Morgunblaðið - 26.08.2001, Page 22
22 SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRUMKÖNNUN á viðhorf-um Íslendinga til klámsvar gerð í sumar af þeimHildi Fjólu Antonsdótturog Gunnhildi Kristjáns-
dóttur sem báðar eru nemendur í
félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Rannsóknastofa í kvennafræðum er
aðili að verkefninu sem hlaut styrk
frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
og dómsmálaráðuneytinu en um-
sjónarmenn eru þær Þorgerður
Einarsdóttir lektor í kynjafræði og
Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður
Rannsóknastofu í kvennafræðum.
Kveikjan að verkefnavinnunni var
meðal annars íslensk lög um klám,
en samkvæmt þeim er birting,
dreifing og sala kláms bönnuð hér á
landi. Hugtakið klám er þó hvergi
skilgreint í lögunum og merking
þess virðist vera háð tíðarandanum
hverju sinni. Vinna við verkefnið
hófst um miðjan maí en þá kynntu
Gunnhildur og Hildur Fjóla sér það
klámefni sem er á boðstólum hér á
landi, meðal annars hin svokölluðu
herratímarit, myndbandsspólur
sem eru seldar í erótískum versl-
unum og þau myndbönd sem leigð
eru undir borðið á sumum mynd-
bandaleigunum. Þær skoðuðu skil-
greiningar á klámi og einnig þau
lagaákvæði sem taka til kláms og
eftirlits með þeim. Að þessu loknu
hófust þær handa við samningu
spurningalista sem svo var lagður
fyrir um 300 þátttakendur í 17 fyr-
irtækjum, stofnunum og félagasam-
tökum á höfuðborgarsvæðinu. Þau
voru valin af hentugleika en þó var
reynt að ná sem mestri breidd í
þátttakendahópnum með tilliti til
kyns, aldurs, menntunar og launa.
Vel var gætt að öllum aðstæðum
þegar listinn var lagður fyrir og
hann var vel forprófaður. Heimtur í
könnuninni voru góðar, en 86%
þátttakenda svöruðu spurningalist-
unum. Í könnuninni var skoðað
hvaða merkingu fólk leggur í hug-
takið klám, en einnig viðhorf til mis-
munandi skilgreininga á klámi, til-
tekinna tímarita, þeirra laga sem
fjalla um klám og eftirlits með
klámi. Þá voru þátttakendum sýnd-
ar myndir úr tímaritum og af mynd-
bandshulstrum sem seld eru í ís-
lenskum verslunum og þeir beðnir
að taka afstöðu til myndanna.
Gunnhildur og Hildur Fjóla telja
mikilvægt að grafast fyrir um hvort
fólki finnist þessi mál vera í góðum
farvegi eða hvort það vilji aukið eft-
irlit með þessu efni, enda sé erfitt
fyrir stjórnvöld að grípa til aðgerða,
veiti almenningur þeim ekki aðhald.
Sterkust viðbrögð við mynd af
stúlku er virtist barnung
Könnunin tók einungis til efnis
sem fæst á íslenskum markaði og
það framboð sem er að finna á Net-
inu var ekki rannsakað, enda hefði
það útheimt annars konar aðferðir
og krafist mun meira fjármagns.
Gunnhildur bendir á að í könnun-
inni spyrji þær líka hvort fólki finn-
ist yfir höfuð mikilvægt að skil-
greina klám og hvaða skilning það
leggi í hugtök á borð við klám og
erótík. Að undanförnu hafa þær
Gunnhildur og Hildur Fjóla unnið
við að túlka niðurstöður könnunar-
innar og hafa þær hingað til sér-
staklega skoðað spurningu sem
snertir þá umræðu sem að undan-
förnu hefur átt sér stað um barna-
klám. Í könnuninni var þátttakend-
um sýnd mynd af fáklæddri stúlku
sem er, eða virðist vera, ókyn-
þroska, en mynd þessi vakti lang-
sterkust viðbrögð svarenda. Þátt-
takendum var ekki tilkynnt hvaðan
myndin væri, en hún er fengin úr
tímaritinu Hustler. Á myndinni er
auglýst símalína með textanum,
„Kreistu pínulitlu brjóstin mín og
leiktu með óspjölluðu píkuna mína.“
Í smáu letri neðst á myndinni kem-
ur fram að allar fyrirsætur séu eldri
en 18 ára, en af myndinni að dæma
gæti stúlkan sem þar situr fyrir
verið mun yngri. Þátttakendur voru
beðnir um að merkja við allt sem
þeir töldu eiga við af eftirfarandi sjö
orðum: særir blygðunarkennd
mína, klám, erótík, ofbeldi, kynferð-
islega örvandi, niðurlægjandi og
ólöglegt, en þeim var einnig gefinn
kostur á að koma með aðrar athuga-
semdir. Það er skemmst frá því að
segja að myndin vakti sterk nei-
kvæð viðbrögð meðal þátttakenda.
Gunnhildur og Hildur Fjóla telja
niðurstöðunar sýna fyrst og fremst
að fólk er ekki sátt við myndir á
borð við þessa. „Þó að þessi mynd
sé ekki endilega lýsandi fyrir mynd-
ir í þessu tiltekna tímariti er samt
efni á markaðnum sem almenning-
ur virðist telja að eigi að vera ólög-
legt,“ segir Gunnhildur. Þær benda
á að þótt myndin sé ekki dæmigerð
séu myndir af unglingsstúlkum
mjög algengar og iðulega ýjað að
því hversu ungar þær séu í mynda-
texta, innskotum og annarri fram-
setningu.
