Morgunblaðið - 01.05.2001, Side 27
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 27
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Eyfirðinga sem haldinn var sl.
laugardag samþykkti ályktun
þess efnis, að gengið verði í að
stofna formlega eignarhalds-
félag með vinnuheitinu KEA hf.
og færa allan rekstur, eignir og
skuldir svo og aðrar skuldbind-
ingar samvinnufélagsins KEA til
hins fyrirhugaða félags. Jafn-
framt var samþykkt að fresta að-
alfundinum og boða til fram-
haldsaðalfundar eigi síðar en 20.
júní nk., þar sem gengið verði frá
breytingunum.
Í máli Eiríks S. Jóhannsson-
ar kaupfélagsstjóra kom fram að
viðræður stæðu yfir við forsvars-
menn Goða hf. um samruna
Norðlenska ehf. og Goða og sé
niðurstöðu að vænta innan skamms.
Eiríkur sagði að ef af sameiningu
verður muni meginhluti kjötvinnslu
Goða verða fluttur til Akureyrar og
Húsavíkur og þannig fáist betri nýt-
ing á framleiðslutækjum Norðlenska.
Því séu miklar vonir bundnar við að af
sameiningu verði.
KÞ vill
sameinast KEA
Þá kom fram í máli Jóhannesar
Geirs Sigurgeirssonar, stjórnarfor-
manns KEA, að stjórn Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík hafi óskað eftir
sameingu við KEA. Jóhannes Geir
sagði að stjórn KEA hafi tekið vel í
erindi KÞ og að mikilvægt væri að fá
1.500–2.000 nýja félagsmenn inn í
KEA á þann hátt, auk þess sem sam-
eining myndi styrkja svæðið enn
frekar.
Eiríkur kaupfélagsstjóri sagði í
ræðu sinni á aðalfundinum að þróun í
efnahagsumhverfi landsins hafi verið
fyrirtækjum erfið og þar hafi Kaup-
félag Eyfirðinga ekki verið undan-
skilið. Hann nefndi að hækkun vaxta-
stigs, mikil lækkun á gengi íslensku
krónunnar, olíuverðshækkanir og ný-
ir kjarasamningar hafi m.a. framkall-
að verulega hækkun í kostnaðarlið-
um, hækkun sem félagið hafi haft
takmarkaða getu til að velta út í verð-
lagið. Þess í stað hafi verið unnið að
því að ná fram auknu hagræði í
rekstri félaga KEA með samruna
þeirra við önnur félög eða almennum
hagræðingaraðgerðum innan þeirra.
„Sá kostnaðarliður einstakur sem
hækkar einna mest á milli ára
er flutningskostnaður og sýnir
það okkur enn frekar sam-
keppnisstöðu okkar gagnvart
stærsta markaðssvæðinu á
landinu. Leyfi ég mér að
benda ráðamönnum landsins á
þessa einföldu staðreynd í
þeirri umræðu sem nú stend-
ur yfir um endurskoðun á
tekjuöflun ríkissjóðs því skatt-
tekjur ríkissjóðs eru umtals-
verðar af þessum einstaka lið,
hvort sem er í þungaskatti eða
virðisaukaskatti á neysluvör-
ur. Þrátt fyrir þessa stað-
reynd er engin ástæða fyrir
okkur að bogna í baki. Okkar
frumkvæði eingöngu er það
sem við getum reitt okkur á og
frumkvæði höfum við og með frum-
kvæði náum við árangri,“ sagði Eirík-
ur.
Jóhannes Geir, stjórnarformaður,
kynnti þær breytingar sem fyrirhug-
aðar eru með stofnun eignarhalds-
félagsins KEA hf. Í ályktuninni sem
samþykkt var á aðalfundinum var
jafnframt samþykkt að vinna að sam-
þykktarbreytingum á KEA svf. Þær
fela m.a. í sér að færa B-deild stofn-
sjóðs félagsins úr KEA svf. í KEA hf.
með þeim hætti að eigendur B-bréfa
eignist það hlutfall hlutabréfa í KEA
hf. sem samsvarar eign þeirra miðað
við eigin fé KEA svf. um síðustu ára-
mót, eða 14,22%. Að uppfæra A-deild
stofnsjóðs KEA svf. þannig að deildin
standi í 14,22% af eigin fé félagsins
miðað við síðustu áramót.
Unnið verði að stofnun eignarhaldsfélagsins KEA hf.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður
KEA, segir að stjórn Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík hafi óskað eftir sameiningu við KEA.
Viðræður um samein-
ingu Norðlenska og Goða
Morgunblaðið/Kristján