Frjáls verslun - 01.04.1999, Qupperneq 42
Frá tökum á Toyota Avensis auglýsingunni þar sem umhverfið
var þemað.
Rúnar Hreinsson, framkvæmdastjóri hjá SAGA-FILM, ásamt hinum þekkta
sænska kvikmyndatökumanni, Sven Nykvist.
einstökum verkefnum, allt fagfólk með
mikla reynslu og metnað í faginu, við höf-
um alltaf verið lánsöm með okkar fólk
enda er hópurinn eins og ein stór fjöl-
skylda. Fyrirtækið setur metnað sinn í að
vinna verk þau sem það tekur að sér frá A
til Ö, hvort sem það eru auglýsingar eða
kvikmyndir, enda er Saga Film mjög vel
búið af hvers konar tækjum og aðstöðu til
úrvinnslu og er öll aðstaða fýrir hendi und-
ir einu þaki, sem er nokkuð sérstakt, ekki
bara hér á landi heldur líka í nágranna-
löndum okkar.“
legt við fyrirtæki sem kaupa inn vörur og
selja aftur.
Enginn einn þáttur í starfseminni á
meiri þátt í veltuaukningunni en annar —
nema ef vera skyldi þjónustan við erlend
kvikmyndaiýrirtæki og innlenda dagskrár-
gerðin.
myndafyrirtækjum. Það samstarf varð
happadijúgt og eftir það fór boltinn að rúlla
og hefur ekki stöðvaðst síðan. En það
gengur ekki þrautalaust fyrir sig að laða er-
lenda kvikmyndagerðarmenn hingað;
mörg lönd keppast um að fá til sín erlenda
kvikmyndagerð, bæði varðandi auglýsing-
Sjónvarpsauglýsingar eru kjölfestan
Sjónvarpsauglýsingar hafa alltaf verið kjölfesta fyrirtækisins og gert pað að
verkum að það hefur getað leyft sér ýmis ævintýri sem kannski hafa ekki
alltaf gefið mikið af sér — annað en reynsluna og ef til vill útrásina fyrir
sköpunargleðina.
Kjölfestan Sjónvarpsauglýsingar hafa
alltaf verið kjölfesta fyrirtækisins og gert
það að verkum að það hefur getað leyft sér
ýmis ævintýri sem kannski hafa ekki alltaf
gefið mikið af sér, annað en reynsluna og
ef tíl vill útrás fyrir sköpunargleðina. Velta
fyrirtækisins hefur farið vaxandi og var
árið 1998 um 352 milljónir á mótí um 248
milljónum árið áður. Þetta er velta sem
byggist á virðisauka því eingöngu er um að
ræða sölu á þjónustu eða vöru sem verður
að stórum hluta til innan veggja fyr-
irtækisins og
því ekki sambæri
James Bond í Lóninu „Við höfum frá upp-
hafi lagt okkur fram við það að þjóna er-
lendum fyrirtækjum sem hingað hafa vilj-
að koma,“ segir Jón Þór. Hann hefur gam-
an af að rifja upp sögu fyrirtækisins og
virðist dálítíð hissa á því hversu tíminn hef-
ur flogið frá því það var stofnað. James
Bond myndin, A view to a kill, kom okkur,
þ.e.a.s. fyrirtækinu og Is-
landi, á kortíð hjá er-
lendum kvik-
Teikningar af kvikmyndaverinu, sem verður í Borgarholtslandinu — skammt frá Iðntækni-
stofnun og Korpúlfsstöðum. Litirnir eru Frjálsrar verslunar.
ar og kvikmyndir. Þetta er mjög atvinnu-
skapandi, góð búbót og ekki síst mikil
landkynning. Það skyldu menn ekki van-
meta!“
Fallegt lanðslag er ekki nóg „Við höfum
§árfest mikið í að kynna landið sem fysi-
legan tökustað á undanförnum árum og oft
á tíðum verið einir um alla þá kynningu. I
dag erum við hjá Saga Film að njóta þess
auk ýmissa annara fyrirtækja sem stofnuð
hafa verið tíl að veita þessa þjónustu. Hrað-
ar framfarir hafa átt sér stað í gerð sjón-
varpsauglýsinga á Islandi síðustu ár og ég
þori að fullyrða að þær eru að verulegu
leyti tilkomnar vegna samvinnu íslenskra
kvikmyndagerðarmanna við erlenda aug-
lýsinga- og kvikmyndagerðarmenn. Þess
vegna finnst mér að hrósa megi rikisstjórn-
inni fyrir hversu hratt hún brást við þegar
til stóð að setja lög sem kveða á um endur-
greiðslu tíl kvikmyndagerðar, hvort sem
hún er unnin af erlendum fyrirtækjum eða
íslenskum. Þetta þýðir einfaldlega það að
nú höfum við einhveija möguleika á að
keppa við önnur lönd sem bjóða gull og
græna skóga. Það er ekkert sem segir að
Island sé endilega betra en önnur lönd tíl
kvikmyndatöku. Fallegt landslag er víða
og oft á tíðum fara tökur fram að stórum
hluta innan dyra í kvikmyndaveri og gildir
42