Morgunblaðið - 01.05.2001, Page 29

Morgunblaðið - 01.05.2001, Page 29
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 29 tjaldvagn fyrir ís lenskar aðstæður SAMVINNUFERÐIR Land- sýn hf. hafa ákveðið að fylgja í kjölfar annarra ferðaskrifstofa á Íslandi og hækka verð á öllum utanlandsferðum félagsins. Hækkunin nemur 5,5% og tek- ur gildi frá og með 16. maí 2001. Ástæða hækkunarinnar eru miklar gengisbreytingar und- anfarið en stór hluti kostnaðar félagsins er greiddur í dollur- um og evrum. Þeim viðskiptavinum Sam- vinnuferða Landsýnar hf., sem hafa bókað ferðir á vegum félagsins en ekki greitt þær að fullu, gefst kostur á því að gera full skil fyrir 16. maí nk. Þetta gildir einnig um alla þá við- skiptavini sem bóka og full- greiða utanlandsferðir fyrir 16. maí nk. Hækkun á utanlands- ferðum GSM-SÍMAEIGN landsmanna hef- ur vaxið hröðum skrefum og að sama skapi þarf fólk að bíða lengur ef það fer með símann sinn í viðgerð. Fyrirtækið Hátækni ehf. hefur þjón- ustuumboð Nokia-símanna hér á landi. Fyrirtækið er jafnframt eina fyrirtækið hérlendis sem sér um við- gerðir á slíkum símum. Viðskipta- vinur sem hafði þurft að bíða á aðra viku eftir Nokia-síma sínum úr við- gerð hafði samband við Morgun- blaðið og var að velta fyrir sér hversvegna biðtíminn væri svona langur „Tölur yfir biðtíma eftir Nokia- símum úr ábyrgðarviðgerð í mars síðastliðnum sýna að hann var að meðaltali 4,3 dagar,“ segir Bjarni Halldór Kristjánsson, deildarstjóri viðgerðadeildar Hátækni. „Þetta er meðaltal allra daga sem líða frá því sími berst til viðgerðar og þar til við- gerð lýkur sem þýðir að ekki er tek- ið tillit til frídaga og helga í þessari tölu, þ.e., komi sími til viðgerðar á föstudegi og sé afhentur næsta mánudag telst viðgerðartíminn vera þrír dagar.“ Skortur á varahlutum hefur áhrif á lengd biðtíma Aðspurður segir Bjarni Halldór að ýmislegt hafi neikvæð áhrif á bið- tíma, einkum og sér í lagi varahluta- skortur. „Dragist afhending vara- hluta til okkar er það vandi sem við ráðum ekki við en sem betur fer er ástandið betra í þeim málum nú og batnar vonandi. Annað sem hefur haft áhrif á lengd biðtíma er aukin spurn eftir viðgerðarþjónustu. Ekki svo að skilja að símar bili hlutfalls- lega meira heldur hefur símaeign landsmanna vaxið hraðar en áætl- anir gerðu ráð fyrir og það þýðir ein- faldlega aukið álag á okkur. Þess má þó geta að við höfum allt- af reynt að taka til þau verk sem ljóst er að fljótlegt er að lagfæra og afgreiða þau samdægurs,“ segir hann og bætir við að hlutfall þannig afgreiddra verka sé að jafnaði um 25–30% þeirra verka sem unnin eru í viðgerðaþjónustunni á degi hverj- um. „Þetta á að sjálfssögðu við um alla framleiðendurna sem við þjón- ustum, Ericsson, Motorola og Nokia. Best væri að allar viðgerðir væru einfaldar og fljótlegar en það er því miður ekki svo.“ Að sögn Bjarna Halldórs fylgir biðtími eftir viðgerð á Motorola- og Ericsson-símum biðtíma á Nokia því að þeir fara í sömu röð. „Við viljum gjarnan stytta biðtíma eftir þeirri þjónustu sem við veitum og gera hana sem best úr garði og róum að því öllum árum nú.“ Að sögn hans er ekki um neina „hraðþjónustu“ að ræða því að beðið er eftir niðurstöðum úr máli þess efnis hvort heimilt sé að bjóða for- gangsþjónustu á ábyrgðarviðgerð- um gegn greiðslu sérstaks gjalds fyrir forganginn. Í viðgerðaþjónustunni er, að sögn Bjarna Halldórs, hægt að leigja síma sé sími settur í viðgerð en hann segist jafnframt vita til þess að sum- ir söluaðilar láni viðskiptavinum sín- um síma þeim að kostnaðarlausu. Viðgerðaþjónusta á GSM-símum tekur lengri tíma en áður Biðtími lengist þar sem símaeign vex hratt MISSKILNINGS virðist gæta á því hvað telst til öryggisbúnaðar og hvað til