Morgunblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Breiðabólstað í Fljótshlíð - Björg-
unarsveitarfólk er alla jafna sjálf-
boðaliðar sem leggja hart að sér
sumar sem vetur í þágu almanna-
öryggis. Þeir sem hafa kynnst
störfum þessara sveita og eiga
þeim jafnvel líf að launa kunna
þeim miklar og verðskuldaðar
þakkir. En þeir eru færri sem átta
sig á því hvaða vinnu þetta fólk
leggur á sig til að halda sér í þjálf-
un til að geta tekist á við erfiðar
aðstæður þegar í raunir rekur.
Þrátt fyrir vitneskju um störf
björgunarsveita var ekki örgrannt
um að fréttaritara Morgunblaðsins
ræki í rogastans við að sjá fimm
vörpulega menn úr Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík með föggur á
baki þar sem m.a. mátti sjá skíði
utan við Seljalandssundlaug í
hvanngrænu umhverfi Eyjafjalla. Í
ljós kom að þeir félagar voru að
leggja í þriðja sinn til uppgöngu
þennan sama dag á jökul. Fyrst á
Hvannadalshnjúk í Vatnajökli og
komust „ekki nema“ í 900 metra
hæð þegar þeir þurftu að hverfa
frá, næst á Eyjafjallajökul á stað
sem þeir felldu sig ekki við vegna
snjóflóðahættu og síðast á öðrum
stað og stefndu að Goðasteini í
Eyjafjallajökli.
Morgunblaðið/Önundur Björnsson
Flugbjörgunarsveitarmennirnir reiðubúnir til uppgöngu á Eyjafjallajökul. Talið frá vinstri Marteinn Sigurðs-
son, Sigurfinnur Finnsson, Einar Steinarsson, Þórður Bergsson og Skúli Magnússon.
Flugbjörgunarsveitarmenn
við æfingar á Eyjafjallajökli
Stykkishólmi - Einn
aðalóvinur æðar-
bænda í Breiða-
fjarðareyjum er
minkurinn. Hann
leitar þangað þó að
leiðin sé ekki greið.
Á hverju vori fyrir
varp er farið um all-
ar eyjar í Snæfells-
nessýslu og leitað að
minki. Undanfarin
ár hafa þeir feðgar
Eiríkur Beck Páls-
son og sonur hans
annast leitina. Um
síðustu helgi mættu
þeir á svæðið með 4
hunda og fóru um
eyjarnar og Stykk-
ishólmslönd.
Fréttaritari slóst í
för með þeim þegar
þeir leituðuðu í
Elliðaey, Fagurey,
Skjaldarey og Bílds-
ey. Fannst minkur í
Elliðaey og Bíldsey
og voru það steggir
í báðum tilfellum.
Feðgarnir fundu fimm
minka í fyrra
Það er undarlegt að minkur
skuli komast í Elliðaey en hún
er fjarri öðrum eyjum. Sýnir
það vel hvað dýrið er harðgert
að það skuli komast á milli
eyjanna á sundi og ekki eru
sterkir straumar til að auðvelda
því sundið.
Í fyrra fundu þeir feðgar 5
minka í þessum eyjum svo að
ástandið er betra nú en þá.
Hundarnir gera það kleift að
finna minkana. Án þeirra væri
verkið nærri vonlaust.
Eiríkur segir að veiðin hafi
verið mun meiri fyrir nokkrum
árum, en jafnari síðustu ár og
vonast þeir til að þeir nái að
halda stofninum í skefjum með
sínu reglubundna eftirliti.
Minkurinn læt-
ur ekki eyja-
sund aftra för
Feðgarnir með karldýrið og hundarnir eru
æstir í að ná í dýrið. Í baksýn er sumarhús-
ið í Bíldsey.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason.
Stykkishólmi - Aftanskin, félag
eldri borgara í Stykkishólmi, hélt
sitt árlega barnaball fyrir skömmu.
Skemmtunin hefur hlotið þetta
nafn þar sem félagarnir bjóða börn-
um sínum og öðrum afkomendum
til samkomu.
