Morgunblaðið - 01.05.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu MMC Pajero
sport 2500 turbo diesel,
nýskráður 16.03.2000, ek-
inn 23.000 km, álfelgur.
Ásett verð 2,780,000.
ÞESS var minnst í gær, 30. apríl, að
Davíð Oddsson hefur verið forsæt-
isráherra í 10 ár í þremur rík-
isstjórnum, eða lengst allra for-
sætisráðherra í Íslandssögunni
samfleytt. Á árunum 1991–1995 var
hann í forystu fyrir ríkisstjórn með
Alþýðuflokknum og síðastliðið eitt
og hálft kjörtímabil, eða sex ár, hef-
ur hann verið forsætisráðherra í
tveimur stjórnum Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknarflokks-
ins. Davíð vantar 2 mánuði og 18
daga upp á að hann slái met Her-
manns Jónassonar sem sat lengst
samanlagt í stóli forsætisráðherra.
Flaggað var á húsi Stjórnarráðs-
ins í tilefni dagsins og síðdegis buðu
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Halldór Ásgrímsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, til samkomu í
Þjóðmenningarhúsinu til heiðurs
forsætisráðherra. Þar voru sam-
ankomnir núverandi og fyrrver-
andi ráðherrar í ríkisstjórnum Dav-
íðs, ásamt mökum, auk þeirra
ráðuneytisstjóra sem hann hefur
starfað með í gegnum tíðina, bæði í
forsætisráðuneytinu og eins sjávar-
útvegs- og dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, sem hann stýrði í
tvær vikur í maí 1999. Við upphaf
samkomunnar afhenti formaður
Framsóknarflokksins Davíð mikinn
og stóran blómvönd en í Þjóðmenn-
ingarhúsinu voru um 60 manns
samankomnir.
Kvöldverður í Valhöll
Sjálfstæðisflokkurinn efndi síðan
til afmæliskvöldverðar í Valhöll í
tilefni dagsins. Þar heiðruðu Davíð
með nærveru sinni um 80 manns úr
miðstjórn flokksins og þingflokki
auk þess sem starfsmenn Sjálfstæð-
isflokksins og nánir vinir Davíðs
voru þar samankomnir. „Afmæl-
isbarninu“ voru fluttar árnaðar-
óskir í tilefni dagsins og yfir borð-
haldi fluttu ræðu þau Geir H.
Haarde, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, og Sigríður Anna Þórð-
ardóttir, formaður þingflokksins.
Að kvöldverði loknum var stiginn
dans í Valhöll fram á nótt við undir-
leik hljómsveitar.
Davíð Oddsson forsætisráðherra samfleytt í 10 ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Davíð Oddsson forsætisráðherra skálar við veislugesti í afmæliskvöldverði sem haldinn var í Valhöll.
Samráðherrar og flokks-
menn fögnuðu með Davíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra taka á móti Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Þjóðmenning-
arhúsinu, þar sem haldin var samkoma til heiðurs forsætisráðherra.
Ástríður Thorarensen, eiginkona Davíðs, fylgist með.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gunnar Þórðarson og Davíð Oddsson í góðri sveiflu í Valhöll.
KONA hefur stefnt stefnt landlækni
fyrir hönd ófjárráða dóttur sinnar og
krefst þess að felld verði úr gildi sú
ákvörðun landlæknisembættisins að
hafna beiðni um að upplýsingar úr
sjúkraskrám um föður stúlkunnar
verði ekki fluttar í gagnagrunn á heil-
brigðissviði. Málið verður þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur nk. fimmtu-
dag, 3. maí.
Stefnandi í málinu er Birna Þórð-
ardóttir fyrir hönd dóttur sinnar.
Krefst hún dómsviðurkenningar á
rétti dótturinnar til leggja bann við að
framangreindar upplýsingar um lát-
inn föður hennar, Guðmund Ingólfs-
son, verði fluttar í gagnagrunn á heil-
brigðissviði.
Landlæknisembættið hafnaði
beiðni dótturinnar um að sjúkra-
skrárgögn um föður hennar yrðu ekki
flutt í gagnagrunninn. 21. febrúar sl.,
hafnaði landlæknisembættið beiðn-
inni á þeirri forsendu að það gæti ekki
heimilað flutning gagna úr sjúkra-
skrám látinna í gagnagrunnslögunum
né í öðrum lögum. Vísaði embættið til
þess að í athugasemdum við frum-
varp til laga um gagnagrunn á heil-
brigðissviði sé ekki gert ráð fyrir því
að einstaklingar geti hafnað því að
upplýsingar um látna foreldra þeirra
séu færðar í gagnagrunninn.
Stefna Birnu fyrir hönd dóttur
sinnar er birt í heild á heimasíðu
Mannverndar á Netinu.
Þá segir í stefnunni að því aðeins sé
unnt að flytja sjúkraskrárgögn um
látna í gagnagrunninn að foreldrar
eða afkomendur eða aðrir nánir
vandamenn samþykki flutninginn eða
eigi að minnsta kosti þess kost að
hafna honum og leitast við eins og
frekast er kostur að láta sömu reglur
gilda um látna og lifandi og þess að
jafnræðis sé gætt eftir því sem unnt
er.
Einnig kemur fram að dóttirin eigi
persónulegra hagsmuna að gæta af
því að upplýsingar úr sjúkraskrám
föður hennar verði ekki fluttar í
gagnagrunn á heilbrigðissviði þar
sem unnt sé að draga ályktanir af
þeim um viðkvæmar persónuupplýs-
ingar um hana sjálfa.
