sýndi
skákinni mikinn áhuga um tíma og
tefldi fyrir Hagaskóla en síðar í þing-
inu við ýmsa garpa. Hann á til að
hnoða saman vísum sem er þekkt
dægrastytting þingmanna.
Hann hefur einnig gripið í stang-
veiði, einkum með tengdafólki sínu
sem kynnti honum það sport.
Meðal náinna vina Geirs eru nefnd-
ir menn eins og Steindór, bróðir hans,
Steinn Jónsson læknir, sem er æsku-
vinur, og Hannes Sigurðsson, læknir í
Bandaríkjunum.
A menntaskólaárunum var Geir
hluti af fimmmenningaklíku sem hélt
mjög hópinn en auk hans skipuðu
hana Hjörleifur Kvaran borgarlög-
maður, Steinn Jónsson, læknir, Hann-
es Sigurðsson læknir og Jón Þór
Sverrisson læknir. Þessir fimm rifjuðu
upp gamla takta á 25 ára stúdentsaf-
mælinu 1996 við undirleik Þorgeirs
Astvaldssonar, skólabróður síns, og
vöktu mikla lukku. Fimmmenning-
arnir létu mynda sig saman við út-
skriftina á sínum tíma og endurtóku
svo leikinn með nákvæmlega sams-
konar uppstillingu á 25 ára útskrift-
arafmælinu. Gárungarnir sögðu
reyndar að hver þeirra hefði bætt á sig
25 kílóum milli mynda.
Þannig sýnir nærmyndin af Geir
Hilmari Haarde okkur mann sem hef-
ur margt til brunns að bera sem prýða
má stjórnmálamann. Honum má líkja
við fjallgöngumann sem lengi hefur
mænt á tindinn og er kominn í efstu
búðir. Pólitískir vindar næstu ára
munu ráða um lokaáfangann. S3
51