Þar eru flutt fjölbreytt skemmti-
atriði og boðið upp á veislukaffi og
ball á eftir. Að venju var góð mæt-
ing og voru gestir um 140. Meðal
atriða var söngur kórs eldri borg-
ara undir stjórn Jóhönnu Guð-
mundsdóttur.
Benedikt Lárusson mætti með
sinn sítar og lék undir með kórnum.
Sítar er ekki algengt undirleiks-
hljóðfæri, en Benedikt keypti sít-
arinn sinn fyrir 59 árum fyrir áhrif
frá Svavari Benediktssyni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason.
Kór eldri borgara í Stykkishólmi syngur á barnaballinu og Benedikt Lárusson leikur undir á sítar.
Árlegt
barnaball
ÞÓRA Einars-
dóttir óperu-
söngkona og
Jónas Ingimund-
arson píanóleik-
ari halda óperu-
tónleika í
Stykkishólms-
kirkju nk.
fimmtudags-
kvöld kl. 20.30.
Fluttar verða
aríur úr óperum eftir Mozart,
Weber, Verdi og Johann Strauss.
Einnig verða fluttir íslenskir og er-
lendir söngvar. Þóra er nýlega
fastráðin við Óp-
eruna í Wiesbad-
en í Þýskalandi
og á tónleikun-
um á fimmtudag
getur að heyra
ýmislegt af því
sem hún syngur
þar á næstunni.
Þeir Gunnar
Guðbjörnsson,
Viðar Gunnars-
son og Kristinn Sigmundsson voru
allir fastráðnir við Óperuhúsið í
Wiesbaden á sínum tíma og hófu
þar sinn feril í útlöndum.
Jónas Ingi-
mundarson
Þóra
Einarsdóttir
Óperutónleikar
í Stykkishólmi
Fjarðabyggð - Hulda Elma Ey-
steinsdóttir, blakkona úr Þrótti Nes-
kaupstað, og Guðni Þór Magnússon,
frjálsíþrótta- og knattspyrnumaður í
Austra Eskifirði, voru útnefnd
Íþróttamenn ársins 2000 í Fjarða-
byggð. Þetta er í fyrsta sinn sem
Fjarðabyggð útnefnir íþróttamenn
ársins, en íþróttaráð Fjarðabyggðar
verðlaunaði íþróttafólkið á dögunum.
Íþróttafélögin í Fjarðabyggð
máttu tilnefna karl og konu í hverri
íþróttagrein sem stunduð er hjá
viðkomandi félagi.
Hulda Elma Eysteinsdóttir,
Þrótti, var tilnefnd í blaki, Anna
Katrín Svavarsdóttir, Val, og
Guðni Þór Magnússon, Austra, í
frjálsíþróttum, Þorbergur Ingi Jóns-
son, Þrótti, í knattspyrnu og Karen
Ragnarsdóttir, Þrótti, og Þórarinn
Sigurbergsson, Þrótti, úr hópi skíða-
fólks.
Hulda Elma var einn af máttar-
stólpum blakliðs Þróttar á árinu og
varð Íslands-, bikar- og deildarmeist-
ari í blaki með liði sínu auk þess sem
hún var kjörin besti uppgjafarinn í
riðli Íslands í C-keppni Evrópuþjóða.
Guðni Þór Magnússon var út-
nefndur vegna afreka í
400, 800 og 1.500 metra hlaupum.
Fjarðabyggð átti fjórar stúlkur í
blaklandsliðinu á árinu, en það eru
Þróttararnir Hjálmdís Zoega, Hulda
Elma Eysteinsdóttir, Petrún Bj.
Jónsdóttir og Þorbjörg Ólöf Jóns-
dóttir.
Fyrstu íþrótta-
menn ársins í
Fjarðabyggð
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hulda Elma Eysteinsdóttir, Norðfirði, og Guðni Þór Magnússon, Eski-
firði, voru útnefnd Íþróttamenn ársins 2000 í Fjarðabyggð.