Frjáls verslun - 01.04.1998, Qupperneq 67
Á landinu eru 18 kaupfélög í rekstri í dag. Rekstur flestra gengur
þokkalega vel og sumra mjög vel. Fullyrða má að best gengi sé hjá þeim
félögum sem hafa tekið reksturinn í gegn, fækkað einingum og einbeitt
sér að eflingu annarra rekstrarþátta.
Kaupfélög voru flest rúmlega fimmtíu þegar best lét. Ekki er að fullu
sanngjarnt að bera þær tölur saman við tölur í dag vegna þess að viða voru
sér kaupfélög í kaupstöðum og kauptúnum sem liggja nálægt hvert öðru.
Fækkun kaupfélaga þarf ekki að þýða hnignun heldur eflingu eins og
dæmi sanna. Af starfandi kaupfélögum er KEA langstærst með um 8 þús-
und félagsmenn en Kaupfélag Bitruijarðar minnst með liðlega 30 félags-
menn.
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi
Stofnað 4. 5.1904
Kfstj: Þórir Páll Guðjónsson; lætur af
störfum í endaðan ágúst.
Kaupfélag Króksfjarðar,
Króksflarðarnesi
Stofnað 20. 4.1911
Kfstj. Sigurður R. Bjarnason
Útibú: Skálanesi og Reykhólum
Kaupfélag Arnesinga, Selfossi
Stofnað 1.11.1930
Frkvstj. Þorsteinn Pálsson
Útibú: Hveragerði, Eyrarbakka,
Stokkseyri, Þorlákshöfn, Vík, Hvols-
velli, Rauðilæk, Kirkjubæjarklaustri,
VesUnannaeyjum og Laugarvatni
Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavik
Stofnað 28.12.1898
Kfstj. Jón E. Alireðsson
Útibú: Drangsnesi
Kaupfélag Bitruflarðar, Ospakseyri
Stofnað 19.3.1942
Kfstj. Sigrún Magnúsdóttír
Kaupfélag Hrútfirðinga, Borðeyri
Stofnað 1899
Kfstj. Máni Laxdal
Útíbú: Brú
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga,
Hvammstanga
Stofnað 29. 3.1909
Kfstj. Gunnar V. Sigurðsson
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi
Stofnað 16.12.1895
Kfstj. Guðsteinn Einarsson
Útíbú: Skagaströnd
Sölufélag Austur-Húnveúiinga,.
Blönduósi
Stofnað 27. 2.1908
(sjá Kaupfélag Húnvetninga)
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
Stofnað 23. 4.1889
Kfstj. Þórólfúr Gíslason
Útíbú: Varmahlíð, Hofsósi og Ketílási
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri
Stofnað: 19.6.1886
Kfstj. Eirikur S. Jóhannsson
Útíbú: Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík,
Hrísey, Grenivík og Grímsey.
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík
Stofnað 20.2.1882
Kfstj. Þorgeir B. Hlöðversson
Útibú: Fosshóli og Laugum
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kfstj. Ingi Már Aðalsteinsson
Verslanir: Egilsstöðum,
Reyðarfirði, Seyðisfirði,
Borgarf. eystra og Eskif.
f
Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði
Stofnað 16.12.1918
Kfstj. Ólafur K Sigmarsson
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga,
Fáskrúðsiirði
Stofnað 6.8.1933
Kfstj. Gisli Jónatansson
Kaupfélag Stöðfirðinga, Stöðvarfirði >
Stofnað 14. 6.1931
Kfstj. Friðrik Karlsson /
Útíbú: Breiðdalsvík
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga,
Hornafirði
Stofnað 12.1.1920
Kfstj. Pálmi Guðmundsson
Útibú: Fagurhólsmýri, Skaftafelli og
Djúpavogi
Kaupfélag Suðurnesja, Keflavík
Stofnað 13.8.1945
Kfstj. Guðjón Stefánsson
Útibú: Ytri-Njarðvík, Sandgerði,
Hafnarfirði og ísafirði
héraði. Kaupfélagið á í nýsköpunarfyrirtæki sem heitir Element hf. sem er rafeinda- og
tölvufyrirtæki sem hefur verið í útflutningi á skynjurum. Það má nefna að í orkugeiranum
verða miklar breytingar á næstu árum og við teljum fulla ástæðu til að horfa á það sem
raunhæfan möguleika til fyrirtækjareksturs.“
Kaupfélög landsins hafa þurft að breyta starfsháttum sínum miðað við aðrar aðstæður
í þjóðfélaginu. Þórólfur er spurður um stöðu kaupfélaganna í dag og þá með tilliti til sam-
keppni.
„Ég held að þessi fyrirtæki sem önnur verði að fylgja þjóðfélagsbreytingum, vera þátt-
takendur í þeim og nýta þau tækifæri sem skapast. Varðandi kaupfélögin er íramtíðar-
spurningin um það form sem þau eru byggð á. Helstí annmarki samvinnuformsins í dag
er að fjárfestar, sem eru lífeyrissjóðir og aðrir, sem fjármagnið hafa í þessu þjóðfélagi, geta
ekki komið inn í þessi fyrirtæki. Því hafa kaupfélög ekki verið opin fyrir áhættuíjármagni
til sóknar þar sem ný tækifæri skapast. Kaupfélög hljóta að athuga hvernig hægt sé að að-
laga reksturinn til að gera hann samkeppnisfæran við hlutafélagsformið, annaðhvort með
einhveijum afbrigðum af því eða hafa reksturinn í hlutafélagi þótt eignarhaldið geti verið
blanda af samvinnufélagi og hlutafélagi. Þessi atriði hljóta að koma tíl skoðunar í nánustu
íramtíð," segir Þórólfur.
„Okkar áhersla hefur verið að hafa reksturinn tiltölulega flölbreyttan en nýta þau tæki-
færi sem gefast hveiju sinni. í framtíðinni gætum við horft á það að landbúnaður og versl-
un væri þriðjungur, sjávarútvegur þriðjungur og síðan væri ákjósanlegt að finna iðnað eða
önnur störf sem skapast vegna tæknibyltingar að 1/3 hluta.“
Eitt af því, sem Þórólfur nefnir, er að Skagaijörður er einn af þeim valkostum sem iðn-
aðarráðuneytið hefur skoðað fyrir stóriðju.
„Ég held að allir geti verið sammála um að mikilvægt sé að hafa sterkt fyrirtæki í hér-
aðinu, hvort sem það er kaupfélagið eða eitthvað annað. Sterkt og framsækið atvinnulíf er
alls staðar nauðsynlegt."
Aðspurður segist Þórólfur sjálfur vera ánægður á Sauðárkróki og sama sé að segja um
eiginkonuna, Andreu Dögg Björnsdóttur. Hún starfar sem kennari á Sauðárkróki. „Hér er
gott samfélag og Skagfirðingar llfsglaðir og duglegir. Þótt ég syngi hvorki í kór né haldi
hesta hef ég samt komist vel af með héraðsbúum,“ segir Þórólfur Gíslason. S3
ÖFLUGT í SJÁVARÚTVEGI
Kaupfélag Skagfiröinga á nokkur dótturfyrirtæki, eins og Hraðfrystihús Grundarfjarðar,
Fiskiðju Sauðárkróks, Fiskiðjuna Skagfirðing og Djúphaf. Velta samstæðunnar er yfir 5
milijarðar króna.
Gæðahirslur á góðu verði.
Fagleg ráðgjöf og þjónusta.
(H^Ofnasiniðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
67