Frjáls verslun - 01.04.1999, Síða 23
FORSÍÐUGREIN
aöfnum. í þessu samstarfi er Nóatún gríðarlega
traust vörumerki sem verður áfram á sínum stað á
markaðnum.“
Sterkir í kjötinu Eitt af því sem Nóatún hefur alltaf
lagt mikla áherslu á er að veita góða þjónustu varð-
andi kjöt. Nóatún rekur eigin kjötvinnslu og verk-
smiðju í nýlegu 1400 fermetra eigin húsnæði í Faxa-
feni þar sem allar kjötvörur fyrir verslanirnar eru
unnar. Mun þessi sérstaða ekki haldast við breyttar
aðstæður?
„Þetta hefur alltaf verið okkar styrkur og verður
áfram. Við leggjum áherslu á gæði og fagmennsku í
þessu sambandi. Þetta geta ekki allir keppinautar
okkar því það að hafa gott kjötborð kostar mikla
vinnu og dýran, faglærðan vinnukraft," segir Jón Þor-
steinn, markaðsstjóri Nóatúns, sem er jafnframt
lærður matreiðslumaður.
„Við höfum náð gríðarlega sterkri stöðu á þessu
sviði. Eftir uppstokkun undanfarinna ára lítum við á
Nýkaup sem okkar helsta keppinaut í þessum efiium.
Þarna verður að leggja höfuðáherslu á gæðin. Ef þau
eru ekki í lagi þá kemur það í bakið á mönnum.“
Styrkur Nóatúns á þessu sérsviði sést best á því
að fyrir ijórum árum hóf fyrirtækið framleiðslu á
hamborgarhryggjum undir sinu eigin vörumerki og
er í dag stærsti framleiðandi á höfuðborgarsvæðinu.
Kjötvinnsla félagsins velur þá framleiðendur sem eru
með bestu framleiðsluna og skiptir beint við þá.
„Við teljum að með því að eiga okkar eigin kjöt-
vinnslu vinnum við gegn fákeppni og verðhækkun-
um á þeim markaði."
Ekki vera báðum megin við borðið En með rekstrí
á sinni eigin verksmiðjuvinnslu, hefur Nóatúnsmönn-
um aldrei dottið í hug að eignast ítök á framleiðslu-
stiginu líka og heíja búrekstur?
„Það hefur hingað til verið álit okkar að þessu eigi
að halda aðskildu. Það sem gerði Sláturfélagsmönn-
um erfitt fyrir á sínum tíma var að sitja báðum megin
við borðið í þessum efnum. Við teljum að það hafi
verið rétt ákvörðun hjá þeim að einbeita sér að fram-
leiðslustiginu eingöngu. Hitt er svo annað mál að
þegar fyrirtæki eru komin á markað, eins og við
stefnum að, þá er auðvitað ekkert sem hindrar fram-
leiðendur í því að kaupa sér hlut í t.d. Kaupási ef þeim
finnst það fysilegur kostur.“
Um tíma á sjöunda áratugnum átti Nóatún í félagi
við aðra sláturhús í Borg í Grímsnesi og Vík í Mýrdal
og rak í nokkur ár.
„Þetta var fyrst og fremst til þess að tryggja að
verslanir okkar fengju kjöt en þá gat verið mjög erfitt
að fá lambakjöt, sérstaklega seinni hluta sumars.
Þetta stóð sem betur fer stutt,“ segir Jón.
Sagan um Bónus mun ekki endurtaka sig Með tilurð
Kaupáss er ljóst að keðjumyndun á matvörumarkaðn-
um á Suðvesturhorninu verður enn skýrari. Jóhannes
Jónsson, keppinautur ykkar, kenndur við Bónus, hef-
ur lýst því hvernig honum tókst að koma undir sig fótunum í upphafi vegna
þess að enginn trúði því að þetta myndi ganga. Þess vegna brugðust keppinaut-
arnir ekki við og gerðu honum kleift að koma sér fyrir í því tómarúmi sem
myndast hafði á markaðnum. Er ekki hætta á að slíkt tómarúm myndist og fljót-
lega stofni einhver nýjan „Bónus“ til að keppa við stóru keðjurnar?
„Það er auðvitað alveg ljóst að ákveðinn hluti kaupenda vill versla nær ein-
göngu í lágverðsmörkuðum og erlendis hafa þeir oft um 15 - 20% markaðs-
hlutdeild. Það eru allt aðrar aðstæður á markaðnum nú en voru fyrir 10 árum
þegar Bónus var stofnaður. í skipuriti Kaupáss er gert ráð fyrir stofnun lág-
verðsmarkaðar og það munum við gera ef okkur finnst ástæða til þess og
hentug staðsetning finnst," segir Einar Örn Jónsson, stjórnarformaður
Kaupáss.
„Við munum ekki gefa neinum kost á að koma sér fyrir á markaðnum með
líkum hætti og gerðist fyrir 10 árum.“
Góðir keppinautar á markaðnum Þeir Nóatúnsfeðgar telja að þótt talsverðar
sviptingar hafi verið á matvörumarkaðnum undanfarin ár þá sé markaðurinn
þrátt fyrir allt kominn í ákveðið jaínvægi.
„í dag er mjög gott að keppa við þær keðjur sem eru á markaðnum,“ segir
Jón Þorsteinn.
„Þetta eru allt traustir og ábyrgir aðilar. Það er betra fyrir okkur heldur en
Öryggisskáparnir frá Rosengrens
enj traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem eru í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
23