Loks er byggt á að óheimilt sé að
varðveita persónuupplýsingar lengur
en þeirra sé þörf í því skyni sem
þeirra er aflað. Því hafi varðveisla
sjúkraskrárupplýsinga um föður
stúlkunnar á því tímamarki er gagna-
grunnslögin voru sett verið óheimil og
skylt hafi verið að eyðileggja þau eftir
andlát hans er þau þjónuðu ekki leng-
ur þeim tilgangi, sem var tilefni öfl-
unar þeirra og varðveislu.
Vill ekki að upplýsingar um
látinn föður fari í gagnagrunn
SHERPINN Babu Chhiri fórst á
Everest-fjalli um helgina þegar hann
var að ganga á fjallið í ellefta sinn.
Babu var íslenskum fjallgöngu-
mönnum að góðu
kunnur en hann
gekk með Íslend-
ingum á tind Cho
Oyu árið 1995, á
Everest árið 1997
og á tind Ama
Dablam í Himal-
aya-fjöllum árið
1998. Björn Ólafs-
son, einn íslensku
Everest-faranna,
segir að það hafi verið talsvert áfall
að heyra um fráfall Babus sem hafi
reynst íslensku leiðangursmönnun-
um sérlega vel.
„Babu var einhver sterkasti klifr-
ari sem ég hef klifrað með,“ sagði
Björn. „Hann hafði þó nú síðustu ár
snúið sér að því gera hluti sem eru í
raun utan við það mannlega.“
En á síðustu árum setti Babu tvö
met á Everest, annað að dvelja
manna lengst á Everest-tindi án súr-
efnis, eða 21 klukkustund, og hitt að
ganga á tindinn og niður í grunnbúð-
ir aftur á 16 tímum og 55 mínútum.
Björn sagði að Babu hefði haft
gríðarlega reynslu á þessu sviði þeg-
ar hann gekk með þeim á Everest.
Hann var yfir sherpa-hópnum í ís-
lenska leiðangrinum og Björn segir
að hann hafi vitað upp á hár hvaða
ákvarðanir þurfti að taka.
Babu
fórst á
Everest
Babu
LÓFATÖLVUVEFUR mbl.is hefur
verið endurskipulagður og efni á hon-
um aukið. Notendur geta nú einnig
valið efnisþætti þá sem þeir vilja hafa
aðgengilega í lófatölvum sínum. Vef-
urinn, sem er á slóðinni www2.mbl.is/
vasi/index.html, er sniðinn fyrir allar
helstu gerðir af lófatölvum.
Á vefnum geta notendur valið þá
efnisþætti af vef mbl.is sem aðgengi-
legir verða í lófatölvum þeirra, en
hægt er til að mynda að velja inn-
lendar fréttir og erlendar, íþrótta-
fréttir, viðskiptafréttir, fréttir um
tölvur og tækni og fréttir af frægu
fólki. Einnig er hægt að velja aðgang
að stjörnuspá, fjármálaupplýsingum
og upplýsingum um komu- og brott-
farartíma flugvéla í innanlands- og
millilandaflugi. Þessar stillingar eru
síðan vistaðar í viðkomandi lófatölvu,
en notandinn getur breytt þeim sem
honum sýnist.
Lófatölvu-
vefur end-
urbættur
EKKI náðist að leggja fram
tillögu til sátta varðandi
mönnunarmál í samningavið-
ræðum sjómanna og útvegs-
manna í gær, þar sem ekki
náðist samstaða um tillöguna
meðal sjómannasamtakanna.
Ekkert miðaði í viðræðunum
að öðru leyti og staða mála
því óbreytt.
Vélstjórafélag Íslands
samdi tillögu um lausn á
mönnunarmálunum um
helgina en hin sjómannasam-
tökin voru ekki reiðubúin til
að ganga að henni. „Frum-
varp samgönguráðherra um
mönnunarmálin hefur bundið
hendur okkar fram til þessa.
Nú hefur það hins vegar ver-
ið lagfært og þá fannst okkur
að við yrðum að beita okkur í
málinu,“ sagði Helgi Laxdal,
formaður Vélstjórafélagsins, í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambands
Íslands, sagði ljóst að sam-
bandið muni ekki standa að
tillögu varðandi mönnunar-
málin. „Það má vel vera að
yfirmannafélögin, það er Vél-
stjórafélag Íslands og Far-
manna- og fiskimannafélag
Íslands, séu tilbúin með til-
boð þegar búið er að breyta
frumvarpi um mönnun ís-
lenskra skipa. Það nær hins
vegar ekki til minna umbjóð-
enda og samninganefnd sjó-
mannasambandsins hefur
formlega hafnað tillögunni.“
Sævar þvertekur fyrir að
kominn sé upp klofningur
milli samtaka sjómanna. „Við
erum hér til að ræða okkar
kröfur en ekki kröfur útvegs-
manna. Það hefur legið fyrir í
14 mánuði,“ sagði hann.
Grétar Mar Jónsson, for-
maður Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, sagði í
gær að sambandið myndi ekki
ræða mönnunarmálin við út-
vegsmenn nema með þáttöku
hinna sjómannasamtakana
tveggja.
Ekki hefur verið boðaður
annar fundur í deilunni.
Ekki
sátt um
mönn-
unina
Árangurslaus
fundur sjómanna
og útvegsmanna
♦ ♦ ♦