Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1998, Page 46

Frjáls verslun - 01.07.1998, Page 46
IÞROTTIR OG UTILIF tívist, íjallgöngur og íslensk náttúra eru í tísku á Islandi. A síðustu 6-8 árum hefur hópur þeirra sem leita á vit óbyggðanna í frí- stundum sínum margfaldast. Það er liðin tíð að það séu einungis veður- bitnir harðjaxlar í hnébuxum og anorökkum sem klífa ijöll. I dag eru útivist og útilegur fjölskyldusport, heilu saumaklúbbarnir ganga Laugaveginn svokallaða milli Landmannalauga og Þórs- merkur og sá er varla maður með mönnum sem ekki hefur þrammað um Hornstrandir þverar og endi- langar. Vinnustaða- hópar klífa Hvanna- dalshnúk eins og ekkert sé og kynslóðirnar samein- ast á Esjudeginum árlega. Laugavegurinn, sem er vinsælast- ur gönguleiða, hefur dregið tíl sín um 2000 manns árlega. LÍFSSTÍLSBREYTINGAR Fjallgöngur eru aðeins hluti af þeirri lífsstílsbreytingu sem orðið hef- ur. Líkamsrækt, gönguferðir, hjólreið- ar, skokk og margvísleg önnur hugð- arefni eru orðin ríkari þáttur í lífi fólks en áður var. Gönguhópar, litlir ferða- hópar og skokkhópar eru áreiðanlega að verða hlutí af lífi flestra Islendinga. Stöðugt fleiri tómstundir íjölskyld- unnar fara í eitthvað sem tengist hreyf- ingu, útivist eða íþróttum. Pabbi og mamma eru saman í golfi og skokkhóp. Þau gengu bæði Laugaveg- inn í fyrra, hann með vinnufélögunum, hún með saumaklúbbnum. Þau skiptast á um að fara út með hundinn, stundum gangandi, stundum á hjólinu. Börnin æfa skíði og sund og foreldrarnir fara með þeim á skíði á veturna. Pabbi fer á svigskíði og mamma á gönguskíði. Öll íjölskyldan fór saman á Esjudaginn í fyrra og pabbi hefði farið í Esjuhlaupið en gömlu fótboltameiðslin komu í veg fyrir það. Fyrir utan ákveðna vitundar- vakningu sem orðið hefur í þessum efiium eru fleiri þættir sem stuðla að stærri markaði fyrir útivistarfólk. Miklar tækni- framfarir hafa orðið í gerð fatnaðar og hvers kyns búnaðar með tilkomu öndunarefna og sértækra gerviefna sem hafa miðað að því að gera föt og búnað léttari, meðfærilegri og skil- virkari. Þetta fer einnig saman við stóraukna jeppaeign íslendinga síð- ustu ár og aukin ferðalög í kjölfarið. Það hefur aftur leitt til þess að Islend- ingar ferðast meira um sitt eigið land og nota til þess lengri tíma af árinu en áður þekktíst. Sem dæmi um þessa þróun má taka gönguskó. Fyrir um það bil 10 árum átti enginn gönguskó nema harðsviruðustu íjallarefir. I dag eiga allir gönguskó og þeir eru tískuvara sem kemur með nýja línu árlega. Þessi lífsstílsbreyting kemur einn- ig fram í stóraukinni þátttöku í al- menningshlaupum og slíkum viðburðum þar sem almenningi gefst kostur á að njóta hreyf- ingar og útivistar. TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson TRIMMAÐ FYRIR TVO Islendingar eyöa um 2.000 milljónum árlega í vörursem tengjast íþróttum, í vexti og taka breytingum með nýjum MYNDIR: GEIR 0LAFSS0N 46

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.