Morgunblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 73
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 73
Ertu
meðvitaður
um gæði
Sjáðu merkið
Heimsferðir bjóða nú viðbótarsæti til Costa del
Sol þann 22. maí í 10 daga ferð á frábæru
verði. Tryggðu þér síðustu sætin og njóttu fegursta tíma ársins á þessum
vinsælasta áfangastað við Miðjarðarhafið og á meðan á dvölinni stendur,
nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu
sætin
Viðbótarsæti til
Costa del Sol
22. maí
frá 52.585 kr.
Verð kr. 52.585
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 22.
maí, 10 dagar/9 nætur.
Flug, gisting á Santa Clara, skattar.
Verð kr. 58.705
M.v. 2 stúdíó, Santa Clara,
10 dagar/9 nætur.
flug, gisting, skattar.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Menningarlandið
Stefnumótun í menningarmálum á landsbyggðinni
Seyðisfirði 14. og 15. maí 2001
Ráðstefnustjóri Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður.
Menntamálaráðuneyti, Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standa að ráðstefnunni.
Ráðstefnan er haldin í framhaldi af Skýrslu um menningarmál á landsbyggðinni, sem samstarfs-
hópur ofangreindra aðila vann fyrir menntamálaráðherra og gefin var út af menntamálaráðuneyt-
inu haustið 2000. Ráðstefnunni er ætlað að reifa stöðu og framtíðarhorfur í menningarmálum frá
sjónarhóli þeirra er bera ábyrgð á og standa að menningarstarfi á landsbyggðinni.
Mánudagur 14. maí 2001
Kl. 10:00 Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, setur ráðstefnuna með ávarpi.
Kl. 10:10 Ávarp Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar,
formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Kl. 10:20 Ávarp Theodórs Bjarnasonar, forstjóra Byggðastofnunar.
Kl. 10:30 Undirritun menningarsamnings við Austurland og ávarp formanns SSA.
Kl. 11:00 Kaffihlé.
Kl. 11:15 Stefnumótun í nágrannalöndum: Stephanie O’Callaghan og
Cliodhna Shaffrey frá írska menningarráðinu og Kjell-Åke Aronsson frá
„ETOUR“ rannsóknarstofnuninni í Norður-Svíþjóð.
Kl. 12:30 Hádegisverður.
Kl. 13:30 Stefnumótun á Íslandi: Menningarborgin og áhrif hennar: Einar Njálsson,
bæjarstjóri í Grindavík, Þórunn Sigurðardóttir, stjórnandi Menningarborgar
og Inga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri jöklasýningar á Hornafirði.
Þjóðmenningarstofnanir og samstarfsaðilar þeirra: Margrét Hallgrímsdóttir,
þjóðminjavörður og Elín S. Sigurðardóttir, formaður stjórnar
Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi. Menningarstarf í samvinnu ríkis
og sveitarfélags:
Sigurður Hróarsson, leikhússtjóri, Sigurður R. Símonarson, skóla- og menn
ingarfulltrúi, Vestmannaeyjum og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði.
Kl. 15:00 Kaffihlé.
Kl. 15:30 Stefnumótun á Íslandi: Stefnumótun í menningarmálum fyrir Austurland:
Óðinn Gunnar Óðinsson, Þróunarstofu Austurlands, Egilsstöðum.
Fræðasetur, menningarstofnanir og starfsemi háskólastigsins:
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskólans, Reykjavík,
Guðrún Helgadóttir, menningarráðgjafi, Hólum í Hjaltadal og
Elín Erlingsdóttir, Kirkjubæjarklaustri/Kirkjubæjarstofu.
Hvað dregur listamenn út á land: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur,
Reykjavík og Keith Reed, Óperustúdíói Austurlands, Egilsstöðum.
Kl. 17:30 Hlé.
Kl. 18:30 Móttaka í boði heimamanna.
Kl. 20:00 Kvöldverður.
Þriðjudagur 15. maí 2001
Kl. 10:00 Starfsumhverfi menningarmála á landsbyggð: Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri
á Seyðisfirði. Fræðasetur: Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu í
Reykholti. Menningarmálanefndir: Erla Sigurðardóttir, sviðsstjóri fræðslu-
og menningarmála, Húsavík.
