Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.07.1998, Blaðsíða 37
Göngin, sem kostuðu rúma 4,6 milljarða, greiðast upp á átján árum og verða vegatollar við Hvalfjarðargöngin innheimtir þann tíma. Að því loknu gefur Sþölur íslenska ríkinu göngin. SKAGAMENN FAGNA „Mikill meirihluti bæjarbúa er sannfærður um að Akranesbær hagnist á göngunum.” samningsverð þeirra var 4,6 milljarðar. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar ehf, segist reikna með að kostnaður við þau verði um tíu prósentum hærri en samningsverðið. Gísli segir þau eiga að greiðast upp á átján árum. Þegar göngin verða að fullu upp greidd mun Spölur ehf færa íslenska ríkinu þau að gjöf. Að sögn Gísla væri það ekki vel liðið ef vegatollarn- ir yrðu áfram eftír að ríkið tekur við göng- unum. „Það er okkar meining að tollurinn falli niður. Fólk getur sætt sig við veggjald- ið á meðan verið er að fjármagna fram- kvæmdina en ekki þegar þau eru orðin hluti af vegakerfi landsins,” segir Gísli. í frétt í DV þann 18. ágúst síðastliðinn var þvi haldið fram að ef umferðin yrði áfram jafn mikil og tyrsta mánuðinn væri mögu- legt að greiða göngin upp á sex árum. Gísli segir þetta Ijarstæðu þar sem umferð um göngin eigi eftír að detta niður og ekki sé hægt að reikna meðaltalsumferð eingöngu út frá sumarmánuði þegar umferð sé í há- marki. Auk þess var frítt í göngin fyrstu tíu dagana. BYLTING í SAMGÖNGUHÁTTUM I upphafi umræðnanna um Hvalfjarðar- göng var gerð greinargerð á vegum Byggðastofnunar um hugsanleg áhrif ganganna á nágrenni þeirra. Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróun- arsviðs, tók þátt í þeirri greinargerð auk verkefna á vegum Akranesbæjar og Borgarbyggðar. Hann hefur komið að málinu úr mörgum áttum og hefur velt fyrir sér bæði jákvæðum og neikvæð- um áhrifum ganganna. Sigurður starfar nú sem sérfræðingur hjá Þjóðhags- stofnun. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, segir að bæjarstjórnin hafi talsvert velt vöngum yfir því hver áhrif- in yrðu á Akranes. Hann segir svæðið norðan Hvalíjarðar verða talsvert meira spennandi en áður. Það opni möguleika fyrir smærri og stærri iðn- að. Tilkoma álversins sé að hluta til tengd Hvalfjarðargöngunum. Það var ein af forsendunum fyrir því að álver- inu var valinn þarna staður. „Flæði vinnuafls verður meira í báðar áttír og ljóst er að göngin geta haft jákvæð áhrif á ýmsa þjónustu hérna. Við horfum einnig tíl þess að skóla- málin verði auðveldari. Ekki síst að íbúar á Akranesi geta með auðveldari hættí en áður sótt skóla á höfuðborgarsvæðinu. Reyndin hefúr því miður oft verið sú að fólk hefur flutt héðan tímabundið eða al- veg,” segir Gísli. Gísli segir að göngin ein og sér valdi talsverðri byltingu í samgönguháttum. Fólk ferðist áreiðanlega meira frá höfuðborgar- svæðinu en áður og frá Akranesi og Borgar- byggð tíl Reykjavíkur. Gísli segir að fyrst eftír að göngin voru opnuð hafi gríðarlegur straumur ferðamanna legið á Akranes og nágrenni og hafi það skilað einhveijum tekj- um til bæjarins. Hann segir að það sé samt mjög erfitt að henda reiður á fjölda ferða- mannanna. Spurningin sé hins vegar hvernig framhaldið verði. Hann býst við að ekki sjáist hvernig umferðardreifingin sé fyrr en fer að vora. Á meðan er tíminn nýtt- ur tíl hins ýtrasta og nýrra leiða leitað. „Við reynum markvisst að fjölga því sem dregur ferðamenn að. Við höfum komið upp listasafiii og steinasafni auk byggðasafnsins sem var hér fyrir. Einnig er verið að byggja 18 holu golívöll. Það er grundvallaratriði fyrir okkur ef við ætlum að fá ferðamenn til okkar að hafa tíl þess aðdráttarafl. Akranes hefúr frekar verið staður sem fólk hefur farið í gegnum en við ætlum að breyta því. Þetta er fyrst og fremst tæki- færi sem mikilvægt er að fólk nýtí sér. Það verður best gert með frumkvæði þeirra sem búa á svæðinu. Menn höfðu tíl að byrja með áhyggjur af því að verslunin hér gætí lent í vandræðum. Fyrstu áhrifin eru þau að ekki sé ástæða tíl þess að hafa áhyggjur af því á meðan kaupmenn grípa til aðgerða. Þeir hafa brugðist við með því að auglýsa vel. Menn vonast auk þess til að ná 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.