Frjáls verslun - 01.04.1999, Qupperneq 70
Jón með forstöðumönnum þeirra þriggja sviða sem Húsasmiðjunni er skiþt uþþ í. Frá vinstri: Stefán Árni Einarsson innkauþastjóri, Auður
Harðardóttir fjármálastjóri, Jón, og Bogi Þór Siguroddsson, sölu- og markaðsstjóri.
BÚSkapur í borginni Þegar ég spyr Jón
hvenær hann hafi hafið störf hjá fyrirtæk-
inu verður það sama upp á teningnum. Á
hann að telja frá því að hann byrjaði að
vinna við verslunina eða miklu fyrr, þegar
hann fór að vinna í kartöflugarði fjölskyld-
unnar, eða við eggjatínslu í hænsnahúsinu?
Þannig er mál með vexti að af mikilli
framsýni keypti Snorri árið 1954 lóð við það
sem varð síðar Skútuvogur. Nokkrar bygg-
ingar voru á lóðinni og þótti Snorra sjálf-
sagt að nýta þær með einhveijum hætti og
kom sér þar upp hænsnabúi. Þar hóf Jón
störf á unga aldri við eggjatínslu og fóðrun
hænsnanna. I skjóli við eitt húsið var kom-
ið upp kartöflugarði og börnin lögðu sitt af
mörkum við að pota útsæðinu niður á vorin
og vinna við uppskeruna á haustin.
Ennfiremur voru inn á lóðinni fjárhús,
þar sem karl nokkur uppi á Langholtsvegi
hafði nokkrar kindur, og svo fengu Völund-
arbræður eitt húsið fyrir hestana sína. Þeir
höfðu lykla að lóðinni löngu eftír að þeir
voru orðnir harðir keppinautar í timbursöl-
unni! „Við systkinin vorum alin upp líkt og
tíðkaðist á sveitaheimilum fyrr á öldinni.
Eftír þvi sem við höfðum aldur til gengum
við í öll tilfallandi störf í fyrirtækinu eftír
þörfum. Sturla, eldri bróðir minn, sem nú
hefur umsjón með rekstri eigna í fyrirtæk-
inu, lærði húsasmíði hjá pabba. Sjálfur lauk
ég verslunarprófi frá Verslunarskólanum
og bættí svo við mig námi í viðskiptum og
tungumálum í Cambridge 1967. Sigur-
björg, systír okkar, vann líka í fyrirtækinu
þar til fyrir 10 árum.“
Húsasmiðjan er fjölskyldufyrirtæki af
þeirri gerð, sem vex hægt og hægt út úr
lífsstarfi og áhugamálum húsbóndans, en
haslar sér síðan eigin völl innan viðskipta-
lífsins. Eins og áður segir var timbursalan í
fyrstu að mestu í formi umboðssölu fyrir
Völund. Eftír því sem frjálsræði í viðskipt-
um óx með Viðreisninni og á árunum þar
á eftír tók hún í auknum mæli að flytja inn
tímbur á eigin vegum. ,ý\llt fram tíl 1986
var Húsasmiðjan eingöngu með timbur-
verslun en þá voru fyrirtækinu sett ný
markmið og ákveðið að breikka og stækka
rekstrarsviðið og við skilgreindum okkur
sem alhliða verslun með byggingavörur
og hvers konar vörur til heimilisnota. Árið
1986 fluttum við svo í nýtt og veglegt versl-
unarhúsnæði við Skútuvog og höfum síð-
an verið þar með allar vörur sem menn
hugsanlega þurfa „allt frá grunni að góðu
heimili," segir Jón Snorrason.
lnnflutningur og timburvinnsla „Við ffytj-
um sjálfir inn megnið af öllum okkar vör-
um og kaupum beint af innlendum fram-
leiðendum, eins og Vírneti og Steinull. Við
erum nú með u.þ.b. 40% markaðshlutdeild
í innflutningi á tímbri. Við leggjum áherslu
á að að afla okkur vara sem víðast um
heiminn. Við áttum töluverð viðskipti við
Sovétríkin á árum áður. Þeim viðskiptum
var alltaf úthlutað í hlutfalli við markaðs-
hlutdeild og þar sem við vorum yngstir í
greininni áttum við ekki greiðan aðgang í
fyrstu. Þessi viðskipti voru dálítíð sérstök,
samkeppnisaðilar eins og SH og SÍS urðu
að vinna saman að útflutningnum og eins
var með innflutninginn. þar áttum við m.a.
samstarf við BYKO.
Seinni árin höfum við flutt mikið inn ffá
Skandinavíu og í auknum mæli frá Eystra-
saltslöndunum.
Við vorum fyrsta fyrirtækið í þessum
geira sem fór út í umfangsmikla tímbur-
vinnslu. Við heflum, sögum og þurrkum
mikið af tímbri. Við höfúm framleitt mikið
af skjólpöllum í garða og garðyrkjumenn
hafa verið góðir viðskiptavinir okkar gegn-
um árin. Stór hlutí íslendinga situr í okkar
skjóli í görðunum sínum. Við höfum frá
upphafi lagt stund á hurða- og gluggasmíði
og eigum núna fullkomna og góða verk-
smiðju í Fífuhvammi, þar sem vinna um 20
manns, iðnaðarmenn og ófaglærðir. Árið
1985 voru starfsmenn fyrirtækisins 50 en
voru orðnir 320 árið 1998. Á þessu ári bætt-
ust við 45 starfsmenn á Akureyri við yfir-
tökuna á Byggingarvörudeild KEA.
Hraður vöxtur Fyrirtækið hefur stækkað
hratt síðasta hálfan annan áratuginn. Árið
1988 lluttum við í nýtt verslunarhús við
Skútuvog, sem sennilega er okkar
þekktasta verslun, 4.200 fermetra skáli
borinn uppi af límtrésbitum frá Límtrés-
verksmiðjunni á Flúðum. Þá vorum við
msm -mmæxsi ws&mm
70