Frjáls verslun - 01.07.1998, Page 36
HvalJjarðargöngunum hefur verið frábœrlega vel tekið og áhrifþeirra verða
líklegast víðtœkari en gert var ráð fyrir.
Göngin hleypa nýju lífi í byggð og ferðaþjónustu á Vesturlandi. Þetta eru göng
sem ganga upp - bœði landfræðilega og jjárhagslega!
0fdr að Halldór Blöndal klippti á
borðann og umferð var opnuð um
Hvalfjarðargöngin þann 11 júlí sl.
hefúr umferð um Akranes, Borgarfjörð og
Snæfellsnes stóraukist. Þótt nýjabrumið sé
smám saman að mást af göngunum er ljóst
að þau hafa fengið frábærar viðtökur og
munu hleypa nýju lífi í byggð og ferða-
þjónustu á Vesturlandi. Efnahagsleg áhrif
ganganna verða enn ekki metin í tölum en
við blasir að þau verða
mikil. Vestlendingar eiga
ýmsa möguleika á að nýta
sér aukna nálægð við
höfuðborgina - en vissu-
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
lega geta göngin einnig haft neikvæð efna-
hagsleg áhrif á sumum sviðum. Akstur um
göngin frá Reykjavík til Borgarfjarðar,
Vestfjarða og Norðurlands spara kostnað
sem nemur um 42 kílómetra akstri. Akstur
um göngin til Akraness og nærsveita spara
kostnað sem nemur um 60 kílómetra
akstri. A móti koma svo vegtollarnir en
þeir greiða upp þetta 4,6 milljarða króna
mannvirki.
A nálægum stöðum,
eins og á Akranesi og í
Borgarnesi, hefúr fólk tekið
eftir umtalsverðri aukningu
gesta í sumar og hyggst í
framhaldi af því vinna markvisst að eflingu
ferðaþjónustu í kjölfar bættra samgangna.
Snæfellingar hugsa sér einnig gott til glóð-
arinnar þar sem fólk er farið að beina
sunnudagsrúntinum til þeirra í stað þess
að fara Gullna hringinn austur. Allir ætla
að beijast um bita af kökunni og mikið er
lagt í sölurnar. A Akranesi og í Borgar-
byggð hafa verið starfandi verkefnishópar
þar sem unnið var að stefnumótun í bæjar-
félögunum. í Snæfellsbyggð starfar einnig
hópur sem vinnur að því að laða þangað
fleira fólk.
Ekki er endanlega búið að gera upp
kostnaðinn við Hvalljarðargöngin en
TEXTI:
Eva Magnúsdóttir
36