Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1999, Síða 71

Frjáls verslun - 01.04.1999, Síða 71
VIÐTAL enn með húseiningaverksmiðjuna og byggðum sjáliir einingarnar í húsið. Síðan höfum við verið að færa út kvíarnar. Við komum upp verslun í Hafnarfirði fyrir 6 árum og erum þar á 2000 fermetrum. Við bættum svo við verslun í Kefla- vík fyrir þremur árum. Verslun í Fossaleyni í Grafar- vogi var opnuð í fyrra. I fyrra kom svo til yfirtaka á víðtækri starfsemi austan fjalls, á Selfossi og Hvolsvelli, sem verið hafði í eigu kaupfélag- anna þar, og SG-húsa og SG-búðarinnar. Fyrir skömmu yfirtók- um við starfsemi Bygg- ingarvörudeildar KEA á Akureyri, á Dalvík og á Siglufirði. Samningar um þetta eru búnir að standa yfir nokkuð lengi, með nokkrum hléum þó, en svo var ákveðið að taka upp þráðinn um áramótin síðustu og við áttum ágætis viðræður og samninga sem enduðu með því að norðanmenn ákváðu að ganga til liðs við okkur. Við greiddum KEA með 20% hlut í Húsasmiðjunni. Svipaða leið fór- um við í sambandi við fyrirtækin austan fjalls. Arsvelta » KEA-deildarinnar hefur verið um 1100 milljónir og austanfjallsfyrir- tækjanna um 600 milljónir. Við reiknum með að ársvelta Húsa- smiðjunnar að loknu þessu sameiningar- ferli verði 6 til 6,5 milljarðar. Bókfært eigið fé félagsins var síð- ustu áramót 1,4 milljarðar. Veltuaukning síðustu tveggja ára varð samtals 57%. Hagnaður eftír skatta á síðastliðnu ári nam 178 milljónum. Til viðbótar því sem að framan var talið höfum við svo komið upp miðlægum lager í Holtagörðum sem þjónar öllum verslun- unum. Allt byggist þetta á traustu, mið- lægu tölvukerfi, sem færir allar upplýsing- ar um hreyfingu á vörunni inn jafnóðum og heldur utan um birgðir. Frá árinu 1996 höfum við byggt á Concorde-kerfi á Oracle grunni og verið með það í þróun síðan. Það var Hugur hf. sem setti þetta kerfi upp fyr- ir okkur og hefur séð um alla þjónustu við það. Reynsla okkar af því er mjög góð. Var þessi öri vöxtur síðustu árin eitt- hvað sem þið sáuð snemma fyrir ykkur? Fyrirtæki hafa alltaf val um það hvernig þau vilja þróast. Húsasmiðjan byrjaði sem iðnfyrirtæki með tímburverslun sem hlið- argrein. Við tókum síðan ákvörðun um að einbeita okkur að versluninni, sérhæfa okkur á því sviði og færa þar út kvíarnar en hætta húsaframleiðslu. Þróunin hefur svo stefnt hratt í áttína tíl aukinnar verkaskipt- ingar og sérhæfingar alls staðar og við trú- um því að þegar þessar hugmyndir höfðu hlotíð almenna viðurkenningu, þá höfum við einfaldlega verið réttir menn á réttum tarfseml Húsasmlðlunnar. Verslun viö Skútuvog Verslun við Fossaleyni Verslun í Hafnarfirði Verslun í Keflavík Verslun á Selfossi Verslun á Hvolsvelli Verslun á Akureyri Verslun á Dalvík Verslun á Siglufirði HelmingseigníStoneflexíWales Þessi er allt í öllu á skrifstofunni Nashuatec D420 Stafræn Ijósritun gefur m.a. ■ Hámarks myndgæði ■ Innbyggða rafræna roðun ■ 600 dpi prentun á A3 og minna ■ Tengingu við tölvukost fyrirtækisins ■ Einfaldari vél ■ Fjölhæfari vél ■ Hljóðlátari vinnslu ■ Öfluga faxtengingu Tölvuteng janleg I jósritunarvél Prentari Faxtæki nashuatec 71
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.