Morgunblaðið - 06.10.2001, Page 50

Morgunblaðið - 06.10.2001, Page 50
MINNINGAR 50 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðjón Guðjóns-son fæddist 18. júní 1908 í Stokks- eyrarseli í Stokks- eyrarhreppi í Flóa. Hann lést hinn 27. september síðastlið- inn. Foreldrar Guð- jóns voru hjónin Guð- jón Einarsson og seinni kona hans Helga Halldórsdótt- ir. Hann fluttist 5 ára með foreldrum sín- um að Nýjabæ í Sandvíkurhreppi og ólst þar upp uns faðir hans dó 1926. 1927 brá móðir hans búi og fór hann þá að Laugardæl- um í kaupavinnu til Eggerts Bene- diktssonar. Guðjón var í vega- vinnu þegar til féll og fleiri störfum á þessum árum. Árið 1933 gekk hann að eiga Kristínu Guðmundsdóttur, f. 13. október 1901, d. 10. mars 1988. Börn þeirra eru Sigríður, f. 1933, Helga, f. 1935, Gróa Steinunn, f. 1936, og Ólafur, f. 1938. Fóstursonur Guðjóns og Kristínar er Bragi Antonson, f. 1949. Árið 1934 fóru Guðjón og Kristín í húsmennsku að Hró- arsholti en 1935 fékk hann ábúð á jörðinni Glóru í Hraungerðis- hreppi. Þar bjuggu þau í eitt ár en 1936 fluttust þau að Bollastöðum í Hraungerðishreppi og var Guðjón þar samfellt í 65 ár. Útför Guðjóns fer fram frá Hraungerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Afi minn á Bollastöðum og ég áttum sama afmælisdag, 18. júní. Afi var alltaf árinu á eftir í tugnum eins og við tókum til orða. Ég vissi þannig alltaf hvað hann var gamall, dró bara eitt ár frá og bætti við tugunum. Afi var níutíu og þriggja ára þegar hann dó og ég er núna þrjátíu og fjögurra ára. Afi gerði margt á langri ævi. Hann var bóndi og líka gestgjafi því það var oft mikill gestagangur á Bollastöðum og er raunar enn. Síðast í haust þegar réttarsúpan var í fjórum pottum að kvöldi réttardags. Tæp- um hálfum mánuði síðar var afi all- ur. Þegar ég var lítill var ég sendur í sveit eins og fleiri krakkar. Ég fór á Bollastaði þar sem margir höfðu verið í sveit á undan mér hjá afa og ömmu. Það segir sitt um atlætið sem þetta sumarfólk fékk að flest hélt það tengslum við Bollastaði og gerir enn. Ég var stundum pínulítið hræddur við afa enda gat hann ver- ið hrjúfur. Það var þó bara á yf- irborðinu og afa þótti vænt um allt sem lífsandann dró. Lífsbaráttan var líka oft hörð og hlutirnir komu ekki af sjálfu sér. Mér fannst oft gaman í sveitinni, sérstaklega að reka kýrnar í rólegheitum í kvöld- mjaltirnar, stundum með frænda mínum Magnúsi. Ein af mínum skýrustu minningum úr sveitadvöl- inni á Bollastöðum var þegar ein kýrin elti okkur frændurna yfir holt og móa. Við komust naumlega und- an. Ég vinn við að skrifa fréttir og vil fylgjast vel með. Það hef ég lík- lega frá afa því hann fylgdist vel með þjóðmálum allan sinn aldur og hafði á þeim ákveðnar skoðanir. Það þýddi lítið fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að leita eftir atkvæðum á Bollastöðum. Ég var aldrei al- mennilega viss um hvað afi kaus en það var að minnsta kosti ekki D- listinn! Sjálfstæðismenn voru þó auðvitað velkomnir á Bollastaði eins og aðrir enda þótti afa gaman að tala um pólitík. Sumir af hans bestu vinum voru líka sjálfstæðismenn. Ég og mín fjölskylda komum síð- ast á Bollastaði í sumar til að smala og rýja. Það var góður dagur og gaman að hitta afa. Hann hafði orð á því að samkvæmt síðustu skoð- anakönnunum væri Sjálfstæðis- flokkurinn að gefa eitthvað eftir og talaði síðan um fleira sem tengdist pólitík. Þannig var Guðjón Guðjóns- son á Bollastöðum, alltaf með á nót- unum, nánast til dauðadags. Og þannig vildi hann líka hafa það. Hann var maður með ríka réttlæt- iskennd og hafði samúð með lít- ilmagnanum. Það er gott veganesti sem fjölmargir afkomendur afa hafa fengið í arf. Blessuð sé minning Guðjóns Guð- jónssonar, bónda á Bollastöðum. Hann fer nú til ömmu og áfram heldur gestagangurinn eins og amma orðaði það, bara á öðrum stað. Sveinn Helgason. Fyrir u.