Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sjúkraþjálfun Styrkur
Hópatafla 2001-2002
Mánudagur Þriðjudagur Fimmtudagur Föstudagur
10:00 Leikfimi fyrir konur Leikfimi fyrir konur
11:30 Hjartahópur Hjartahópur
12:00 Hádegispúl Hádegispúl
15:00 Vefjagigtarhóp. 1 Leikf. f. of þung börn Vefjagigtarhóp. 1 Leikf. f. of þung börn
16:00 Vefjagigtarhóp. 2 Vefjagigtarhóp. 2
17:15 Bakleikfimi 17.15 Bakleikfimi 17.15
18:30 Bakhóp. 18.30-19.40 Bakhóp. 18.30-19.40
Upplýsingar og skráning í síma 587 7750 eða í Stangarhyl 7, 110 Rvík
Takmarkaður fjöldi er bókaður í hópana og vel er fylgst með hverjum og
einum. Aðstaðan er góð, þjálfunarsalur og vel útbúinn tækjasalur en frjáls
aðgangur er að tækjasal. Leiðbeinendur eru allir sjúkraþjálfarar sem hafa
sérhæft sig á ýmsum sviðum.
Hópastarfið hefst fimmudaginn 6. september.
ÁRIN FJÖGUR síðan þriðja sóló-
plata Bjarkar Guðmundsdóttur,
Homogenic, kom út hafa verið meira
en lítið ævintýraleg fyrir Björk, sem
þó ætti að vera vön ævintýralegu lífi.
Nægir að nefna allt umstangið í
kringum kvikmyndina Myrkradans-
arann sem var í senn ólýsanlega
hræðileg og frábærlega leikin með
framúrskarandi tónlist, verðlauna-
veitingar og tilnefningar og svo loka-
punktinn á kvikmyndaferli Bjarkar,
að því er hún sjálf segir, þegar hún
kom fram sem svanur á Óskarsverð-
launahátíðinni og verpti eggjum.
Þótt tónlistin úr þeirri mynd hafi
komið út á plötu var það ekki eig-
inleg Bjarkarplata, því lögin hlutu að
lúta framvindu myndarinnar. Á plöt-
unni var þó eitt lag, Cvalda, sem gaf
til kynna hvað væri í vændum, því
hljóðaheimurinn sem þar var kynnt-
ur stakk nokkuð í stúf við annað úr
myndinni. Björk lét þau orð reyndar
falla í viðtali fyrir skemmstu að síð-
asta lag Homogenic, All is Full of
Love, væri í raun fyrsta lagið á
Vespertine.
Myrkradansarinn gekk fyrir
Vespertine varð aftur á móti að
bíða því Myrkradansarinn og tónlist-
in við þá mynd gekk fyrir. Um það
leyti sem Björk var í miðjum tökum
á Myrkradansaranum í Danmörku
fór Valgeir Sigurðsson utan með tól
og tæki. Eftir því sem stund gafst
milli stríða unnu þau jöfnum höndum
að tónlistinni fyrir myndina og einn-
ig hugmyndir fyrir næstu plötu.
Meðal annars segist Björk hafa
tekið upp ýmis hljóð heima fyrir til
að ná fram heimilisblænum og um
tíma hugðist hún kalla plötuna Dom-
estica, til að undirstrika enn frekar
um hvað hún snerist, en þótti það
síðan óþarfi, nóg væri að ná stemmn-
ingunni í hljóðaheiminum á plötunni,
hún þurfti ekki að vera fyrir hendi í
titlinum líka. Nýi titillinn, Vespert-
ine, sem vísar til aftansöngs, þótti
henni síðan henta betur þegar á
reyndi, enda voru lögin samin í ís-
lensku vetrarmyrkri; vetrarplata,
þar sem hún situr inni í eldhúsi ein
með fartölvuna og hvíslar allan vet-
urinn og inntak plötunnar það að búa
sér til heim, paradís, innra með sér. Í
viðtali sem birtist á vefmiðlinum
CDNow segir hún að mestu skipti að
hlusta á nýja tónlist, það sé kannski í
lagi að hlusta á hundrað ára gamla
tónlist einn dag á ári, en hina dagana
eigi menn að hlusta á eitthvað nýtt;
mestu skipti að miða áfram.