Rekstur menningarmiðstöðva: Davíð Baldursson, sóknarprestur, Eskifirði.
Menningaruppeldi: Tinna Gunnlaugsdóttir, forseti Bandalags íslenskra
listamanna. Menningarstarf ungs fólks: Dóra Hlín Gísladóttir, starfsmaður
Gamla Apóteksins, Ísafirði. Samstarf þjóðmenningarstofnana og
landsbyggðar: Ólafur Kvaran, forstöðumaður Listasafns Íslands.
Kl. 12:30 Hádegisverður.
Kl. 13:30 Vinnuhópar fjalla um tillögur úr skýrslu Samstarfshóps um menningarmál á
landsbyggðinni. Vinnuhópar skili tillögum um næstu skref skv. skýrslunni.
Umræður um framkvæmd tillagnanna og hvað sé mikilvægast.
Kl. 15:00 Niðurstöður vinnuhópa og ráðstefnuslit.
Kl. 16:00 Skoðunarferð.
Ráðstefnugjald er 4.000 kr. Innifalið í því verði eru hádegisverðir, kaffi og kvöldverður 14.
maí, auk ráðstefnugagna. Skoðunarferð sem ráðgerð er 15. maí kostar 1.000 kr. aukalega.
Skráningu á ráðstefnuna lýkur 7. maí 2001. Skráning á ráðstefnuna og bókanir í flug og
gistingu fyrir þá sem þess óska er hjá Ferðaskrifstofu Austurlands,
Hannibal Guðmundssyni, Egilsstöðum, sími 471 2000, netfang: falegs@isholf.is
Í STYKKISHÓLMI var mjög fjöl-
breytt og sérstakt trúarlíf þegar ég
var að alast upp þar. Enn þann dag
í dag veit ég um Hólmara sem ekki
þora að henda frá sér steinum eða
hlutum á víðavangi af því að englar
gætu orðið fyrir. Í þessum litla bæ
var kaþólskur prestur, lúterskur
prestur, og fullt af nunnum, og
hvítasunnusöfnuðurinn var mjög
áberandi í sínu starfi. Á Skúlagöt-
unni var Fíladelfía (Fíló) og við
leigðum í kjallaranum þar, pabbi,
Erlingur Viggósson, kommúnistinn
sjálfur, fékk leigt hjá þessu heilaga
fólki. Í næstu götu, Tangagötunni,
bjó kaþólski presturinn séra Úbax
sem allir krakkar í hverfinu heim-
sóttu oft í viku og kölluðu KATÓ,
hjá honum voru lögð á ráðin um
næsta bardaga við uppfrátíkurnar
(við vorum tangatíkur). Við fengum
að spila á orgelið hjá honum, reykja
stóra vindla, renna okkur á bón-
uðum gólfunum, og þau minnstu
sveifluðu sér á hurðunum sem voru
fulningahurðir, svo hægt var að
standa á listanum, við sungum mik-
ið og dönsuðum, á sumrin vorum við
þarna í yfir og parís og oft var
presturinn með, þarna var alltaf
fullt af krökkum. Mitt á milli þess-
ara tveggja gatna var Sankti Frans-
iskusspítalinn þar sem öll yngri
börn bæjarins voru í kaþólskra
nunna pössun, með bænahaldi,
söngvum, og MALÚ sem er fyrsta
og merkilegasta teiknimynd allra
tíma að okkar mati sem vorum í
Spítalaskólanum. Þessi uppeldistími
fylgir flestum sem þarna voru þótt
þeir hugsi ekki út í það, og mörg
okkar skilja franskar skammir, sem
nunnurnar urðu að nota við okkur ef
við vorum óþekk. Svo var það prest-
urinn okkar, séra Sigurður Ó. Lár-
usson, þangað fóru líka mörg börn í
heimsókn, og við færðum honum
glansmyndir og teikningar en
stundum ekki neitt því hann gat
verið geðstirður, en konan hans var
engill, og sum okkar héldu að hún
hefði vængi undir peysunni eins og
hún Karólína matráðskona, sem all-
ir vissu að hafði a.m.k. nokkrar
fjaðrir. Allar stúlkur á vissum aldri
fóru í saumatíma á spítalanum hjá
systrunum tvisvar til þrisvar í viku
(þess vegna eru þær svona flinkar í
höndunum). Svo var það Fíló, þar
sem margt gamalt fólk kom saman
og söng fallega, við fórum alltaf á
samkomur fyrir börnin sem voru
mjög skemmtilegar, barnamessurn-
ar á sunnudögum í kirkjunni voru
ekki eins fjörugar, en við fengum
jesúmyndir sem við höfðum sem
skiptimynnt við ýmis tækifæri. Ég
gleymi ekki hávaðanum sem við
heyrðum stundum niður til okkar,
þá var örugglega verið að frelsa ein-
hverja sál í Fíló.