þ.b. 30 árum kom að Bollastöðum í fyrsta sinn ókunnug stúlka úr Reykjavík og falaðist eftir tamningu fyrir norðlenska folann sinn. Það var auðsótt mál en það sem fylgdi með í tamningunni og hún átti ekki von á, var ævilöng vinátta og umhyggja af hálfu þeirra Bollastaðahjóna Guðjóns og Krist- ínar, sem og barna þeirra Óla, Gróu, Helgu og Siggu. Eftir góð kynni vegna tamningarinnar var stúlkan orðin ein af Bollastaða- „stórfjölskyldunni“, en þeir, sem fylltu þann hóp voru bæði fyrrver- andi sumardvalarbörn, hestafólk og ýmsir, sem vegna aðstæðna sinna þáðu hjartagæsku og umhyggju fjölskyldunnar á Bollastöðum. Heimilið að Bollastöðum var alltaf opið þessu fólki, hvort sem pláss var eða ekki og alltaf var nóg til að veita. Á Bollastöðum var og er al- veg einstakt viðmót gagnvart gest- um og gangandi, alltaf nógur tími fyrir hvern og einn og ég veit að fjölmargir voru þeir, sem þáðu hlýju þeirra, gestrisni og húsaskjól í gegnum tíðina. Guðjón bóndi á Bollastöðum er nú fallinn frá saddur lífdaga. Hann varð aldrei stórbóndi í veraldlegri merkingu þess orðs, en stórhjart- aður mannvinur í alla staði og höfð- ingi mikill í lund. Guðjón var orðinn roskinn maður þegar kynni okkar tókust en hreif mig strax með sínum hrífandi, hlýja persónuleika. Hann sýndi öllum sama áhuga og var yfirleitt hrókur alls fagnaðar við gestakomur að Bollastöðum. Hann elskaði sveitina sína og skepnurnar og undi glaður við sitt. Honum líkaði vel áhugi fólks á sveitalífinu og hrossunum og var óspar á að uppörva og sam- gleðjast. Ég sé hann fyrir mér sitj- andi við eldhúsborðið á Bollastöð- um, brosandi sínu sérstaka, tannlausa brosi, augun ljómandi af áhuga á mönnum og málefnum. Hann var spurull um hætti og hagi manna og kom oft með yndislegar tilvitnanir með sinni ekta sunn- lensku mállýsku. Hann vildi vita hvað „blessaðir karlarnir væru að sarga“ og líkaði illa ef gestir voru á hraðferð og gáfu sér ekki tíma til að þiggja veitingar og spjall. Ég kvaddi hann fyrir 2 vikum en þá mátti ætla að hverju stefndi. Hann var þá lasburða og rúmliggjandi en vel með á nótunum. Honum þótti miður að komast ekki í Skeiðaréttir en rifjaði upp 30 ára gamlan at- burð, þar sem við riðum saman í réttir og sagði: „Manstu þegar sá brúni rauk með þig forðum á Skeiðaveginum. Þá varð ég smeyk- ur um þig, Guðlaug mín.“ Og hann brosti sínu breiðasta og í augum hans sá ég glampa frá fornri tíð og veit að hann sá þetta ljóslifandi fyr- ir sér. Það hefur verið þroskandi og mannbætandi að þekkja Guðjón Guðjónsson á Bollastöðum og alla hans fjölskyldu. Ég vil þakka hon- um samfylgdina og vona að hans bíði blómlegar sveitir og góðir gæð- ingar fyrir handan. Guðlaug M. Jónsdóttir. GUÐJÓN GUÐJÓNSSON ✝ Kristín ÓlöfMagnúsdóttir fæddist á Hvamms- tanga 20. september 1945. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 30. