Morgunblaðið - 06.10.2001, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ OG glæsilegri Sambíó voru af-
hjúpuð í Álfabakkanum á fimmtu-
daginn. Hefur kvikmyndahúsið allt
verið tekið til gagngerra breytinga
en sérstaklega var þó verið að
fagna opnun nýs „lúxussalar“, hins
fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Í „lúxussalnum“ er boðið upp á
aðbúnað eins og hann getur orðið
bestur í dag. Hann er búinn 30 leð-
urklæddum og rafdrifnum hæg-
indastólum af hinni nafntoguðu
Lazy-Boy-gerð. Mikið er lagt upp
úr því að vel fari um bíógesti í saln-
um og að þrengslin og troðning-
urinn, sem einkennt hafa bíóupplif-
unina frá örófi, heyri nú sögunni til.
Á milli sæta er borð ætlað veit-
ingum og tveir metrar skilja sæta-
raðirnar svo hægt sé að nýta sér
þægindin sem stólarnir bjóða upp á
til hins ýtrasta. Áhersla var og lögð
á að hljóðið í salnum yrði sem full-
komnast. Hann er þannig klæddur
séstöku hljóðeinangrandi efni frá
fyrirtækinu Eomac, sem ku ný og
byltingarkennd uppfinning. Nýj-
asta gerð af stafrænu THX kerfi er
síðan að sjálfsögðu í salnum.
Umsjón með breytingunum hefur
verið í höndum Guðbjargar Magn-
úsdóttur arkitekts og Derek Gallo-
way hjá arkitektastofunni Martek í
Bretlandi. Það arkitektafirma hef-
ur séð um hönnun margra glæsileg-
ustu kvikmyndahúsa í Evrópu á
undanförnum árum, fyrir hönd
kvikmyndahúsakeðjunnar Warner/
Village Cinemas.
Gert er ráð fyrir að lögð verði
áhersla á sýningu vandaðri mynda í
nýja viðhafnarsalnum og þannig
gefi opnunarmynd hans, Woody
Allen-myndin Small Time Crooks,
sumpartinn tóninn.
Miðaverðið í „lúxussalinn“ verð-
ur 1.600 krónur og eru gosdrykkir
og poppkorn eins og gestir geta í
sig látið innifalið í verðinu.
Við opnun salarins sagði Þor-
valdur Árnason framkvæmdastjóri
Sambíóanna að það væri í anda
Sambíóanna að ríða á vaðið með
slíkan „lúxussal“ hér á landi því allt
frá opnun Bíóhallarinnar árið 1982
hefði verið kappkostað að vera í
fararbroddi nýjunga á sviði kvik-
myndasýninga. Árni Samúelsson,
stofnandi og aðaleigandi Sambíó-
anna þakkaði sérstaklega sam-
starfsfólki sínu og skjótvirkni
þeirra er framkvæmdu breyting-
arnar.
Boðsgestir við afhjúpun hinna
nýju Sambíóa fengu að sjálfsögðu
að tylla sér í nýju stólana og virða
fyrir sér þær breytingar sem gerð-
ar hafa verið þess á milli sem þeir
skröfuðu og gæddu sér á léttum
veitingum í boði hússins.
Sam-feðgarnir stoltir í stólunum margumtöluðu.
Björn Árnason, einn af stjórnendum Sambíóanna, útskýrir breyting-
arnar fyrir Þorsteini M. Jónssyni, forstjóra Vífilfells, og Skúla Helga-
syni, forstöðumanni tónlistarsviðs Eddu – miðlunar og0 útgáfu.
Aukinn
lúxus í
Sambíó-
unum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björn Bjarnason menntamálaráðherra var vitanlega spenntur að kynna
sér nýjustu byltinguna í íslenskri bíóhúsamenningu. Hér kenna feðg-
arnir Árni og Björn honum hvernig stilla á hægindastólinn góða.
Sýnd kl. 8, 10.10 og 12.15.
B i. 16. Vit 251
strik.is
Mögnuð stuðmynd
í nánast alla staði!
Kvikmyndir.is
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Radíó X
HK DV
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
kvikmyndir.com
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 og 6. B.i. 12. Vit 256
Mbl
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 og 12.15.
B. i. 16. Vit 274
THE IN CROWD
Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8, 10.10 og 12.15.
B. i. 12. Vit 269
Frumsýning
Sýnd í Lúxus VIP kl. 1.40, 3.45, 5.45,
8, 10.10 og 12.15. Vit 278
Frumsýning
Með sama
genginu.
Ekki missa af skemmtilegustu grínmynd ársins
Allir vilja þeir sneið af „glæpakökunni“
Nýjasta snilldar-
verkið frá
meistaranum
Woody Allen.
Með hreint út sagt
úrvalsliði leikara:
Hugh Grant ,
Tracey Ullman ,
Michael Rapaport
og Jon Lovitz .
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. Vit 265.
strik.is
kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 11. B. i. 12. Vit 270
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Íslenskt tal. Vit 245
ÞÞ strik.
is
Sýnd kl. 2. Ísl tal Sýnd kl. 2. Ísl tal
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Kvikmyndir.com
Hugleikur
DV
strik.is
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Radíó X
Kvikmyndir.isKvikmyndir.com
HK DV
Mbl
Litríkur leikhópur gerir myndina að kostulegri skemmtun.
Með Bette Midler, Nathan Lane, Stockhard Channing , David
Hyde Pierce, John Cleese og Amanda Peet.
Hæfileikar
eru ekki
allt.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Himnasending i i
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 2, 5.15, 8 og 10. B. i. 12 ára.
Frumsýning
Með sama genginu
Ekki missa af skemmtilegustu
grínmynd ársins.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15. B. i. 12 ára.
Stærsta mynd ársins
yfir 50.000 áhorfendur
ÞÞ strik.
is
!"# $#
%& ' (
(
) * +
+ ,
"
-
. / % 0 #
101
!" # $
%## % &#
#
#
# ''
(
#
) #
!
"#
" $
%
&#
'## # ' "( )***