Morgunblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LIÐLEGA fertug kona brenndi sig á
fæti í hver á Reykjanesi á föstudag.
Konan tilkynnti slysið til lögregl-
unnar í Keflavík. Hún var á gangi á
hverasvæði þegar grasið gaf sig und-
an henni með þeim afleiðingum að
hún lenti með hægri fótinn niður í
sjóðandi heitan hver.
Brenndi sig
í hver
Reykjanes
SIGURÐUR Bessason, formaður
Eflingar – stéttarfélags, verður að-
alræðumaður á skemmtun í Stapa í
dag, verkalýðsdaginn.
Verkalýðsfélögin í Reykjanesbæ
halda sameiginlega upp á daginn.
Húsið verður opnað klukkan 13.45
og þá leikur Guðmundur Her-
mannsson létta tónlist. Ragnar Örn
Pétursson, formaður Starfsmanna-
félags Suðurnesja, setur hátíðina
klukkan 14 og þá flytur Sigurður
Bessason ræðu dagsins.
Síðan verður Jóhannes Kristjáns-
son með grín og gamanmál og
Kvennakór Suðurnesja syngur.
Kaffiveitingar verða í boði félaganna.
Börnum er boðið á kvikmyndasýn-
ingar í Nýja bíói klukkan 14.
Sigurður
Bessason
aðalræðu-
maður
Reykjanesbær
ÖRYGGISBELTAÁTAKI lögregl-
unnar í Keflavík lauk í gær en það
hafði staðið í viku. Um miðjan dag
höfðu 36 ökumenn og 3 farþegar ver-
ið teknir fyrir að nota ekki örygg-
isbelti og verða þeir kærðir.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Keflavík er talsverður mun-
ur á notkun öryggisbelta í þéttbýli
og utan þess. Kemur það fram í
könnunum sem lögreglan gerir
reglulega. Í slíkri könnun í gær-
morgun voru um 80% ökumanna í
þéttbýli með öryggisbelti en 88%
ökumanna sem litið var til utan þétt-
býlis. Við fyrri kannanir hefur hlut-
fall þeirra ökumanna í þéttbýli sem
ekki nota öryggisbelti oft farið niður
undir 70%.
Fólk sem tekið er fyrir að nota
ekki öryggisbelti þarf að greiða
4.000 kr. sekt.
39 teknir án
öryggisbelta
Reykjanesbær
ÓVENJU mörg útköll voru hjá
Brunavörnum Suðurnesja í síðustu
viku, eða samtals 48. Þar af voru 40
vegna sjúkraflutninga og átta vegna
tilkynninga um bruna.
Í fjórum útköllum slökkviliðs
reyndist um staðfestan eld að ræða.
Önnur tengdust flest boðum frá
brunaviðvörunarkerfum. Stærsta
útkallið var vegna elds í húsi á
Reykjanesi á laugardagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
mundi Eyþórssyni slökkviliðsstjóra
var mikið um samtímaútköll sem svo
eru kölluð, það er að segja útköll of-
an í útköll. Þrír slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn eru á vakt á
slökkvistöðinni og auk þess eru bak-
vaktir til að tryggja útkallsstyrk
liðsins. Að sögn Sigmundar veldur
mannfæðin því að útkallsstyrkur
slökkviliðsins er verulega skertur á
fyrstu mínútum samtímaútkalla.
48 útköll hjá
Brunavörnum
Suðurnes
TVÍLYFT íbúðarhús sem notað er
sem verbúð við hausaþurrkunina
Haustak, rétt norðan við Reykjanes-
vita, brann til kaldra kola á laugar-
dagskvöldið. Ein kona var í húsinu
þegar eldurinn kom upp og slapp
hún ómeidd.
Brunavarnir Suðurnesja fengu til-
kynningu um eldinn klukkan að
verða hálf ellefu á laugardagskvöld.
Fjórir starfsmenn Haustaks voru við
störf í fiskþurrkuninni og sáu þeir
eld á efri hæð íbúðarhússins sem
þeir bjuggu í. Hlupu þeir til því þeir
vissu af konu þar inni en í sama
mund kom hún út úr húsinu.
Húsið alelda
Allt slökkvilið Brunavarna Suður-
nesja var kallað út ásamt vatnsbíl frá
Slökkviliði Grindavíkur. Samkvæmt
upplýsingum Sigmundar Eyþórs-
sonar slökkviliðsstjóra kom slökkvi-
liðið á staðinn um tuttugu mínútum
eftir að tilkynningin barst. Þá var
húsið orðið aðelda og þakið fallið í
miðjunni. Hann segir að lítið annað
hafi verið að gera en að kanna ástand
nærliggjandi bygginga, húsnæðis
hausaþurrkunarinnar og áfasts
geymsluhúsnæðis. Ekki hafi verið
talin hætta á að eldurinn bærist í þau
en þó verið gerðar viðeigandi ráð-
stafanir til að verja húsin ef aðstæð-
ur breyttust.
Engu var bjargað úr hinu brenn-
andi húsi. Slökkvistarfi lauk form-
lega um klukkan hálf eitt um nóttina
en slökkviliðið var á staðnum fram
undir morgun.