leikfanga þegar börn og öryggis- búnaður í sundi er annars vegar. Herdís Storgaard, framkvæmda- stjóri Árvekni, segir að armkútar séu dæmi um öryggisbúnað í sundi en miklar öryggiskröfur eru gerðar til þeirra. Engu að síður þarf að gæta þess að blása þá vel upp þannig að þeir sitji traustir á upphandleggjum barns. Armkútar hafa tvöfalt lofthólf og ef það lekur úr öðru þeirra halda þeir engu að síður barninu á floti. Efri hluti líkama barnsins er því ávallt fyrir ofan vatn,“ segir Herdís og bætir við að sundjakkar séu einn- ig öryggisbúnaður og þar þurfi að at- huga sérstaklega vel að jakkinn falli vel að líkama barnsins. „Fólk þarf þó að átta sig á því að sundjakkar virka öðruvísi en armkútar því börn í sund- jökkum leggjast sjálfkrafa á magann eða bakið þegar þau eru komin í sundlaugina. Þetta eru mikil við- brigði fyrir börn sem vön eru að nota armkúta. Ég vil ráðleggja foreldrum að nota armkúta fyrst þegar börn þeirra eru að venjast vatninu og nota sundjakka þegar börn eru farin að læra að leggjast á magann og bakið. Það er mikilvægt að fólk átti sig á þessum flotmun. Ég hef fengið ófáar símhringingar frá fólki sem hefur keypt sundjakka og segir að þetta sé stórhættulegur búnaður. Raunin er þá yfirleitt sú að fólk hefur ekki kynnt sér leiðbeiningar um sund- jakkana sem skyldi.“ Aðspurð segir Herdís hringlaga kúta vera varasama enda séu þeir ekki öryggisbúnaður heldur einungis leikfang. „Hringlaga kútar geta auð- veldlega hvolfst. Fyrir nokkrum ár- um gerðum við rannsókn á því hvern- ig börn voru næstum því drukknuð og eins hvernig þau drukknuðu. Þá kom í ljós að þar sem börn voru hætt komin í hringlaga kútum voru for- eldrarnir nánast við hliðina á þeim en voru þá t.d. að sinna öðrum börnum eða höfðu athyglina á barninu og þess vegna fór ekki illa. Eitt dæmi var þannig að barnið lyfti upp hönd- um og rann í gegn um kútinn.“ Hringlaga kútar eru einnig til með áföstum buxum og þá segir Herdís að vendipunktur barnsins verði of hár. Þegar þau fara síðan að teygja sig getur jafnvægið auðveldlega farið og kúturinn þar með snúist snögglega við. „Ef enginn verður var við þetta helst barnið undir vatni vegna þess að það er fast í buxunum og getur ekki komið sér upp. Aðgætni for- eldra öllum stundum er því mjög mikilvæg.“ 25% átta ára barna eru synd Að sögn Herdísar eru til öryggis- reglur frá árinu 1994 sem snerta rekstur sundlauga og kröfur til sund- laugavarða. „Þessar öryggisreglur, sem síðan hafa verið endurskoðaðar, hafa gert það að verkum að drukkn- unum hefur fækkað til muna. En ég vil minna foreldra á , að það eru þeir sem bera ábyrgð á börnunum sínum í sundi. Margir gestir sundlauga kvarta undan aðgæsluleysi foreldra og forráðamanna barna í sundi. Að vera með lítil börn í sundi og fylgjast með þeim úr heita pottinum er ekki gott. Þá getur fólk ekki alfarið reitt sig á sundlaugarverðina þótt þeir eigi auðvitað að fylgjast með öllum gest- um, þeir eru ekki í barnagæslu.“ Aðspurð segir Herdís að börn megi ekki fara ein í sund fyrr en þau eru orðin átta ára og ef þau fari þá ein í sund þá bera foreldrarnir ábyrgð á þeim. „Það á enginn að senda barn einsamalt í sund átta ára gamalt nema það kunni að synda. Raunin er sú að einungis 25% barna á þessum aldri eru synd. Þrátt fyrir að eftirlitskerfi sundlauga sé gott koma oft sólríkir dagar þar sem margir eru í laugunum og þá geta vá- legir atburðir gerst þrátt fyrir góða gæslu.“ Morgunblaðið/Þorkell Armkútar eru dæmi um öryggisbúnað í sundi en miklar öryggis- kröfur eru gerðar til þeirra. Þeir hafa tvöfalt lofthólf og ef það lekur úr öðrum þeirra þá halda þeir engu að síður barninu á floti. Hringlaga kútar eru leikföng

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.