Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1999, Page 82

Frjáls verslun - 01.04.1999, Page 82
""WWWu BraBsæHBnsMBna Góð umgengni felst meðal annars í því að ganga rétt um allan búnað, ástunda skipulagt viðhald á tækjum og gæta þess að brunahólfun hússins sé ekki skemmd við breytingar á húsnæðinu, til dæmis breyting- ar á lögnum, Þessu tilheyrir einnig að hindra aðgengi óviðkomandi um húsið, safna ekki brennanlegu rusli og framfylgja reykinga- banni utan sérmerktra svæða. Heppileg ráð- stöfun er að fela ákveðnum starfsmanni að sjá um þessi mál. Brunahólfun er í raun mikilvægasti þátt- ur brunavarna hvers fyrirtækis eftir að kvikn- að er í. Með brunahólfun er átt við skiptingu húsnæðis með milliveggjum og -gólfum sem eru það eldtraust að slökkviliðinu sé gert kleift að slökkva eldinn áður en hann nær að breiðasttil annarra hluta hússins. Eftir bruna er of algengt að sjá að eldurinn hefur breiðst út um húsið meðfram lögnum sem ekki hef- ur verið brunaþétt meðfram, um opnar eld- varnarhurðir eða vegna þess að þéttingar veggjanna upp við þak voru ekki í lagi, en það er algengur hulinn galli í húsum. Allar eldvarnarhurðir eiga einnig að vera sjálflok- andi við bruna. Almennt má reikna með því að allt sem er í brunahólfinu, þar sem kvikn- ar í, eyðileggist í brunanum. Mesta stærð brunahólfs er almennt 500 til 1000 fermetr- ar eftir gerð húsnæðis og starfsemi. Þegar ekki er hægt að koma við fullnægj- andi brunahólfun, til dæmis vegna þess að hún er fyrir eða truflar starfsemina í húsinu, er hægt að leyfa stærri brunahólf með því að bæta aðra þætti brunavarnanna. Hér er einkum átt við að setja upp sjálfvirk viðvör- unar- og slökkvikerfi. Guðmundur Gunnarsson, yfirverkfræðingur hjá Brunamálastofnun, við öryggishurð. Hjá hverjum kviknar í? Oöllum fyrirtækjum leynist eldhætta sem fyrr eða seinna getur valdið bruna. Hvort eldurinn verði að óviðráðanlegu báli eða verði lítilfjörlegur án mikils tjóns ræðst að miklu leyti af ákvörðunum stjórnenda fyrirtækisins. Ábyrgir stjórnendur með framtíðarsýn ganga þannig frá öryggismálum fyrirtækisins að tjón verði viðráðanlegt verði eldur laus meðan sá óábyrgi treystir því að „það kvikni ekki í hjá mér" sem ætíð reynist fallvaltur trúnaður. Hafa ber í huga að meirihluti fyrirtækja sem verður fyrir stórbruna nær sér ekki á strik aftur og er horfinn af markaði innan fimm ára," segir Guðmundur Gunnarsson, verkfræðingur hjá Bruna- málastofnun. Viðvörunar- og slökkvikerfum er ætlað tvíþætt hlutverk; annars vegar að gera vart við bruna á byrjunarstigi og jafnframt það hlutverk slökkvikerfanna að slökkva eldinn áður en hann nær að breiðast út. Erlendar tölur gefa til kynna að tjón í byggingum sem varðar eru með úðakerfum séu um 10% af tjóni í samskonar byggingu sem er óvarin. SQ Brunavarnir eru þess vegna arðbær fjárfesting þegar til lengri tíma er litið. Góðar bruna- varnir byggjast á virðingu fyrir þeirri höfuðskepnu sem eldurinn er og má segja að eftirfarandi þrjú atriði séu lykillinn að þeim: 1. Góð umgengni 2. Brunahólfun 3. Viðvörunar- og slökkvikerfi Brunamálastofnun ríkisins Laugavegi 59 101 Reykjavík Simi: 552 5350 Fax: 552 5413 82 immnm'imm

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.