Morgunblaðið - 01.05.2001, Qupperneq 53
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2001 53
fórum saman á skólaárunum og
fyrir það hversu traustur og raun-
góður félagi hann var.
Við fráfall Þorláks Sigtryggsson-
ar er stórt skarð höggvið. Eig-
inkona og barnahópurinn stóri,
aldraðir foreldrar og systkini hafa
misst mest. Sveitungar hans sjá á
bak einum af máttarstólpum lítils
samfélags. Við fermingar- og
barnaskólasystkini, skólafélagar
frá Laugum og úr Menntaskólan-
um á Akureyri söknum vinar í
stað. Eftir sitjum við öll með þung-
bæran söknuðinn í hjartanu, en
líka þakklætið, þakklætið fyrir
kynnin af góðum dreng og það sem
hann fékk þrátt fyrir allt áorkað
þótt stuttur tími gæfist. Þorlákur
Sigtryggsson sóaði ekki tíma sín-
um í lífinu. Hann lét sinn hlut
hvergi eftir liggja, enda heilsteypt-
ur atorku- og reglumaður í bestu
merkingu. Hann var hörkugóður
námsmaður og hefði auðveldlega
getað valið sér leið langskólanáms
og fræðimennsku, en hann var
einnig mikill verkmaður og véla-
maður góður. Allt nýttist þetta
honum vel í því ævistarfi sem hann
valdi sér, búskapnum, og þar held
ég að hann hafi unað sér best.
Manni finnst ansi hart að þurfa
að kyngja því að Þorláki auðnist
ekki að njóta lengur ávaxta erfiðis
síns, hans nánustu lengur samvista
við hann, honum að fylgja yngstu
börnunum betur úr hlaði, eignast
barnabörn og sjá sólina seinna
meir taka að roðna á vel verð-
skulduðu ævikvöldi, en svona er
þetta víst. Far þú í friði, góði vin-
ur.
Ég sendi eiginkonu og börnum,
foreldrum, systkinum og öðrum
aðstandendum innilegar samúðar-
kveðjur mínar og fjölskyldu minn-
ar.
Steingrímur J. Sigfússon.
Það var fámennur, glaðvær og
samhentur hópur sem útskrifaðist
frá Menntaskólanum á Akureyri
vorið 1976. Menn horfðu björtum
augum til framtíðarinnar þar sem
allir vegir virtust færir og engir
þeir erfiðleikar til sem ekki mátti
sigrast á. Næstu árin tók við frek-
ara nám og daglegt amstur. Leiðir
lágu í ýmsar áttir og samskiptin
urðu strjálli. Því hafa sjálfsagt allir
hlakkað til samfundana sem skipu-
lagðir hafa verið í vor á 25 ára út-
skriftarafmælinu.
En dökkum skugga hefur nú
verið kastað yfir þessa endurfundi
þegar enn á ný er höggvið skarð í
hópinn. Þorlákur Sigtryggsson er
sá þriðji sem fellur frá langt um
aldur fram.
Þorlákur vann sér strax virðingu
og vináttu okkar skólafélaganna.
Hann var í senn glaðvær og traust-
ur félagi, reglusamur og vinamarg-
ur.
Þorlákur var afburðanámsmaður
sem tók virkan þátt í félagslífi
skólans, var gjaldkeri skólafélags-
ins og bridgefélagsins. Að auki tók
hann virkan þátt í öllu því sem við
bekkjarfélagarnir tókum okkur
fyrir hendur, sem var býsna
margt, og fyrir vikið sat námið oft
á hakanum. Fyrir Þorlák breytti
það litlu því að honum reyndist
þetta allt leikur einn og náms-
árangur hans var ætíð með miklum
ágætum.
Hugur Þorláks hefur án efa allt
eins staðið til langskólanáms en
aðstæður höguðu því svo að hans
hlutskipti varð að taka við búi föð-
ur síns á Svalbarði í Þistilfirði og
þar bjó hann rausnarbúi og valdist
sem fyrr til ýmissa ábyrgðarstarfa.
Hún er skrýtin þessi lífsins bók,
og enginn veit fyrr en að leiks-
lokum hvernig hún er skrifuð. Eitt
er víst að hvað varðar Þorlák þá
varð hans bók stutt, allt of stutt.
Mikill harmur er nú kveðinn að
fjölskyldu hans. Við samstúdentar
Þorláks og bekkjarfélagar viljum
senda eiginkonu hans og börnum,
sem og fjölskyldu hans allri, okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að styrkja þau
og styðja á þessum erfiðu tímum.
Fh. bekkjarfélaga og annarra
skólasystkina úr MA,
Sigurður Sigfússon.
✝ Sigurður Jóns-son fæddist að
Gimli í Grindavík
16. október 1907.
Hann andaðist á
Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 15.
apríl síðastliðinn.
Sigurður var sonur
hjónanna Jóns
Magnússonar og
Gróu Árnadóttur.
Hann var einn af sjö
börnum þeirra
hjóna og eru þau nú
öll látin. Sigurður
kvæntist Guðrúnu
Guðlaugsdóttur frá Keflavík ár-
ið 1926 en Guðrún lést 10. apríl
1970. Þau áttu einn fósturson,
Gunnar Sigurð Halldórsson ljós-
myndara, f. 13. nóvember 1950,
eiginkona hans er
Guðrún Ingvars-
dóttir, f. 30. maí
1953. Börn þeirra
eru: Birgir, f. 1974,
sambýliskona hans
er Ásthildur Björns-
dóttir, f. 1974 og
barn þeirra er Árný
Björk, f. 1996, og
Dagbjört, f. 1982.
