Morgunblaðið - 06.10.2001, Síða 62

Morgunblaðið - 06.10.2001, Síða 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÚTVARPSÞÁTTURINN Party Zone er í dag með rótgrónari þáttum landsins og framlag hans til dans- menningar landsins mikið og gott. Líkt er farið með plötubúðina Þrumuna sem hefur þjónustað dans- hausum undanfarin ár af yfirvegaðri kostgæfni og þekkingu. Hvort tveggja á afmæli um þessar mundir, þátturinn ellefu ára en búðin tíu, og verður slegið upp veislu af tilefninu í dag. Og það er engin smáræðis gestur sem mun kíkja í þá veislu en það er enginn annar en þýski tæknóboltinn Timo Maas. Þjóðverjinn knái, sem spilar tæknó og hús, hefur skotist upp á stjörnuhiminn plötusnúðamenning- ar með afar skjótum hætti. Þannig er mál með vexti að í fyrra gerði hann endurhljóðblöndun af laginu „Dooms Night“ sem velflestir sér- fræðingar innan dansgeirans völdu lag ársins. Endurhljóðblöndunin varð reyndar það vinsæl að þegar lagið sjálft kom loksins út var blanda Maas það eina sem fólk vildi heyra. Síðari endurhljóðblandanir hafa svo allar verið endurhljóðblandanir af útgáfu Maas! Í kjölfarið hefur Maas krukkað í lög með t.d. Madonnu, Fatboy Slim, Placebo og Muse. Einnig sinnir hann eigin tónlistar- sköpun og fyrsta blöndunarskífa hans, Connected, kom út í sumar. Maas var einn helsti plötusnúðurinn á Ibiza þetta árið og er með föst kvöld á einum stærsta dansstað Bretlands, Cream í Liverpool. Timo mun spila á Gauki á Stöng í kvöld en einnig mun hann að sjálf- sögðu kíkja í Party Zone-þáttinn, sem sendur er út á Rás 2, fyrr um kvöldið og þeyta svosem einni skífu eða tveimur. Tæknó- tröllið Timo Maas Timo Maas er heiðursgestur Party Zone og Þrumunnar. Afmæli Party Zone og Þrumunnar BÍTLASVEITIN Hljómar hefur verið iðin sem aldrei fyrr að undanförnu og eftirspurnin eftir þessum gömlu kempum og snill- ingum virðist óþrjótandi. Nú hafa Eyjamenn heimtað að fá bita af þessari stuðköku og ætlar sveitin að troða upp í Höllinni í kvöld. Mun þetta vera í fyrsta skipti í 33 ár sem Hljómar fara til Vest- mannaeyja, en síðast komu þeir þangað 1968. „Já, það er langt síðan við spil- uðum þarna síðast,“ segir Rúnar Júlíusson, bassaleikari og söngvari sveitarinnar. Hann rifjar upp að eitt sinn hafi Hljómar dvalið í viku í Eyjum. „Það var þegar við vor- um að skipta um trommuleikara, þá vorum við þarna og æfðum í viku. Spiluðum svo á kvöldin í Al- þýðuhúsinu.“ Rúnar segir að eftirspurn eftir sveitinni hafi aukist heilmikið eftir að hún tróð upp á hljómleikum í sumar ásamt Sigur Rós, á upprisu- tónleikum plötubúðarinnar Hljómalindar. „Okkur var vel tekið á Broad- way og þar sem við höfum komið,“ segir Rúnar. „Það hefur tekist vel til og það spyrst út. Þá fer fólk að athuga hvort við séum tilbúnir til að spila þarna og þarna og þarna.“ Hljómar leika í Vestmannaeyjum Morgunblaðið/Arnaldur Hljómar búa sig undir Vestmannaeyjareisu. Hljómaæði í Eyjum Vesturgötu 2, sími 551 8900 í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.