Frekari vinna fór síðan fram á
Spáni og síðastliðið sumar kom
Björk sér svo upp vinnubúðum í
New York og fékk Zeenu Parkins
meðal annarra til liðs við sig að vinna
lögin frekar. Lokavinnsla
fór síðan fram í Lundún-
um. Upphaflega stóð til
að gefa plötuna út í maí
síðastliðnum, enda var
hún þá tilbúin, en ým-
islegt varð til að seinka
útgáfu, meðal annars
myndbandavinnsla og
markaðsmál.
Ýmsir samstarfsmenn
Eins og jafnan áður kallaði Björk
ýmsa tónlistarmenn til liðs við sig
þegar kom að því að vinna plötuna,
en meðal sam- starfsmanna eru
þeir Andrew Daniel og Martin
Schmidt sem skipa Matmos-tvíeyk-
ið, Marius DeVries, slagverksleikar-
inn hollenski sem áður hefur leikið
með Björk, hörpuleikarinn Zeena
Parkins, danski danstónlistarmaður-
inn Thomas Knak og Guy Sigsworth,
sem hefur komið við sögu á flestum
plötum Bjarkar.
Þeir listamenn sem hún vinnur
með koma hver úr sinni áttinni.
Thomas Knak er danskur eins og
getið er, en Björk heyrði plötu hans
Objects For An Ideal Home og
hringdi í Knak þegar hún var stödd í
Danmörku í kvikmyndastússi. Hann
leggur til hljóð og hrynskipan í
tveimur lögum, Undo og Cocoon.
Zeena Parkins er með merkustu
tónlistarmönnum í bandarískri ný-
tónlist, en hún leikur á hörpu, píanó,
harmonikku og hljóðsmala jöfnum
höndum, hvort sem hún er að leika
djass, nútímatónlist eða hreina fram-
úrstefnu. Parkins kom meðal annars
hingað til lands með Skeleton Crew
Freds Friths á sínum tíma og von-
andi muna einhverjir eftir þeim tón-
leikum, en annars hefur hún unnið
með Elliot Sharp, Anthony Braxton
og kvennarokksveitinni Hole svo
dæmi séu tekin.
Þeir Matmos-félagar vöktu mikla
athygli fyrir skífu sína Quasi-
Objects sem kom út 1998, en á henni
leika þeir sér með hljóðbúta úr ólík-
legustu áttum. Sú plata þykir af-
skaplega vel heppnuð, en á nýjustu
breiðskífu þeirra félaga, A Chance to
Cut Is a Chance to Cure, sem ekki
hefur borist hingað til lands, beita
þeir ýmsum hljóðum sem hljóðrituð
eru á skurðstofum, til að mynda
soghljóðið við fitusog, en báðir eru
þeir Daniel og Schmidt læknasynir.
Framúrskarandi dómar
Þótt platan sé ekki enn komin út
hafa þegar birst dómar um hana hjá
mörgum helstu dagblöðum og tón-
listartímaritum heims. Þar hefur
Björk fengið frábæra dóma fyrir
frumleika og innihaldsríka tónlist og
gengur meðal annars svo langt að
tónlistargagnrýnandi The Times
lætur þau orð falla að Björk sé svo
hæfileikarík að hún geri flestum
dægurtónlistarmönnum skömm til.
Aðrir leggja áherslu á að Vespertine
sé besta plata Bjarkar hingað til og
um leið persónulegasta verk hennar,
sem sé á sama tíma nýstárlegt og að-
gengilegt.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Aftansöngur
Bjarkar
Á morgun kemur út fjórða sólóskífa Bjarkar
Guðmundsdóttur, Vespertine. Árni Matthíasson
segir frá aðdragandanum að plötunni
og plötunni sjálfri.
Aðdáendur Bjarkar Guðmunds-
dóttur hafa beðið lengi eftir
nýja disknum Vespertine.
Umslagið á Vespertine sem
kemur út á morgun.