Sigurður stund-
aði sjómennsku frá
Keflavík um 30 ára
skeið. Eftir það
starfaði hann við
trésmíðar á Kefla-
víkurflugvelli allt þar til hann
flutti til Reykjavíkur árið 1971
þar sem hann bjó eftir það.
Útför Sigurðar fór fram frá
Keflavíkurkirkju 24. apríl.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pétursson.)
Kveðja frá langafabarni.
Árný Björk.
Í dag kveð ég elskulegan tengda-
föður. Ég gleymi ekki laugardegin-
um fyrir páska er við klæddum þig í
nýjan náttjakka og þú sagðist vilja
fara heim. Þú fékkst ósk þína upp-
fyllta og sofnaðir snemma á falleg-
um páskadagsmorgni. Ég veit að
það verður vel tekið á móti þér. Ég
kynntist þér 18 ára gömul þegar ég
flutti inn á heimili þitt nýtrúlofuð
syni þínum. Allt frá því ég sá þig
fyrst vildirðu veg minn bestan og
varst minn besti vinur alla tíð. Það
þurfti alltaf svo lítið til að gleðja þig.
Það er ógleymanlegt þegar við fór-
um með þér á æskuslóðir þínar í
Grindavík og þú sýndir okkur tóft-
irnar af torfbænum sem þú áttir
heima í til 10 ára aldurs. Þetta var
þér eins og að fara í langt ferðalag
að skreppa út úr bænum. Að fá að
lifa í rúm 93 ár er mikil guðsgjöf,
alltaf frískur og vel ern fram á síð-
asta dag. Þú dvaldir síðustu 11 árin
á elliheimili og varst alltaf ánægður,
þú gast setið einn í herberginu þínu
og spilað harmonikkumúsík dag eft-
ir dag. Þú vildir alltaf vera fínn og
snyrtilegur. Ég á svo margar minn-
ingar um þig sem ég ætla að varð-
veita í hjarta mínu bara fyrir mig.
Þú varst einstakur afi, Birgir og
Dagbjört voru stærstu sólargeisl-
arnir í lífi þínu. Þú gafst þeim allt
það besta sem þú áttir, ást þína og
umhyggju og fyrir það vil ég þakka
þér.
Enn vér skulum skilja
skaparans að vilja,
hver fer heim til sín.
Lát oss aftur langa,
lífsins Herra’, að ganga
hingað heim til þín.
Og þótt vér ei hittumst hér,
gef oss fund á gleðistundu,
Guð, í ríki þínu.
(Vald. Briem.)
Ég bið algóðan guð að geyma þig.
Þín
tengdadóttir.
Elsku afi.
Nú er komið að kveðjustund og
upp í hugann koma ljúfar minningar
um þig. Ég er glöð yfir því að hafa
fengið að kynnast þér og eiga svona
góðan og einstakan afa eins og þig.
Við vorum sólargeislarnir í lífi þínu
og þú varst alltaf svo ánægður og
stoltur af okkur og í þínum augum
gat enginn gert neitt betur en við,
örlæti þitt og væntumþykja í okkar
garð var einstök. Mér er ógleym-
anlegt brosið þitt þegar þú sást okk-
ur koma að heimsækja þig, þú ljóm-
aðir alltaf þegar þú sást okkur. Þú
varst svo mikið snyrtimenni og
hugsaðir alltaf svo vel um allt sem
þú áttir og bar herbergið þitt það
með sér, þú hugsaðir um að allt væri
í röð og reglu fram á síðasta dag.
Elsku afi minn, ég veit að þú ert
kominn á góðan stað þar sem þér
líður vel, ég vil þakka þér fyrir allar
góðu stundirnar sem ég átti með
þér og minningar um þig munu lifa í
hjarta mínu um alla framtíð.
Þín
Dagbjört.
SIGURÐUR
JÓNSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
-
12%1-3-14
512%1( */ #)67
-8
%
.
% -
)!
!')!)(!
* -)
)" * $
)*$ # *
- * $ ' #*
* 4 *
- $ * $
* $ ) $
9 9,
-%-:;
'
, <+ " 9=+
8/ #)
/)3 $ ,7>
)
/%0
#0 /
%
1 %
2!
%
/
%
%
3!
!''!((!
#) $ )
$#? $ 0 +/$ 8
)
%
0 #*/ $
$ 80 +/ @ , 3/$
) 0 +/$
A<- + 8
11A3%-;
'8=)
?9 7B
#
4!
!
1
? +/ *$
-) 9+, " #$
? +/ * + #)-)- $
1' ? +/ *$
/ * + " ( $
+,/ *
5
--(@-
(( /) *
#A )
# $
6 $
4!
!
-
) $ +
+
* ) 0 "
) $
3/ ) $
) -
$
$
) # $
) '
A $
( ) % # %,
9 9, 9 9 9,
! "
#$#
% "
& $
'
(
"
( ! $!
" !" #
$% &'# "!" #
#! &#&# &'# "!" #
( # & &%!!)
%&#&# $ * &'# "!!)
&*& "&# #!+, &'# "!!)
- %'+#&# &'# "!!)
.+ /)#! 0 *!" #
)% '# '# 1