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Magnús Kristinn Guðjónsson, f. 12. október 1920, d. 16. desember 1999, og Steinunn Bergþórs- dóttir, f. 11. ágúst 1919, d. 23. janúar 1990. Ólöf var næstyngst sinna systkina en þau eru: Þórir, Ingi- björg, Alda og Hólmar. Hinn 13. júlí 1968 giftist Ólöf eftirlifandi eigin- manni sínum, Stef- áni Þórarinssyni, f. 3. janúar 1944, og bjuggu þau á Reyð- arfirði allan sinn búskap. Börn þeirra eru: Elín María, f. 1. nóvem- ber 1968, maki hennar er Sigurður Halldórsson og son- ur þeirra er Krist- ófer; og Þórarinn Magnús, f. 1. októ- ber 1970. Útför Ólafar fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Í dag er til grafar borin kær vin- kona okkar Ólöf Magnúsdóttir. Hún hefur undanfarin ár háð baráttu við illvígan sjúkdóm sem nú hefur haft sigur. En eins og hennar var von og vísa var sú barátta háð með bjart- sýni og miklum sigurvilja. Ekki grunaði mig þegar hún heimsótti mig í ágúst síðastliðnum að þetta væri okkar hinsti fundur. Þá var hún að bíða eftir að fara í erfiðan upp- skurð sem enginn vissi hvernig myndi takast. En Ólöf var létt í skapi að vanda, húmorinn hennar góði enn á sínum stað og hún spurði enn og aftur hvort við ætluðum ekki að fara að flytja austur aftur. Kynni okkar af Ólöfu hófust þeg- ar við urðum nágrannar þeirra Stef- áns á Reyðarfirði. Þegar við fórum að kynnast betur varð hún einn af föstu punktunum í okkar lífi, því að varla leið sá dagur að Ólöf kæmi ekki í kaffi og spjall. Eða eins og hún orðaði það svo skemmtilega, þegar hún var að býsnast yfir gesta- ganginum hjá okkur: „Ég er nú bara eins og hvert annað húsgagn hérna, ég er enginn gestur.“ Börnin okkar hændust að henni og alltaf komu þau maulandi eitthvað góðgæti sem Ólöf hafði bakað eða átt í búrinu sínu þegar þau fóru í heimsókn. Yngri dóttir okkar sótti sérstaklega í að heimsækja þau Ólöfu og Stefán. Þegar hún var innt eftir ástæðunni stóð ekki á einlægu svari. Jú, þar var svo gott að fá frið til að leika sér og Ólöf nennti alltaf að hlusta á hana. Ólöf var sterkur persónuleiki og sagði skoðanir sínar ávallt umbúða- laust. Hún var vel að sér í þjóðmál- unum og var mikið í mun að allir gengju jafnir frá borði og fólki væri ekki mismunað eftir stétt eða stöðu. Ólöf hafði einstaka og notalega kímnigáfu sem allir fengu að njóta sem henni kynntust. Hún var vinur vina sinna og hæg voru heimatökin að leita til hennar og fá stuðning hvort sem var í gleði eða sorg. Þegar ég ákvað að fara suður í nám, studdi hún mig heilshugar í þeirri ákvörð- un, þó að hún segði jafnframt að ég yrði þá líka að koma austur aftur að námi loknu svo að vinskapur okkar yrði samur og áður. Ólöf bjó Stefáni og börnum þeirra fallegt og hlýlegt heimili og ekki var garðurinn hennar síðri, en þar eyddi hún mörgum stundum í að rækta og prýða. Hún var forkur til allra verka og flest virtist leika í höndum henn- ar. Við viljum kveðja Ólöfu með til- vitnun í Debbie Alicien sem sagði: „Vinur er sá sem gefur okkur frjáls- ræði og olnbogarými til að vera eins og við erum.“ Stefáni, Ellu Mæju, Tóta, Sigga og Kristófer litla sendum við inni- legar samúðarkveðjur og einnig færum við kveðjur frá foreldrum okkar. Megi Guð styrkja ykkur. Anna Árdís, Indriði og börn. Mig langar að minnast mágkonu minnar, Ólafar, með örfáum orðum. Ég man þegar hún kom fyrst til Reyðarfjarðar til að vinna í síld. Þá var síldarsöltun í hámarki. Hand- fljótari manneskju hef ég ekki séð, hvorki fyrr né síðar, þar sem ég þá, 12 ára gömul stóð hinum megin við borðið og fylgdist með henni. Síðan vann hún hug og hjarta Stefáns bróður