Morgunblaðið - 06.10.2001, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 29
VETTVANGSVERKEFNIÐ „Lista-
maðurinn á horninu“ efnir til
þrautar í Ellliðaárdalnum Breið-
holtsmegin í dag. Þrautin felst í því
að leita að verki Ingarafns Stein-
arssonar. Um verkið segir lista-
maðurinn: „Ég kem fyrir hlut í
náttúrunni sem er samt inni í borg.
Á slíkum stöðum eru oft hlutir sem
hafa ekki augljósan tilgang, eru
leifar eftir einhverjar fram-
kvæmdir. Hálf blaðsíða úr 300
síðna bók. Þetta verk er tilraun til
að líkja eftir þessum hlutum, eða til
að verða einn slíkur.“ Sá sem fyrst-
ur hringir með rétta svarið fær
verðlaun, símanúmerið er 867 4011. Verk Ingarafns, sem leitað er að, er úr steinsteypu.
Leit að
listaverki
HALDNIR verða tónleikar í Smára,
sal Söngskólans í Reykjavík, í dag kl.
17. Flytjendur verða Þórhallur
Barðason baríton og Ólafur Vignir
Albertsson píanóleikari. Á efnis-
skránni eru m.a. verk eftir Sigvalda
Kaldalóns, Sigfús Halldórsson,
Schubert, Beethoven og Verdi.
Söngtónleikar
í Smára
GALDRAR nefnist myndlistarsýning
sem opnuð verður í Listasafni Borg-
arness í dag kl. 14. Þar sýnir Sigrid
Østerby grafíklist og verk unnin með
blandaðri tækni. Megininntak sýn-
ingarinnar tengist kynnum lista-
mannsins af Finnmörk og Sömum.
Sýningin er opin virka daga kl. 13-
18 og þriðjudags- og fimmtudags-
kvöld til kl. 20. Sýningin stendur til 2.
nóvember.
Galdrar í
Borgarnesi
OPIÐ hús verður hjá Heimilisiðnað-
arfélagi Íslands í dag kl. 12-17. Starf
félagsins og Heimilisiðnaðarskólans
verður kynnt, sýnt handverk af ýms-
um toga sem kennt er í skólanum,
m.a. tóvinna, knipl, spjaldvefnaður
og þjóðbúningagerð.
Opið hús
hjá HFÍ
FRÍÐA S. Kristinsdóttir vefari opn-
ar sýningu í Listasal Man, Skóla-
vörðustíg 14, í dag kl. 15. Á sýning-
unni eru ofin verk úr hör, pappír og
vír og verk unnin með blandaðri
tækni, til dæmis handgerðum papp-
ír, kosotrefjum og geitarskinni.
Sýningin er opin mánudaga til
laugardaga kl. 10–18 og sunnudaga
kl. 14–18.
Listvefnaður
í Man
SÝNING á útskurðarverkum Siggu
á Grund í Sjóminjasafni Íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, sem ljúka
átti 30. september, mun standa til
sunnudags. Frá 1. október til 30. maí
er safnið opið um helgar og eftir
samkomulagi.
Sýning
framlengd
SÝNING á vatnslitamyndum eftir
Nikulás Friðrik Magnússon í Gallery
Hár og list, Strandgötu 39, Hafnar-
firði, verður opnuð í dag.
Nikulás er fæddur í Reykjavík
1945. „Á sjöunda áratugnum hóf hann
nám í Iðnskólanum í Reykjavík og
þar kynntist hann Eggert Guðmunds-
syni listmálara sem kenndi teiknun,
þar kviknaði áhugi hans á myndlist
fyrir alvöru og í kjölfarið sótti hann
námskeið í Myndlistaskóla Íslands og
hjá einkaaðilum,“ segir í kynningu.
Þetta er önnur einkasýning Niku-
lásar sem er opin á verslunartíma og
um helgar frá kl. 14-17 og eru flestar
myndirnar til sölu. Sýningin stendur
til 22. október.
Vatnslitir í
Hár og list
VERA Sörensen listamaður opnar
málverkasýningu í sýningarsal Gall-
erís Reykjavíkur í dag kl. 15.
Vera er fædd og uppalin í borginni
Gorsk í Lugansk-héraði í Úkraínu.
Hún útskrifaðist úr Menningarhá-
skóla í Rússlandi, stjórnaði dans-
flokki og var aðstoðarleikstjóri í
kvikmyndaveri áður en hún flutti til
Íslands árið 1994.
Vera Sörensen
sýnir málverk
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
RÚSSNESK kvikmynd frá árinu
1934, Kátir félagar, verður sýnd í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á morgun
kl. 15. Þetta er sögð vera fyrsta sov-
éska söngvamyndin. Naut hún mik-
illa vinsælda og hlaut fádæma mikla
aðsókn í Sovétríkjunum á sínum
tíma. Leikstjóri kvikmyndarinnar
var Grígoríj Alexandrov, sem var
einn af nánustu samstarfsmönnum
Sergeis Eisenstein. Tónlistin er eftir
Dúnajevskí. Myndatökumaðurinn
bar norrænt nafn, hét V. Nielsen, en
með helstu hlutverkin í kvikmynd-
inni fara L. Útesov og Ljúbov Orl-
ova, eiginkona leikstjórans. Kvik-
myndin er sýnd án þýddra texta.
Aðgangur er ókeypis.
Söngvamynd
sýnd í MÍR