ÞAÐ voru yfir 1000 spurningar
sem bárust Björk „okkar“ Guð-
mundsdóttur er hún tengdi sig inn
á Netið til þess að svara spurn-
ingum aðdáenda sinna á heima-
síðu hins virta dagblaðs The Tim-
es á föstudaginn. Þar var hún
spurð spjörunum úr um hin ýmsu
málefni sem brunnu á fing-
urgómum netgesta.
Þegar hún var spurð hvað
henni finnist um það að plata
hennar Vespertine, sem kemur út
á mánudag, hafi verið fáanleg á
Netinu í sex mánuði svaraði hún;
„Hún lak út fyrr en ég kærði
mig um en á endanum tel ég mig
eiga það dyggan hlustendahóp að
þeir hafi bara verið forvitnir að
heyra nýja tóna eins fljótt og
hægt var, og það er gott. Ég held
líka að það skipti ekki máli
hversu margir hafa vistað plötuna
inn á tölvuna sína því meirihluti
þeirra mun vilja eiga geisladisk-
inn. Kannski er þetta barnalegt af
mér, en ég held að fólk hafi ennþá
gaman af því að halda á umslag-
inu, skoða það og lesa textana yfir
er þeir hlusta á lagið. Mér finnst
gaman að gera það og vinum mín-
um líka. Ef ég hefði getað stjórn-
að því hvenær platan hefði farið á
Netið, hefði það verið fyrir þrem-
ur mánuðum en ekki sex.“
Ein spurning, sem hefur líklega
heimsótt marga, er hvort svan-
urinn sem söngkonan klæddist á
Óskarsverðlaunahátíðinni og á
plötuumslaginu nýja, hafi ein-
hverja merkingu og þá hvaða. Að-
spurð hafði hún þetta að segja um
málið;
„Ég lít á Vespertine sem tónlist-
arlegt þróunarskref fyrir mig
jafnt og sem fráhvarf frá fyrri
verkum. Svanurinn er viðeigandi
merki fyrir þetta framfaraskref.“
Tónleikaferð Bjarkar hófst í
þar síðustu viku og hefur sú
ákvörðun söngkonunnar að halda
nokkra vel valda tónleika á litlum
stöðum, þar sem fjöldi gesta er
takmarkaður við 300, vakið mikla
athygli. Tónleikarnir eru aðeins
auglýstir samdægurs á heimasíðu
hennar, www.bjork.is, og er bar-
ist um miða með kjafti og klóm.
Skiljanlega var Björk spurð að því
hvort hún hefði engar áhyggjur af
að valda þeim aðdáendum sem
ekki ná í miða á þá tónleika, von-
brigðum.
„Ég er að reyna að tvinna sam-
an tvo hluti með þessari tónleika-
ferð. Í fyrsta lagi að koma fram á
fallegustu , minnstu, nánustu stöð-
unum þar sem ég get sungið án
þess að styðjast við hljóðnema.
Það er upplagðasta leiðin til þess
að hlýða á tónlistina á Vespertine.
Það er erfitt að koma til móts við
miðaeftirspurnina. Ég er svo upp
með mér að svona margir vilji
koma á tónleikana mína og þess
vegna kem ég líka fram í stærri
leikhúsum, sölum og óperuhúsum.
Stöðum sem hafa eins góðan
hljómburð og kostur er á. Þess
vegna er ég með stóra og litla
tónleika. Vonandi, þegar tónlistin
vex, geta tónleikastaðirnir vaxið
líka, kannski í öðruvísi sýningu á
næsta ári.“
Eins og sagði áðan var Björk
spurð að alls kyns hlutum, allt frá
því hvort hún væri hunda- eða
kattamanneskja, upp í það hvort
hún hefði áhuga á því að gera
tónlist með Kate Bush. Áhugasöm-
um er bent á útdrátt af netspjall-
inu, þar sem fram koma valdar
spurningar og svör á heimasíðu
dagblaðsins, www.thetimes.co.uk.
Vildi að platan hefði
farið seinna á Netið
Seinustu ár í lífi Bjarkar hafa verið ævintýraleg.
biggi@mbl.is
Björk í netspjalli á heimasíðu breska dagblaðsins The Times