Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1999, Síða 26

Frjáls verslun - 01.04.1999, Síða 26
RITARAR 0 Jón Arni Rúnarsson, skólastjóri Viðskiþta- og tölvuháskólans, segir að einkaritarinn hafi allt annað hlutverk en fyrir tíu árum. Ritararséu að verða fremur aðstoðarmenn forstjóra — sem létta á störfum forstjórans — en hefðbundnir ritarar. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. Yfirmenn eru að klóna sjálfa sig / Jón Arni Rúnarsson, skólastjóri Vidskiþta- og tölvu- skólans, segir aö skólinn byrji næsta haust meö nýtt átta mánaöa nám sem heitir„ritari yfirstjórnarJ g tel að sá sem er ritari eða einka- ritari verði að laga sig að starfs- umhverfi þess fyrirtækis sem hann starfar hjá og því markmiði sem fyr- irtækið stefnir að. I framtíðinni verður rit- arinn miklu mikilvægari framkvæmda- stjórum og forstjórum en hann var fyrir tíu árum. Eftir að hafa skoðað vinnumarkað- inn hefur Viðskipta- og tölvuskólinn ákveð- ið að bjóða upp á nýtt nám næsta haust sem heita mun ritari yfirstjórnar. Það end- urspeglar kannski störf ritara og einkarit- ara í dag,“ segir Jón Arni Rúnarsson. Þarf að kunna meira Viðskipta- og tölvu- skólinn hefur starfað í 25 ár og rekur upp- haf sitt til Ritaraskólans og Einkaritara- skólans. Jón Arni segir að hlutverk einka- ritarans hafi breyst mikið frá því sem áður var. Þarfir fyrirtækja eru misjafnar og þar skiptir mestu hvers eðlis fyrirtæki eru, hversu marga starfsmenn þau hafa, hvort þau eru á markaðssviði og svo framvegis. Jón segir að ritari yfirstjórnar muni fyrst og fremst verða aðstoðarmaður fram- kvæmdastjóra eða forstjóra, sjá um skýrslugerð, áætlanagerð og gerð kynn- ingarefnis, ritun fundargerða og undirbún- ing fyrir fundi. Ritarinn þekkir vel innviði fyrirtækisins og getur að hluta til tekið á starfsmannamálum. Er þá ekld einkaritarinn, sem áður vél- ritaði upp af segulbandi, nánast kominn með titilinn aðstoðarmaður forstjóra? „Þeir sem ráða sér ritara nú á dögum ráða ritara með allt öðrum formerkjum en þeir gerðu fyrir tíu árum. Ritarinn þarf að kunna miklu meira en hann gerði. Eg held því fram að þegar forstjórar eða fram- kvæmdastjórar ráða sér ritara núna séu þeir að hluta tíl að klóna sjálfa sig. Þeir komast ekki yfir öll verkefni og vilja láta þau í hendurnar á öðrum sem geta fullunn- ið þau. Það er hreinlega verið að nýta tima yfirmannsins betur með því að hafa góðan ritara eða einkaritara, sem ég kalla ritara yfirstjórnar. Þetta er mjög sérhæft og veigamikið starf.“ Lesa hugsanir Hvernig samband á að vera á milli forstjóra og ritara hans? „Þessir aðilar þurfa að vinna mikið sam- an. Það á sér stað flutningur á verkefnum milli þeirra. Þau vinna kannski ekki hlið við hlið í fjórar stundir á dag heldur þarf ritari yfirstjórnar að þekkja hvers konar skoðanir og stefnu forstjóri eða fram- kvæmdastjóri hefur varðandi fyrirtækið og það sem þarf að senda frá fyrirtækinu. Það má segja að samstarf þeirra á milli gangi út á að lesa hugsanir hvort annars. Spurning- in er hvaða verkefni forstjórinn eða fram- kvæmdastjórinn hefur á sinni könnu. Ritari yfirstjórnar á að endurspegla það,“ segir hann. Viðskipta- og tölvuskólinn mun aðeins taka 15 einstaklinga í nám til „ritara yfir- stjórnar'* því ekki getur hver sem er starfað í svona umhverfi. „Það þarf að vera veru- legur áhugi fyrir hendi, kunnátta og veru- leg húsbóndahollusta gagnvart fyrirtæk- inú,“ segir hann og telur að ritari yfirstjórn- ar verði hálaunaður í framtíðinni og að bæði karlar og konur muni gegna því hlut- verki. „Það styrkir kannski þá kenningu að þetta sé aðstoðarmaður forstjóra." ffi] Aðstoðarmenn forstjóra fremur en hefðbundnir ritarar „Forstjórar eða framkvæmdastjórar komast ekki yfir öll verkefní og vilja láta liau í hendurnar á öðrum sem geta fullunnið hau, t.d. ritara. Með því að hafa gúðan ritara eða einkaritara, sem ég kalla „ritara yfirstjórnar“, er verið að nýta tima yfirmannsins betur. Ritarastarfið er því að verða mjög sérhæft og veigamikið starf." 26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.