Frjáls verslun - 01.07.1998, Side 55
viðskiptavini, forstjóra og birgja: „Við-
skipti eru striðsátök, ég hef enga trú á
málamiðlunum. Eg hef trú á því að sigra!“
Hann sýndi líka og sannaði að það gat
hann. 1983 varð hagnaður af rekstrinum 88
milljónir Bandaríkjadala. Síðar dró hann
sig í hlé eftir slaginn því breytingarnar voru
örar og hann átti við ofurefli að etja. Nú
ávaxtar hann sitt pund en er hættur störf-
um. Hann á aðeins eitt hús í stað fjögurra
áður. Jack og kona hans búa í Monte Ser-
eno í Kaliforníu og í bílskúrnum eru tveir
bílar, báðir af gerðinni Rolls Royce — sem
er munaður sem Jack Tramiel hefur verið
veikur fyrir frá því hann komst í álnir. SH
Qtnrlriir
ry • . f/.
oigi Ziemrig
efnarannsóknir, þ.e. með efhi sem gat greint hvort lyfja eða hormóna
hefði verið neytt. Hann tefldi djarft til að ná markmiði um ágóða, því
fjármagn var af skornum skammti. Bragðið tókst og vel gekk. Honum
og meðeiganda hans samdi ekki sem skyldi, svo Sigi keypti hans hlut
og eiginkona hans gerðist meðeigandi og markaðsstjóri. Nú eru þau
hjón með ijórtán hundruð manns í vinnu hjá fyrirtæki sínu, Diagnost-
ic Products Corporation. Fyrirtækið selur talsvert af vöru erlendis og
hafa þau hjónin meðal annars ferðast töluvert til Þýskalands. Jú hann
segir erfltt að koma þangað aftur, en hann telur það þó enn erfiðara
fyrir unga Þjóðveija sem hann hittir, þegar þeir átta sig á hvað hann
hefúr gengið í gegnum.
Eiginkona hans segir Sigi hugmyndaríkan og þolinmóðan í fyrir-
tækjarekstrinum en hann taki áhættu þegar þörf sé á þvf. Sjálfur seg-
ist hann vinnuhólisti, og veltir fyrir sér hvers vegna. Ef til vill hafi
reynslan af helförinni þar sitt að segja: „Ef þú varst ekki vinnusamur
þá var það gasklefinn!" BD
Sigi Ziering var
11 ára þegar
stríðið skall á.
Hann kom ekki
blásnauður til
Bandaríkjanna.
Hann auðgaðist
meðal annars á
efna-
rannsóknum.
Sigi Ziering, eins og hinir Gyðingarnir fjórir sem við höf-
um heyrt um, fékk sinn skerf af erfiðleikum og harðræði á
meðan seinni heimsstyijöldin stóð yfir. Sigi Ziering eða Sieg-
fried, eins og hann heitir réttu nafni, bjó í Kassel í Þýskalandi
ásamt fjölskyldu sinni. Faðir hans var pólskur ríkisborgari,
vefnaðarvörukaupmaður. Hann flúði til Bretlands 1939 og
áttu kona hans og tveir synir, Sigi þá 11 ára og bróðir hans 12
ára að koma á eftir honum. Það varð ekki. Þau fengu ekki
vegabréfsáritun til að komast úr landi. Mæðginin sultu nánast
heilu hungri en 1941 var þeim, ásamt um eitt þúsund öðrum
Gyðingum, smalað saman og þau flutt til Riga i Lettlandi þar
sem þeim var komið fyrir í Gyðingahverfi. Sumir voru þó
sendir beint í nærliggjandi útrýmingarbúðir.
Reyndar gengu bræðurnir í skóla um tima í Riga, en móð-
ir þeirra vildi að Þjóðveijar teldu þá gera gagn og lét þá fara
að vinna. Sigi fékk vinnu á fiskmarkaði og tókst að smygla
mat til síns fólks. Þegar hann var að laumast heim með fisk-
inn sá hann stundum Gyðinga sem höfðu verið líflátnir fyrir
að stela mat og hengdir upp úti á götum, öðrum til viðvörun-
ar. Seinna voru mæðginin flutt í fangelsi í útjaðri Hamborgar.
Vistin þar var heldur skárri. Vikulega voru þó átta til tíu Gyð-
ingar settir á vagn, og farið með þá til Bergen-Belsen til að “út-
rýma” þeim. „Verðirnir gerðu þetta af þýskri nákvæmni,“ seg-
ir Sigi, og náðu aldrei að Z i stafrófinu. Reyndar heldur hann
því iram að SS hafi reynt að halda lífi í einhveijum hluta Gyð-
inganna til að nauðsyn væri að gæta þeirra. Þar með yrðu
verðirnir ekki sendir í fremstu víglínu. Ziering-fjölskyldan var
seinna flutt í aðrar útrýmingarbúðir en 1. maí 1945 flutti Rauði
krossinn mæðginin til Svíþjóðar. Leiðin lá um Kaupmanna-
höfn og þegar þangað var komið heyrði Sigi hrópað á einni
lestarstöðinni: „Hitler er dauður!"
Fjölskyldan sameinaðist á ný í Lundúnum. Sigi var þá 17
ára. Faðir hans var orðinn gimsteinasali og átti velgengni að
fagna. Arið 1949 flutti fjölskyldan til Bandarikjanna. Sigi tók
háskólapróf í efnafræði við Brooklyn háskóla og lauk fram-
haldsnámi ffá Syracuse háskóla. Hann fór út í viðskipti, sumt
gekk vel en annað miður. Seinna stofnaði hann fyrirtæki um
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
á öllum sviðum
Nlá bjóða
þér áskrift?
55