Útkallstími og
byggingarefni
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Keflavík eru orsakir eldsins
ekki ljósar en unnið er að rannsókn.
Húsið er 15-20 ára gamalt, liðlega
200 fermetra stórt einingahús, byggt
úr timbri, einangrað með glerull en
ekki steinull og innveggir klæddir
með spónaplötum. Að sögn Sig-
mundar stuðlaði byggingarefnið og
langur útkallstími slökkviliðsins að
hraðri úbreiðslu eldsins í húsinu. Um
20 kílómetra leið er frá slökkvistöð-
inni að Reykjanesvita.
Brunavarnir Suðurnesja hafa tek-
ið í notkun Tetra-fjarskiptakerfi.
Slökkviliðsstjórinn segir að það hafi
komið sér vel á brunastað því þar
hefði ekki náðst í venjulegar tal-
stöðvar og farsímasamband slæmt.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi Bárðarson
Íbúðarhús við Vitabraut, skammt norðan Reykjanesvita, brann til grunna á laugardagskvöld án þess að íbúar þess eða slökkvilið gætu bjargað nokkru.
Eldur kom upp á athafnasvæði hausaþurrkunarinnar norðan Reykjanesvita
Íbúðarhús eyðilagðist í eldi
Reykjanes
VERULEGUR vöxtur hefur verið í
hvalaskoðun frá Keflavík und-
anfarin ár. Bæði fyrirtækin sem
þaðan gera út hafa nú fengið sér
stærri báta auk þess sem aukning
er í dagsferðum og er því útlit fyrir
verulega aukningu í þessari starf-
semi í sumar.
Tvö hvalaskoðunarfyrirtæki
gera út báta frá Keflavík og þriðji
báturinn hefur verið gerður út frá
Sandgerði hvað sem verður í sum-
ar. Talið er að hátt í 12 þúsund
manns hafi farið í hvalaskoðun með
þessum bátum á síðasta ári.
Tveir nýir bátar
Helga Ingimundardóttir rekur
Höfrung - hvalaskoðun sem nú er
orðið elsta starfandi hvalaskoð-
unarútgerð landsins. Helga keypti í
vetur bát sem notaður var við
hvalaskoðun frá Húsavík í nokkur
ár og hefur gefið honum sitt fyrra
nafn, Moby Dick. Tekur þessi bátur
94 farþega en Andrea sem Helga
gerði áður út tók 55 farþega.
Hvalstöðin fékk nýjan bát fyrir
tveimur mánuðum, tvíbytnuna Haf-
súluna, sem keyptur var frá Nor-
egi. Tekur hann liðlega 150 far-
þega en eldri bátur
Hvalstöðvarinnar tók 38 manns.
Guðmundur Gestsson sem á
Hvalstöðina með konu sinni keypti
Gest fyrir þremur árum og hóf
þessa starfsemi. Hann segir að bát-
urinn hafi verið stærri en þeir
bátar sem þá voru fyrir og menn
talið þetta mikla bjartsýni. Vöxt-
urinn hafi verið svo mikill að í
fyrra hafi báturinn verið orðinn
allt of lítill og smærri bátarnir
horfnir.
Flutningsgetan hefur aukist
verulega frá síðasta sumri við til-
komu þessara tveggja nýju skipa.
Helga Ingimundardóttir hefur
gert út á Hvalaskoðun í átta ár og
sífellt verið að stækka bátana. Hún
segir að eftirspurnin eftir þessum
ferðum hafi vaxið jafnt og þétt á
þessum tíma. Telur hún að sam-
keppnin fari nú mjög harðnandi.
Nýr markaður
Bæði fyrirtækin hófu útgerð um
mánaðamótin mars-apríl í vor og
þótt veðráttan hafi verið rysjótt
hefur verið þónokkuð að gera. Mik-
il aukning í dagsferðum frá Bret-
landi hefur hleypt lífi í starfsemina,
ekki síst stórir hópar sem koma um
helgar á vegum Kynnisferða.
Fyrsti hópurinn kom síðastliðinn
laugardag, um 1.000 manns, og
fóru liðlega 700 farþeganna í
hvalaskoðun frá Keflavík. Fólkið
sigldi út á Faxaflóa með Brimrúnu,
báti sem Kynnisferðir gera út frá
Ólafsvík, og Hafsúlunni.
Guðmundur segir að nokkur
strekkingur hafi verið í fyrstu ferð-
inni og sumir farþeganna orðið sjó-
veikir. Síðan hafi lyngt og betur
hafi gengið með seinni hópana.
„Þetta gekk ljómandi vel. Fólkið sá
hrefnur og höfruna og líka mikið af
fugli og virtist ánægt. Það kann vel
að meta það að komast í hreint loft
og sjá hreinan sjó,“ segir Guð-
mundur.
Báðar hvalaskoðunarútgerðirnar hafa stækkað báta sína umtalsvert
Útlit fyrir
aukningu
í hvala-
skoðun
Keflavík
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Tveir troðfullir hvalaskoðunarbátar af stærstu gerð fóru tvær og þrjár ferðir á laugardaginn með dagsferða-
langa frá Bretlandi. Strekkingur var í fyrstu ferðinni en þá var þessi mynd tekin um borð í Hafsúlunni.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