míns og þegar þau eignuðust sitt fyrsta barn, var ég fengin til að passa. Mér er minnisstætt allt bakk- elsið og fíneríið sem beið mín í Búrinu. Kæra mágkona, lífið er hverfult og enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Þú greindist með krabbamein fyrir þremur árum, en lést engan bilbug á þér finna, talaðir opinskátt um sjúk- dóminn, rétt eins og aðrir tala um veðrið. Og það finnst mér aðdáun- arvert. Þú kvartaðir ekki og það var stutt í húmorinn. Þú saknaðir alltaf systur minnar Guðríðar sem dó fyrir rúmu ári, en nú eruð þið vinkon- urnar búnar að hittast á ný. Elsku Stebbi, Ella og Tóti, Guð blessi ykkur öll í sorg ykkar og söknuði. Kristín Ósk. Mig langar að kveðja hana Ólöfu vinkonu mína, sem lést fyrir aldur fram hinn 30. september síðastlið- inn, með nokkrum orðum. Það koma ótal minningar upp í hugann þegar þín er minnst, Ólöf mín, og efst er í huga þakklæti til þín fyrir að fá að kynnast þér og fyr- ir þær stundir er við ræddum um heima og geima yfir kaffibolla heima í eldhúsi. Ég man sérstaklega eftir öllum skiptunum þegar þú stappaðir í mig stálinu þegar mér leið illa og fannst heimurinn ósanngjarn. Alltaf gastu komið mér til að brosa og látið mig líta á björtu hliðarnar í þau skipti þegar veikindi mín komu mér um koll og fæ ég seint þakkað þér allan stuðninginn sem þú veittir henni mömmu þegar ástandið var erfitt. Ég man alltaf hversu dugleg þú varst í garðinum þínum og hversu fínn og vel snyrtur hann var og þó að veikindi þín væru þér erfið þá léstu það ekkert stöðva þig og dund- aðir þér eftir því sem heilsan leyfði. Ég minnist líka hversu hetjulega og af hve miklu æðruleysi þú barðist við þennan sjúkdóm allt til dauða- dags. Og alveg sama hversu veik þú varst, alltaf varstu hress og kát og þannig mun ég minnast þín. Stefáni, Ellu Mæju, Tóta og fjöl- skyldum sendi ég innilegar samúð- arkveðjur, megi Guð blessa ykkur og varðveita. Fyrir hönd okkar bræðranna á Heiðarvegi 20 (Helga og Hákonar), Helgi Seljan yngri. Nú þegar við kveðjum Ólöfu Magnúsdóttur hrannast upp minn- ingar í frá liðnum stundum. Ég kynntist henni fyrst þegar hún kom til Reyðarfjarðar árið 1966 til að vinna í síld en ég var þá að vinna í Kaupfélagi Héraðsbúa þar á staðn- um. Ólöf var sérlega kraftmikill per- sónuleiki og var eftir henni tekið hvar sem hún fór. Við tengdumst fljótt fjölskylduböndum þar sem hún giftist Stefáni en ég Guðmundi bróð- ur hans. Þau Ólöf og Stefán byrjuðu sinn búskap í Johannsenshúsinu og var mikill glæsibragur á öllu hjá þeim. Það var mjög gaman að koma í heimsókn því Ólöf var mikil fyrir- myndarhúsmóðir. Hún naut þess að baka og elda góðan mat og kunni þá list að taka á móti gestum. Ósjaldan hef ég notið þess þegar við Guð- mundur höfum verið á ferð fyrir austan. Ólöf hafði einstaklega hressilegt viðmót og skemmtilegan húmor og kunni að gera grín að mönnum og málefnum og ekki síst sjálfri sér. Sólargeislinn í lífi hennar var hann Kristofer litli sem var langþráð barnabarn. Þó hún væri sárþjáð þegar ég heimsótti hana á spítalann þá var sami dugnaðurinn og krafturinn sem geislaði frá henni. Ég kveð þig, Ólöf mín, og bið guð að blessa minningu þína. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! (Jónas Hallgrímsson.) Elsku Stefán, Tóti, Ella, Siggi og Kristofer litli ég og fjölskylda mín sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk. Dagný. ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.