Kynin sammála um að myndin væri
ólögleg og niðurlægjandi
Þorgerður bendir á að mjög at-
hyglisvert sé að nánast enginn telur
myndina erótíska eða kynferðislega
örvandi. „Það gefur vísbendingu um
að fólki sé misboðið með myndinni.
Einnig vekur athygli að 50% svar-
enda merkja við orðið klám, en 76%
telja myndina vera ólöglega sem
okkur finnst vera merki um að fólki
finnist vanta sterkara orð en klám
til að lýsa þessu vegna þess hve
mjög myndin misbýður fólki,“ segir
Þorgerður.
Þær telja athyglisvert að kynin
séu sammála um að myndin sé ólög-
leg og að hún sé niðurlægjandi. Þó
virðist konur almennt hafa lægri
þröskuld en karlar, þær hafi til
dæmis notað fleiri orð en karlarnir
til að lýsa myndinni. Um 60% þátt-
takenda töldu að myndin væri nið-
urlægjandi og segja þær Gunnhild-
ur, Hildur Fjóla og Þorgerður að
það sé stór spurning hvort fólki
finnist mynd á borð við þessa nið-
urlægjandi fyrir konur, fyrirsætur
sem taka þátt í þessu, eða fyrir
karla. Þorgerður bendir á að margir
karlmenn sem taka afdráttarlausa
afstöðu á móti klámi, vændi og öðru
slíku telji mynd eins og þessa nið-
urlægjandi fyrir karlmenn og að
þeir fyrirverði sig fyrir meðbræður
sína sem hafi jákvæð viðhorf gagn-
vart slíkum myndum. Myndin veki
einnig upp stórar spurningar er
varða skilgreiningu á barnaklámi.
Gunnhildur og Hildur Fjóla fengu
upplýsingar ríkissaksóknara um ís-
lensk mál er varða barnaklám. Þar
kemur fram að aldrei hafi leikið vafi
á því að um börn sé að ræða í málum
af þessu tagi hér á landi. „Myndin
sem birtist í könnuninni telst hins
vegar ekki barnaklám samkvæmt
íslenskum lögum. Hún sýnir í raun
vandann í hnotskurn og það af-
mörkunarvandamál sem felst í því
að meta aldurinn á stúlkum sem
sitja fyrir á myndum sem þessum.
Það eru greinilega mjög sterk nei-
kvæð viðbrögð hjá almenningi við
svona efni. Við erum auðvitað alls
ekki að reyna að hengja eitthvert
ákveðið tímarit með þessu, heldur
bara að sýna hve óljós mörkin geta
verið,“ segir Þorgerður.
Ný löggjöf Norðmanna skilgreinir
barnaklám á víðari hátt
Hildur Fjóla bendir á misræmi
sem sé að finna í dómskerfinu. Í
greinargerð sem fylgdi frumvarpi
til breytinga á 210. gr almennu
hegningarlaganna sé miðað við 16
ára aldur einstaklinga við skilgrein-
ingu á barnaklámi, en í barnavernd-
arlögum sé miðað við 18 ára aldur.
„Fulltrúi ríkissaksóknara benti
okkur á að í málum sem varða
barnaklám og hugsanlega komi til
kasta þeirra yrði stuðst við barna-
verndarlög,“ segir Hildur.
Að sögn Gunnhildar og Hildar
Fjólu báru þær hina íslensku lög-
gjöf varðandi klám saman við lög-
gjöf hinna Norðurlandanna. Þær
segja að norska löggjöfin sé sú eina
sem taki á því vandamáli sem upp
komi þegar myndin umrædda sé
skoðuð, en í nýrri löggjöf Norð-
manna sé skilgreining á barnaklámi
ekki lengur bundin við ákveðinn
aldur heldur framsetningu og áhrif
myndefnis. Samkvæmt norsku lög-
gjöfinni telst til barnakláms það
klámefni sem sýnir raunveruleg
börn, einstakling sem lítur út fyrir
að vera barn eða er látinn líta út
fyrir að vera barn.
Yngra fólk sýndi sterkari viðbrögð
en eldri þátttakendur
Í ljós kom að fólk yngra en 40 ára
sýndi almennt sterkari viðbrögð við
myndinni en eldra fólk og tölfræði-
lega marktækur munur var milli
yngra og eldra fólks hvað varðar
merkingar við fullyrðingarnar:
ólöglegt, niðurlægjandi og ofbeldi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gunnhildur Kristjánsdóttir og Hildur Fjóla Antonsdóttir hafa unnið að könnun um viðhorf Íslendinga til kláms. Á milli þeirra er ann-
ar leiðbeinandi þeirra við verkefnið, Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynjafræði.
Hvað er barnaklám?
Munur á afstöðu kynjanna til myndarinnar kom helst fram í því að
fleiri konur en karlar töldu myndina særa blygðunarkennd sína og
einnig skilgreindu fleiri konur en karlar myndina sem klám og ofbeldi.
Klám er bannað á Íslandi, samkvæmt 210. grein almennu hegn-
ingarlaganna en hugtakið klám er þó hvergi skilgreint í lögunum.
Í sumar hafa háskólanemarnir Hildur Fjóla Antonsdóttir og
Gunnhildur Kristjánsdóttir unnið að frumkönnun á viðhorfum
fólks til kláms og meðal annars skoðað sérstaklega spurningu í
henni sem snertir þá umræðu sem hefur átt sér stað um barnaklám
Könnun á viðhorfi Íslendinga til kláms