Þegar ég var 6 ára ákvað ég að
fara frekar með mömmu og pabba í
vonda staðinn en með Sigga sól, Jóa
í pakkhúsinu og Karólínu til himna,
svona tekur fólk oft snemma
ákvarðanir í lífinu, þótt aldrei sé of
seint að skoða málið uppá nýtt.
Bestu afmæliskveðjur til ykkar
allra, Droplaug ’51.
ANNA DROPLAUG
ERLINGSDÓTTIR,
Baugstjörn 4, Selfossi.
Hugvekja í tilefni ársins 2001
Frá Önnu Droplaugu
Erlingsdóttur:
HR. sjávarútvegsráðherra,
Árni M. Mathiesen.
Mig langar að koma á framfæri
ábendingu varðandi kvótasetningu
veiðiskipa.
Báturinn hjá mér er 10,76 tonn og
hefur verið kvótasettur síðan 1984.
Þá var kvóti settur á veiðistofna til að
hlífa þeim vegna ofveiði. Ef árangur
yrði af vernduninni átti það að koma
viðkomandi veiðiskipi til góða. Lítill
hefur árangurinn þó orðið.
Í upphafi kvótakerfisins var miðað
við 10 tonna báta. Bátar undir því
marki voru að miklu leyti frjálsir til
veiða. Allir þekkja þá hörmungar
sögu.
Nú síðast var ákveðið að hafa báta
undir 6 tonnum að mestu frjálsa.
Staðreyndin er hinsvegar sú að 6
tonna bátur í dag er orðinn stærri en
þessi 11 tonna bátur hjá mér og mun
öflugri (þrefölduð vélarstærð).
Vinsamlega berðu nú saman kvót-
ann hjá mér og þessum öflugu 6
tonna bátum, eins og þeir kæmu út
eftir kvótasetningu, samkvæmt nú-
verandi lögum.
Eins og allir vita eru þessir bátar
búnir að éta útúr fyrsta kerfinu, stór-
an kvóta og mættu vera sáttir við
það. Nú er mælirinn fullur og ef enn
verður gefið eftir eykst misræmið
ennþá meira.
Ég tel að jafnræði eigi að gilda
milli allra stærða af veiðiskipum. Það
er allt mælt uppá kíló hjá okkur en
bátar undir 6 tn veiða samtals tugi
þúsunda tonna framyfir úthlutaðan
kvóta. Það hefur engin áhrif að þeirra
sögn og margir alþingismenn eru
þeim sammála.
Ef þetta er jafnræði og sami dans-
inn á að vera í gangi áfram, þá skal ég
verða fyrstur manna til að fara í mál
við ráðuneytið, vegna framkvæmda
fiskveiðilaganna.
Byggðaröskun á Vestfjörðum er
allt annað mál og kemur jafnrétti til
fiskveiða ekkert við.
Við erum 2 eigendur að bátnum
Sæbjörgu BA59 (sknr. 1188) og bú-
um enn á Vestfjörðum þrátt fyrir
þröngan kost. Við ætlum að láta sjá
til enn um sinn áður en við pökkum
saman og flytjum í sæluríkið við
Faxaflóann.
HALLDÓR ÁRNASON,
Mýrum 8, Patreksfirði.
Opið bréf
Frá Halldóri Árnasyni:
DILBERT
mbl.is